Eining - 01.08.1965, Side 15

Eining - 01.08.1965, Side 15
E I N I N G 15 * Otemjur Þær eru víðar en að Laugarvatni, Þjórsárdal, Þórsmörk og Hreðavatni. Aftenposten, Oslo, 19. júní 1965, grein- ir frá því, að í skólaleikhúsi í Bergen hafi orðið að vísa á dyr 500 skólaungl- ingum. Það voru hinir yngstu gestir skólaleikhússins, unglingar úr áttundu og níundu bekkjum skólanna. Einhv'erjir þeirra léku sér að því að kasta bréfhnoðrum, sykurmolum eða peningum í hljómsveitina. Einn tíeyr- ingurinn hitti rétt undir auga eins hljómlistarmannsins. — Nokkru áður hafði eitthvað svipað komið fyrir, en þá var eitt hljóðfærið skemmt. Að þessu sinni féll tjaldið í miðjum klíðum og öllum hópnum var vísað á dyr, en senni- lega hafa þó fremur fáir verið sekir, en eins og fyrri daginn, gjalda saklaus- ir hinna seku. Það er raunalegt, hve þessi ótemjuhópur meðal æskumanna setur víðs vegar ljótan blett á ungu kyn- slóðina. Eitthvað er þar bogið við eðli og uppeldi. Þetta skólaleikhús í Bergen hefur haft orð á því, að til mála geti komið að útiloka þessa yngstu bekki leikhúss- ins, vegna óspektanna. Þáttur kirkjunnar í bindindisstarfi Þáttaka kirkjunnar í þessu erfiða en einu mikilvægasta siðbótarstarfi hefur verið frá upphafi bindindishreyfingar- innar miklu meiri en menn gera sér al- mennt ljóst. Blaðið hefur áður borið fram nokkur haldgóð rök þessu til sönn- unar. Snemma í júnímánuði 1965 kom sam- an í Oslo framkvæmdanefnd heimssam- bands bindindisráða kristinna safnaða. 10 komu þar frá stjórn sambandsins og tíu fulltrúar frá bindndisráði kristinna safnaða í Noregi, en framkvæmdastjóri þess, presturinn og kristniboðinn G. Rinvold, er varaforseti heimssambands- ins. Aðalviðfangsefni þessa fundar var undirbúningur ráðstefnu eða þings heimssambandsins, sem háð verður á næsta ári í Genf. Að loknum þessum framkvæmdafundi var svo önnur ráð- stefna um áfengisvandamálið yfirleitt. Framkvæmdastj óri heimssambandsins, dr. Hans Schaffner, frá Svisslandi, minnti á, hve geigvænlega áfengis- neyzlan færi vaxandi um heim allan, ekki aðeins í hlutfalli við fólksfjölgun- ina, heldur samhliða velgengninni og auknu frjálsræði þjóða. Til dæmis benti hann á, að í þróunarlöndunum væri tal- ið að 10—15 af hundraði íbúanna fær- ust sem áfengissjúklingar, meðaltalan væri annars í heiminum yfirleitt 5—10 af hundraði. Sóknina gegn áfengis- neyzlunni þyrfti að auka mjög í þróun- arlöndunum. Á þingi heimssambands bindindis- ráða kristinna safnaða í Genf næsta ár verður þetta mál rætt og áfengisbölið yfirleitt útfrá sjónarmiði kirkjunnar. Gott væri og æskilegt að einhver áhuga- maður eða áhugamenn gætu setið það þing sem fulltrúar Bindindisráðs krist- inna safnaða á Islandi. í framtíðinni hlýtur kristin kirkja að sinna þessu vandamáli af fullri alvöru, sem er orðið svo nærgöngult, að ýmsir hæfustu for- ustumenn félagsmála, eins og t. d. í Svíþjóð, telja það mestu meinsemdina í þjóðfélagi og félagslífi velferðarríkis- ins. Lungnakrabbinn skæðastur þar sem mest er reykt Undanfarin ár hefur staðið yfir rann- sókn í Noregi og Finnlandi á samhengi tóbaksreykinga og lungnakrabba. 1 Finnlandi er mikið reykt og miklu fleiri deyja þar úr lungnakrabba en í Noregi, og fleiri deyja í þeim byggðum og bæj- um Noregs af völdum krabbans, þar sem mikið er reykt, heldur en hinum. Hæst er dánartalan af þessari orsök í Oslo. Öðruvísi þá Kona nokkur var að skoða hatta en fann engan nógu góðan. Spurði þá afgreiðslu- stúlkan, hvort hún fynndi engan, sem hent- aði henni. — Nei, sagði frúin. Það er einkennilegt, að nú ádögum er helzt ekki hatt að fá, sem gerir mann unglegan. Það var annað fyrir þrjátíu árum. Leiftrétting Það gleymdist að geta höfundar greinar- innar, „Hvemig brennivínið varð til,“ sem birtist í síðasta tölublaði Eningar. Þýð- andinn var nefndur, en höfundurinn var Leo Tolstoj. ')rá 'JiwwlauM Nokkuð er síðan að haldinn var um- ræðufundur áfengisvarnanefnda í Finn- landi á vegum félagsmálaráðuneytisins þar. Á fundinum mættu yfir 600 fulltrú- ar hvaðanæva að. Þar voru samþykkt mótmæli gegn ráðstöfunum áfengisverzlunarinnar, sem gera ráð fyrir að ölstofur séu staðsettar sem víðast úti um landið. Fulltrúafundurinn telur það mjög áríðandi að þegar breyta skal áfengis- löggjöfinni, sé ekki losað um neitt af þeim ströngu reglum, er nú gilda, m. a. að ekki verði auðveldara að ná sér í öl og áfengismiðlun verði ekki aukin. Fundurinn lýsti sig andvígan ráð- stöfunum áfengisverzlunarinnar um að dreifa ölstofunum út um bæi og sveitir. Áfengisvarnirnar þurfa að vera mik- ilvirkari í öllum skólum og öllum fé- lagasamtökum með tilliti til þeirrar kröfu um bindindissemi, er þjóðfélagið gerir til allra á þessum vélvæðingar- tímum. Fundurinn mælist til þess að íþrótta- félögin geri félagsmönnum sínum ljóst, hve mikilvægt það er að lifa bindindis- sömu lífi við iðkun íþrótta og á allan hátt. Útvarp, sjónvarp, kvikmyndir og ann- að slíkt, sem dregur að sér athygli al- mennings, eiga að áliti fundarins, að fella niður þá dagskrárliði, sem spilla fyrir bindindisstarfsemi, en í staðinn keppa að því að veita sem bezta þjón- ustu siðgæðislega og þjóðhagslega. í öllum sveita- og bæjarfélögum þarf að stai’frækja tómstundaiðju með æsku- fólki, er þroski það og bæti. Fundurinn beinir því til allra ábyrgra borgara í öllum stéttum og hvar sem er, að vinna ötullega að almennri bind- indisstarfsemi. Að lokum lýsa áfengisvarnanefndirn- ar yfir því, að þær séu reiðubúnar að vinna með öllum þeim, er vilja stefna að þessu marki. (Áfengisvarnaráð í’íkisins). Maður nokkur sem kominn var inn í járn- brautarvagn, kvartaði imdan því við þjón- inn, að hann hefði fengið klefa þar sem hermaður væri fyrir. — Er hann nokkuð hættulegur? spurði þjónninn. — Nei, en þetta er hermaður úr hjálp- ræðishernum. — Já, ekki er hann hættulegur, svaraði þjónninn aftur. — Nei, en þetta er ungrn- kvenmaður.

x

Eining

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.