Neisti


Neisti - 26.02.1943, Qupperneq 3

Neisti - 26.02.1943, Qupperneq 3
NEISTI 3 firðingar. hafi gleymt stjórnar- tímabilinu 1934—1938, þegar fast- ir starfsmenn bæjarins urðu að ,,selja“ kaupið sitt, ávísanir frá bænum, í ýmsum verzlunum með afföllum, eða biðja kunningja sína að gera sér þann greiða að kaupa þær upp í útsvarsgreiðslu næsta ár. Man hann ekki kreppusjóðs- lánið, sem heldur öllum eignum bæjarins, þar á meðal vatnsveit- unni og ,,Rauðku,“ svo föstum að ekkert er hægt að gera. Man ekki ritstjórinn Schevings-lánið, se,m tekið var með 10 % afföllum og 6% vöxtum og munnlegu loforði um greiðslu í erlendum gjaldeyri, sem lántakendur vitanlega ekki gátu staðið við. Fjárhagslegur samanburður Siglufjarðar og Hafnarfjarðar og ísafjarðar hins- vegar, er því síður en svo Siglu- firoi hagstæður. Þá er hin fullyrð- i'ngin, að á ógæfuhliðina hafi síg- ið fyrir Siglufirði 1938—’42 pg það sé A-listamönnum að kenna, Neisti vill fúslega viðurkenna, að það hefði verið, með djörfum á- tökum, hægt að gera meira í fram- fara- og atvinnumálum bæjarins á þessu tímabili en gert var. Rit- stjórinn. skyldi þó minnast þess, að myndarlegasta tilraunin sem gerð var til þess að koma hér upp stóratvinnutæki, strandaði á flokksmönnum hans í bæjarstjórn og ríkisstjórn. Síldarverksmiðjur ríkisins hafa grætt milljónir á þessu tímabili, og það er vitanlegt að nýtízku verksmiðja á Rauðku- lóðinni hefði ekki síður haft að- stöðu til þess. Þá skyldi ritstjórinn líka minn- ast þess, að það var Framsóknar- og Sjálfstæðismeirihlutinn 1934— ’38, sem leigði Gránu með þeim ár- angri, að bærinn verður sennilega að borga með henni þessi ár, og leigði Rauðku fyrir lágt verð, en A-listamennirnir, sem ráku ,,Rauðku“ með þeim árangri, að hún hefir grætt um 200 þúsund krónur umfram þá leigu, sem þeir Framsóknarmenn höfðu ákveðið. Að seinustu- sýnir ritstjórinn of- urlítið „innan í sig“ með fyrir- spurninni um það, hver hafi skrif- að umrædda ,,Neista“-grein. Sú grein var alveg laus við persónu- lega áreitni. Einungis rætt um málin sem fyrir lágu, og vorkunn- arlaust fyrir hvern sem var, að ræða þau án nokkurs tillits til höf- undar. Jóh. Þorvaldsson hefir nokkuð komið við opinber mál, en lang oftast með útúrsnúningi og persónulegum ýtingi. Með þessari fyrirspurn sýnir hann ljóslega að honum er ósýnt um að ræða mál- in án tillits til þess, hver ræðir þau við hann, þá á hann óhægra með að beita persónulegum skæt- ingi. Neisti vill segja ritstjóra Ein- herja það, að hann mun engan á- kvörðunarrétt hafa um það, hvort Dýrtíðar- frumvörpin. Ríkisstjórnin hefir nú loksins lagt fram dýrtíðarfrumvörp sín. Fremur virðist þar anda kalt til verkalýðsins og launastéttanna, þar sem ætlast er til stórkostlegr- ar skerðingár á dýrtíðaruppbót þessara stétta, án þess að séð verði að nokkrar bætur komi fyrir. Sjón- armið Morgunblaðsins virðist hafa ráðið, en það var jafn viturlegt og við mátti búast úr þeirri átt, eða það að með verðbólgunni hefði ver- ið framkvæmd auðjöfnun!! Nú vita allir að launastéttirnar hafa einungis fengið bætta dýrtíðina og þó laklega með vísitöluuppbót. Eítt af því sem Ólafur Thors lofaði, var að endurskoða vísitöluna, sem reyndar aldrei var gert. Bendir það á að eitthvað hafi verið athuga- vert við hana. Ekki er enn séð hvaða undirtektir frumvarp þetta fær. I því eru að vísu nýtilegar og sjálfsagðar tillögur, t. d. um eigna- aukningarskatt, en heldur virðist hann lítiil Þá má að sjálfsögðu at- huga um skyldusparnað, en ein- ungis af þeim tekjum, sem eru af- lögufærar. Ekki hefur frétzt hvort ríkisstjórnin gerir frumvarp þetta að fráfararatriði. Hitt mætti þó fremur ætla, að hún legði það fram sem tiiraun til samkomulags, enda þarf það gagngerðra breytinga við ef það á að verða að gagni, og ekki eingöngu tilraun til þess, enn á ný, að skerða mest hlut þeirra fátækustu í þjóðfélaginu, laun- þega og fátækra smábænda. Hitt frumvarpið er um ríkara eftirlit með skattaframtölum og mun varla af veita. Margar skatta- nefndir eru þannig settar á ýms- um smærri stöðum að vegna per- sónulegs kunningsskapar geta nefndarmenn ekki beitt þeim myndugleik, sem með þarf til þess að fá fram rétt framtöl. Hinsvegar væri ekki vanþörf á því að eftir- litið beindist meira að þeim stærri, en verið hefir til þessa, og minna að þvi að elta upp nokkrar krónur hjá verkamönnum og öðrum laun- þegum, en láta stórlaxana sleppa gegnum glufurnar, annaðhvort með því að gefa ekki upp, eða þá með því að gefa fyrst upp, sækja síðan framtölin sín til nefndanna og skila þeim aldrei aftur. greinar birtast nafnlausar í Neista eða ekki. Það mun verða staðið við þær og málefni þau, sem þær kunna að flytja, eftir því sem með þarf á hverjum tíma. Vísitulan í febrúarmánuði er 2G2 stig, einu stigi lægri en í febrúar. BÆJARFRÉTTIR Nýlátiiui er Ólafur Bjargmann, verkamaður liér í bæ. Ólafur koin mjög við sögu verkalýðslireyfingarinnar. I fjölda mörg ár stóð hann í fylkingar- brjósli vcrkamanna i Hrísey og álti ofl i vök að verjast. l>að var á þeim tíma er verkalýðssamtökin voru veik og atvinnurekcndur þorðu að beita for svarsmcnn þeirra atvinnukúgun og örðum slikum aðferðum. Ólafur lél hvergi hlut sinn, enda þótt hann setti lengst af við rnikla örðugleika að.etja og þröngan kosl að húa. Verkanfenn í Hrísey eiga sjálfsagt engum einum manni eins mikið að þakka sæmileg- an árangur í þeim málum eins og Ólafi. líin síðari ár var Ólafur tek- inn mjög að lýjast.’en áhugi hans fyr- ir málum verkalýðssléttarinnar var mikill og óskertur til hins síðasta. Með Ólafi er fallinn frá einn af fúlltrú- uni stéttarinnar, sem stóð í harðri Irar- áttu á þrengingartímum, en gat þó glaðst að lokum yfir unnum sigrum. Neisli þakkar Ólafi fyrir vel unnið æfistarf i þágu verkalýðshreyfingar- innar og vottar eftirlifandi vanda- mönnum lians sannið sina. Ógœftir og óstöðug veðrátta hefir - verið nú um langan tíma. Ekki hefir gefið á sjó vikum saman. Er því lítil vinna í bænum. Tvö eða þrjú færey- isk fiskiskip eru hér um þessar mund- ir til þess að kaupa f'isk. Er því mið- ur allt útlit fyrir að þau verði vegna ógæfta að fara við svó búið. Er illt til slíks að vitá, þar sem fjölmargir eiga afkomu sína undir því að vel tak- ist með aflabrögð og sölu fiskjarins. Snjórinn og ,,knæpurnar“: Snjórinn liefir haft mikil áhril' á bæjartífið, og sem betur fer, tit hinná mestu bóta. Snjórinn liefir seitt fjölda unglinga út í náttúruna á skíði og burtu frá götulífinu, kaffilnisunum og ölknæp- unum. En einmitl þessar knæpur, sem sprottið hafa upp í seinni tíð, liafa sett ómenningarbrag á bæinn. Þarna sitja unglingar og einstaka fullorðnir inenn að öldrykkju langt fram á kvöld. Þó að veitt sé óáfengt öl, er það ekki ósjaldan að menn gerast ölvaðir þarna inni, sem þá sennilega stafar af ein- hverri hlöndun, sem þar fer fram. Hópar unglinga og jafnvel barna, safn- ast svo saman til þess að horfa á drykkjulæti og annað slark, sem því fylgir. Má nærri geta hversu holltþað er uppvaxandi æsku bæjarins að sitja þarna við tóbakssvælu og vínangan. Lítið eftirlit virðist með þessum knæp- um, nema þá lielzt að lokað sé á rétt- um tírna. Lögreglan sézt sjaldan, og helzt virðast það vera einstaka nefnd- armenn barnaverhdarnefndar, sem líta eftir og hanna unglingum veru á þessum stöðum. Það er fullkomin á- stæða fyrir bæjarstjórn að endurskoða afstöðu sína til veitingaleyfa, sem hún á sínum tíma kann að hafa veitt til þessara staða. Það er hæjarskömm að hafa þessar bjórstofur opnar til Útsalan enn í fullum gangi. Athugið aðeins tveir dagar eftir. VERZLÚNIN HALLDÓR JÓNASSON B-deild. Raísuðu- plötur .11 fæst hjá Jóhanni Jóhannessyni rafvirkja. Undirföt Náttkjólar* Náttjakkar Drengjabuxur nýkomið. Vöruhús Siglufjarðar Stanley- Járnheflar Hjólsveifar Brjóstborar Hamrar Skrúfstykki Lamir Draglokur Lásliespur Hilluvinklar Verzlun Sig. Fanndal. miðnættis og engan veginn vansálaust það eftirlitsleysi, sem er með starf- semi þessara staða.

x

Neisti

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neisti
https://timarit.is/publication/848

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.