Neisti


Neisti - 21.06.1945, Qupperneq 4

Neisti - 21.06.1945, Qupperneq 4
4 N E I S TI SIGLFIRÐINGAR Kærar þakkir fyrir höfðinglega gjöf og lilýjar kveðjur. Beztu framtíðaróskir til ykkar allra. DÝRLEIF FRIÐRIKSDÓTTIR DANÍEL A. DANÍELSSON Stjórnarsamstarfið Framhald af 2. síðu. vonaraugu þeirra, sem vilja bæta eyðilegginguna, enda vilja Svíar gjaman hjálpa og þá sérstaklega frændþjóðunum, Norðmönnum og Dönum, sem eiga um sárt að binda Geysileg eftirspurn er því eftir þessum vörum Svía. 3. Svíar hafa að mestu leyti sloppið við þá verðbólgu, sem víða hefur orðið af styrjaldarástæðum. Dýrtíðarvísitala þeirra mun vera um 140 miðað við 1939, og ekki bætt að fullu til launþega. Af þessu leiðir að örðugt muni að selja þeim afurðir, sem framleidd- ar eru með 4—5 földu verði miðað við það ,sem var fyrir stríð. Þegar þessi þrjú meginatriði eru höfð í huga virðist það alveg furðu legt hversu geysihagkvæmir samn- ingar hafa náðst við Svía. Veldur þar að sjálfsögðu mestu um, rót- gróin vinátta Svía í garð íslend- inga, og það hversu vel og vitur- lega hefur verið haldið á málefnum Islends. Frá Svíum fáum við mikið af þeim vörum, sem okkur eru nauðsynlegar til þegs að auka skipakost og atvinnutæki lands- manna. Má þar til nefna: 55 mótorskip allt að 80 smálestir að stærð, og ættu þannig að fást samtals 100 skip þessarar stærð- ar frá Svíþjóð á næsta ári, ef vilji og möguleikar eru fyrir hendi til þess að kaupa þessi skip. 28 járnskip, þar af 15—20 dísel- togara, en 8 skip til vöruflutninga. Muni þegar búið að semja um smíði tveggja eða þriggja slíkra skipa. 5000 standarda af timbri. Fékkst þannig það magn, sem upp- haflega var farið fram á af hálfu íslenzku ríkisstjórnarinnar. 1025 síma- og rafmagnsstaurar. 300 tilbúin hús. Ýmsar vélar, svo sem bátamótor ar, smíðavélar, rafmótorar og verk smiðjuvélar, skilvindur o. fl. Landbúnaðarvélar, svo og ýms- ar vörur, sem okkur vanhagar sér- staklega um. En verðmæti svenskra vara, sem okkur er tryggð afhending á, mun nema ca. 70 millj. króna. • Þá var einnig tryggð afhending 125.000 tómra síldartunna undir síld, sem Svíar vilja kaupa héðan og mun nánar vikið að því síðar. Það sem Svíar vilja aðallega kaupa héðan er m. a.: 1000 smálestir af frystu lamba- kjöti, 4000 tunnur af fiskihrogn- um, 10.000 tonn af síldarlýsi, 200 tonn af hraðfrystum fiski, sem er aðallega ætlað til kynningar á þeirri vöru. Auk þessa er salt- fiskur og fleiri íslenzkar fram- leiðsluvörur, svo sem ull og 200.000 gæri\f. Þá vilja Svíar kaupa 125.000 tunnur af saltsíld fyrir verð, sem er sambærilegt við það verð, sem síld hefur verið framleidd fyrir undanfarið. Þótt mörgum kunni að virðast í fljótu bragði að hér sé ekki um mikið magn að ræða sam- anborið við það sem flutt var til Svíþjóðar fyrir stríð, þá er hér um stórmerkilegt atriði að ræða ,sem telja má að brotið hafi ísinn til framtíðarsölu á íslenzkri síld til Svíþjóðar. Megum við Siglfirðingar sérstaklega fagna að svo giftusam lega hefur tekist að leysa þessi mál. Einmitt sérstaklega með síldina stendur þannig á, að verð hennar og framleiðslukostnaður hefur margfaldast síðan fyrir stríð. Þess vegna litu margir með nokkrum kvíða til framtíðarinnar hvernig takast myndi til um sölu þessarar vöru sem fjölmargir eiga afkomu sína undir. Menn hljóta að skilja, að það er ekki létt verk að selja vöru í landi, sem sloppið hefur við verðbólgu. Fyrir stríð var ætíð langhæst verð á síld, sem seld var til Ameríku. Þó var svo komið s.l. ár, að ekki fengust nægilegar hækkanir á hámarksverði vestur þar til’þess að hægt væri að selja síldina þangað fyrir verð, sem svaraði framleiðslukostnaði. Þess- vegna geta allir góðir Islendingar fagnað því af heilum hug, að tek- ist hefur með frjálsu og vinsam- legu samkomulagi að fastákveða verð á þessari síldarframleiðslu vorri í aðalneyzlulandinu á þann veg að við íslendingar getum vel við unað, enda þótt ekki sé um að ræða stórfelldan hagnað af þess- ari atvinnugrein. Gifta ríkisstjórnarinnar og þeirra sem fyrir hana hafa unnið, við að leysa þessi mál ,gefur vonir um að einnig takist vel að leysa þau miklu mál, sem framtíðarinn- ar eru. En ótrúlegt er það að nokk ur maður sé svo blindaður af floþksofstæki, að hann sjái það ekki, að þessum mönnum ber að þakka vel unnin störf. Þegar hefur samvinna núverandi stjórnar- flokka orðið alþjóð til heilla. Sam- starfið ber að efla og styrkja, svo að möguleikar verði til þess að leysa vandamálin sem úrlausnar bíða á jafn hagkvæman hátt og tekist hefur með þau mál, sem að framan hefur verið lýst. TIIKYIMIMIIMG Að gefnu tilefni tilkynnist hér með, að allt síldarlýsi af þessa árs framleiðslu hefur þegar verið selt Bretum. Er því framboð á þeirri vöru til útlanda með öllu óheimilt og munu hlutað- eigendur verða látnir sæta ábyrgð að lögum. Reykjavík, 8. júní 1945 Samninganefnd utanríkisviðskiþta I i TILKYNNING TIL SÍLDARSALTENDA OG ÚTGERÐARMANNA Þeir síldarsaltendur, sem ætla að salta síld, svo og þeir út- gerðarmenn, sem hafa í hyggju að salta síld af skipum sínum, á sumri komanda, þurfa, samkvæmt 8. grein laga nr. 74 frá 1934, að sækja um leyfi til Síldarútvegsnefndar. Síldarsaltendur þurfa að upplýsa eftirfarandi: 1. Hvaða söltunarstöð þeir hafi til umráða. 2. Af hvaða skipum þeir fái síld til söltunar. 3. Hvaða eftirlitsmaður verður á stöðinni. 4. Hve margt síldverkunarfólk vinnur á stöðinni. 5. Eigi umsækjandi tunnur og salt, þá hve mikið. Síldarútvegsmenn þurfa í umsóknum sínum að taka fram eftirfarandi: Tölu skipa, stærð, einkennistölur. Aætlað magn til söltunar og hjá hvaða saltanda síldin verður söltuð. Þeir síldarsaltendur, sem óslía að fá tómar tunnur og salt frá Síldarútvegsnefnd sendi umsóknir til Síldarútvegsnefndar á Siglu- firði. Allar þessar umsóknir skulu sendar til skrifstofunnar á Siglu- firði og þurfa að vera komnar þangað fyrir 30. JÚNÍ 1945. SÍLDARÚTVEGSNEFND Leiðrétting á kauptaxtaauglýsingu, sem birtist í síðasta tölublaði Mjölnis. I liðnum skipavinna stóð dagv. 7.54, eftirv. 13.31 en á að vera dagv. 7.54, eftirvinna 11.31. Þetta eru menn góðfúslega beðnir að athuga. * 20. júní 1945 Formaður i

x

Neisti

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neisti
https://timarit.is/publication/848

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.