Neisti


Neisti - 21.06.1945, Síða 3

Neisti - 21.06.1945, Síða 3
N EI STI S Gildaskáli K.B.S -’i-- -wsVhíl-A-atfV !• V er tekinn til starfa MATUR, KAFFI, ÖL, allan daginn \ *V ' Reynið viðskiptin KJÖTBÖÐ SIGLUFJARÐAR TILKYNNING Að gefnu tilefni tilkynnist að ennþá hefur engin breyting orðið á tundurduflasvæðunum frá síðustu tilkynningu hér við land og eru sjófar- endur því alvarlega varaðir við að stunda fisk- veiðar á þessum svæðum. Þegar hreinsun tundurduflasvæðanna er lokið verður það þegar tilkynnt. Samgöngumálaráðuneytið, 7. júní 1945 Tilkynning Til að greiða fyrir því, að lieimsendar vörur komi nógu snemma, og til að þurfa ekki að senda oft á dag í sömu götu í hæmun, höfum við leyft okkur að setja eftirfarandi reglur um móttöku pantanna: Kjöt og aðrar vörur í hádegismat þarf að panta fyrir kl. 10 árdegis eða kvöldið áður Kjöt og annað til kvöldverðar þarf að panta fyrir kl. 4. síðdegis. Á laugardögum verður aðeins tekið á móti pöntunum FYRIR KL. 12. Á HÁDEGI, og er því nauðsynlegt að fá pantanir í sunnudagsmatinn á FÖSTUDÖGUM. Við vonum að þessi ákvæði verði ekki síður til þæginda fyiár viðskiptavini okkar, en okkur sjálfa. VIRÐIN G ARFYLLST Kjötbúð Siglufjarðar Kaupfélagsmenn! Munið framhaldsaðalfund- inn í Sjómannaheimilinu kl. 5 ídag. — Fulltrúar áminntir um að mæta stundvíslega. Nauðungaruppboð Öseldar vöruleyfar þrotabús Halldórs Vídalíns verða seldar í einu lagi á uppboði, sem haldið verður í skrifstofu embættisins, laugardaginn 30. þ. m. kl. 5 síðdegis og seldar hæstbjóðanda, ef viðunanlegt boð fæst. Nánari upplýsingar hjá bæjarfógetaskrifstofunni. Skrifstofu Siglufjarðar 21/6 1945 GUÐM. HANNESSON .Kommúnistar og KFS. Framliald af 1. síðu. að hann var sendur hingað norður á Siglufjörð til að skipuleggja inn- anhéraðsófrið, eða voru það fjöl- skyldusjónarmið sem réðu, eins og hjá Þóroddi með kaupin’a h. f. Geislinn og Verzlun Önnu og Gunnu. Það mun vera heppilegast fyrir ráðherrann að Þóroddur reyni að hreinsa hann af þessu illmæli, ef hann getur. Jafnvel þó Jörgensen hafi átt að gegna ráð- herrastörfum á meðan — hafi hann þá nokkurntíma fundið ráð- herrabústaðinn — réttlætir það á engan hátt, að maður, sem gegnir jafn ábyrgðarmikilli stöðu sem Áki Jakobsson, sé að stofna til illinda og áreitni, og það meira að segja í sínu eigin kjördæmi. En vonandi verður það eina skiptið, sem Siglfirðingar verða það slysn- ir að kjósa slíkan mann á þing. Margur mundi nú ætla, að þegar stjórnin var búin að reka 29 full- trúa og 41 af öðrum meðlimum KFS, þá teldi hún sig hafa tögl og hagldir í bili, en svo var þó ekki. Næst var að snúa sér að framkvæmdastjóranum. Hefir þó mörgum virzt hann helzt til leiði- tamur við kommúnistana. En það fór með hann eins og marga aðra, að þegar þeir voru búnir að hafa gagn af honum spörkuðu þeir hon- um frá störfum. Um kl. 11 á mánudagskvöld hringdu þeir til kaupfélagsstjórans og báðu hann að koma á fund, sem þeir þyrftu að halda á skrifstofu félagsins. Þegar á fundinn kom var það er- indið að vita hvort hann vildi ekki segja upp. Sigurður neitaði þessu. Voru þeir þá ekki að hafa nein umsvif með það, heldur tilkynntu honum að honum væri hér með sagt upp stöðunni fyrirvaralaust og þess jafnframt krafizt, að hann afhenti lykla kaupfélagsins. Sig- urður var tregur til og taldi sig órétti beittan, en þeir gengu því fastar að honum og þeir sem þekkja innræti Þórodds Guð- mundssonar ganga þess ekki duld- ir, eftir annarri framkomu hans, að hann mundi ekki hafa hikað við að beita ofbeldi ef þörf hefði krafið. Lét Sigurður að lokum lyklana um kl. 1 um nóttina. Má segja að mikið hafi þeim legið á þeim félögum, og aðferð þeirra 1 þessu máli, sem öðrum í sambandi við KFS, ein ofbeldisráðstöfun frá upphafi til enda, enda hefir það komið greinilega í ljós, að með- limir KFS hafa andstyggð á þessu brölti sósíalistanna. Kom þetta greinilega ’í ljós á þessum auka- deildarfundum, sem gerfistjórnin boðaði til, að í þrem deildum, sém þeir boðuðu fundi í fengu þeir alls um 60 manns af yfir 400 manns, sem í deildunum eru. Hljóta þetta að hafa orðið allmikil vonbrigði fyrir þá félaga, sem reyndu þó að smala á fundina eftir getu. En það er nú orðið þannig með sósíalist- anna, að þótt þeim hafi í sumum málum tekizt að safna allihiklu fylgi í kringum sig, með ósönnum álygum um menn og málefni, þá tekst almenningi stundum að sjá í gegnum blekkingahjúpinn, og hon- um rennur í brjóst að sjá það samsafn eiginhagsmunagirnda og blekkinga, sem eru helztu eigin- leikar Þóroddar og hans nóta. Þannig hefir það farið í máli KFS. Fjöldinn sér hvert stefnir, að Þór- oddur og fylgilið er á góðum vegi með að gera eitt veigamesta bar- áttutæki siglfirzkrar alþýðu að fjölskyldufyrirtæki, sem hlýtur undir hans stjórn að sæta sömu ör- lögum og h. f. Geislinn og Anna & Gunna. En Þóroddur ætti ekki að guma af afrekum sínum of snemma, því þó honum hafi tek- izt að ná í stætisvagninn í þetta ‘sinn, þá mun siglfirzk alþýða sjá um, að honum verði varpað þaðan út þegar tími er til kominn. ★ \

x

Neisti

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neisti
https://timarit.is/publication/848

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.