Neisti


Neisti - 10.05.1946, Blaðsíða 4

Neisti - 10.05.1946, Blaðsíða 4
* NEI STI 4 Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og liluttekningu við fráfall og jarðarför TORMÓNU EBENEZERSDÓTTUR og MAGNÚSAR MAGNÚSSONAR Ennfremur hjartans þakkir til þeirra mörgu, er sýndu liinum látnu kærleika og hjálp í veikindum þeirra. MAGNÚS VAGNSSON Neyðarópið í „Mjölnir“ (Framhald af 2. síðu) ur, að sumir kjósendur flokksins höfðu ekki velþóknun á honum. Um þingmennsku Þóroddar ætti Mjölnir sem minnst að tala. Sigl- firðingar vita nokkuð sögu hans í þinginu og hafa heyrt hann halda fjárlagaræðu um sjálfan sig og Gilslaug, en þeir hafa ekki séð gagnið fyrir bæinn af þeirri ræðu. Þá talar greinarhöfundur um flugumenn. Er það máske svo, að ráðamennirnir í Kreml fyrirlíti kommúnistana í Canada, sem upp- vísir hafa orðið að njósnum fyrir Rússa, þó þeir hafi ekki annað gert en hlýða flokkskallinu ? Fyrir lítur Brynjólfur Bjarnason þá kommúnista, sem hlýða kalli hans og fyrirskipunum, sem þeim ber- ast um að rægja pólitíska andstæð- inga í borg og byggð? Greinarhöfundurinn í Mjölni getur alveg verið óhræddur um það, að kratarnir munu ekki gera neitt að því að viðra sig upp við Áka Jakobsson atvinnumálaráð- herra, þó hann komi hingað í vor, og þó hann hafi völd í höndum nú. Kommúnistarnir geta þess vegna sýnt honum sínar andlegu gullsmíðar í fullum friði fyrir kröt- unum. Hinsvegar munu Alþýðuflokks- menn svara skriffinnum Mjölnis, þegar þeim bíður svo við að horfa, og óttast þar engan samanburð á mönnum og málefnum. Æskan og framtíðin. Æska þessa lands hlýtur að vita og skilja að hennar býður mikið og erfitt starf í framtíðinni, sem á að verða þjóð vorri til gæfu og gengis. Æskan er sterk og mikils- megnug ef hún stendur heilsteypt um vandamálin og verkefnin, sem býða hennar. Hún verður að skilja það, að þeir sem áður og nú halda um stjórnarvöl þjóðar vorrar hafa lagt mikið á sig við unnin afrek, og hafa eigi lagt árar í bát, þótt oft hafi hart á móti blásið. Nei, þegar landið er orðið sjálfstætt ríki þá verður hver og einn að gæta að því að láta ekkert það koma fyrir sem getur skert frelsi okkar og öryggi. Islendingar hafa frá alda öðli barizt fyrir frelsi sínu og nú þegar sá stóri sigur er unnin, sem þjóð vor hefur lagt svo mikið í sölurnar fyrir, þá verður æskan að muna það, og gleyma aldrei að ætlunarverk hennar er, að taka við af þeim, er stjórna nú, og gæta þess að þjóðarréttur þessa lands verði ekki skertur um ókomna tíma. Æskan veit, að hér er ekkert gaman á ferðum, það sem unnist hefur á til hagsbóta þjóð vorri verður að halda vel á, og einnig verður að gæta þess, að utanað komandi öfl skerði ekki frelsi okkar á einn eða annan hátt. Allt hugsandi fólk vill, að landið bygg- ist og blómgist á lýðræðislegum grundvelli, og að engin erlend öfl skifti sér af stjórn og innanlands- málum þjóðar vorrar. Við íslend- ingar erum fyllilega færir um að stjórna og byggja okkar eigið land upp, ekkert síður en aðrar þjóðir. Meðan nýafstaðin heimsstyrjöld stóð yfir var ákaflega erfitt verk og vandamikið' fyrir þjóð vora að gæta hlutleysis síns. Eins og öllum er kunnugt settist hér erlent her- lið í landið, sem þó lofaði að hverfa af landi burt strax og styrjöldinni væri lokið. Nú er þetta setulið að nokkuð miklu leyti farið, þó ekki allt og er slíkt illa farið. Hér eiga engin erlend öfl að hafa nein ítök, hvorki beint né óbeint. Framtíðar- verk æskunnar er að gæta þess, að svo verði eigi í framtíðinni. Kjör- orð hennar á því að verða fyrst og fremst: Islands fyrir íslenzku þjóð- ina. Örn DÍNARFREGNIR Síðastliðinn miðvikudag voru til grafar borin, Tormóna Ebenezar- dóttir, háöldruð kona, móðir Magnúsar Vagnssonar, yfirsíldar- matsmanns og Magnús Magnús- son, sonur Magnúsar Vagnssonar og frú Valgerðar Ólafsdóttur konu lians. Magnús lézt eftir þunga sjúkraliúslegu. Hann var komungur maður, fæddur 1930. Það hefur því sérstaklega þung- ur harmur verið kveðinn að þessu heimili, þar sem tveir meðlimir fjölskyldunnar voru til grafar bornir í einu. t Á fyrra fimmtudag var jarð- sungin hér unglingsstúlkan Krist- jana Jóhannesdóttir, dóttir hjón- anna Sigurbjargar Pétursdóttir og Jóhannesar Jónatanssonar. Hún dvaldi í Reykjavík s.l. vetur, en vegna veikinda heima fyrir, ætl- aði hún að koma heim til foreldra sinna og annast heimilið. Á heim- leiðinni veiktist hún og dó á sjúkra liúsi Akureyrar eftir nokkra klukkustunda dvöl þar. Það er jafnan þungbært fyrir foreldra að missa börn sín í blóma lífsins. Það er því sár sorg þessara lijóna, sem nú hafa misst efnilega dóttur, sem bjartar vonir voru við tengdar. t í gær var til grafar borinn Sig- urður Benónýsson sjómaður 25 ára að aldri, sonur hjónanna Benónýs Benediktssonar og Sól- veigar Þorkellsdóttur. Það er nú skammt á milli þess, sem æsku- fólk þessa bæjar hverfur sjónum vorum, harmur ástvina sár og þungur. Við sem álengdar stönd- um, getxrni aðeins sent aðstand- endum þessa fólks, sem látist hef- ur undanfarið, samúð okkar og góðhug. „ÞRÆLLUNDUÐ GRUNNHYGGIN Þf Hvar haldið þið, góðir lesendur, að ofangrein orð sé að finna? Þau er að finna í greinarkorrii í Mjölnir, sem ber fyrirsögnina „Framkvæmd nýsköpunaráform- anna í Siglufirði.“ Og um hvern ætli þau séu nú? Jú, þau eru um siglfirzka kjósendur. Hvaða stétt manna er f jölmennust í Siglufirði? Verkamenn og launþegar. Það eru þessvegna þessir menn, sem að dómi Mjölnis, sem þó telur^ig for- svara þessara stétta, sem eru „Þrællunduð grunnhyggin þý.“ En eru þá allir siglfirzkir kjós- endur, að dómi blaðsins, undir sömu sök seldir? Önei, ekki þeir, sem kjósa EFTIR því, sem blaðið og stuðningsmenn þess leggja fyrir þá. Ef þeir velja sjálfstætt og hugsa sjálfstætt, þá eru þeir „þrællunduð, grunnhyggin þý,“ en ef þeir kjósa að vilja Þóroddar og Áka, þá er það að minnsta kosti ekki sagt upphátt. Þeir telja sig þessir herrar hafa heimild til þess að gefa syndaaflausn eins og pre- látar kirkjunnar gerðu í pápiskum sið. Sá er munurinn einungis, að þá voru gefin fyrirheit um eilífa sælu hinu megin, ef vel var goldið, en nú er aflausnin fólgin í loforð- um um einhverja sælu í þessu lífi, en það kostar nokkuð, sízt minna en í kaþólskum sið til forna, og helzt sannfæringuna að auki. En’í kaþólskum sið var líka til bann- færing, sem var í því fólgin að banna allt samneyti við trúaða menn og hlýðna. Og kommúnistar telja sig líka hafa yfir slíkum með- ölum að ráða. Og ef að ég og þú ekki gerum eins og þeir fyrirskipa, þá erum við „þrællunduð grunnhyggin þý“. Það er að vísu ekki ósjaldan sem sitt hvað birtist í Mjölnir, sem menn undast stór- lega, en ég tel vafasamt, að nokkurntíma hafi lengra verið gengið í frekju, ósvífni og taum- lausri lítilsvirðingu í garð kjós- enda, en gert var í þessari grein og hinum tilfærðu orðum. Það er viðtekin regla lýðræðis, að kjósendum beri að íhuga málin og allar aðstæður, áður en þeir fella dóm sinn um flokka og fram- bjóðendur. Þessvegna er það taum laus ósvífni í garð þeirra að stimpla þá svívirðilegum heitum og nafngiftum, ef þeir greiða at- kvæði samkvæmt sannfæringu sinni. Þar að auki hlýtur Mjölni að vera það ljóst, að mikill meiri hluti kjósenda mun aldrei greiða atkvæði eftir fyrirskipan, heldur eftir sannfæringu sinni. En það er lika ábyggilega þessvegna, sem blaðið reiðist og ræðst að siglfirzk- um borgurum með svívirðingum. En Siglfirðingar munu þakka fyrir kveðjurnar á viðeigandi hátt á sínum tíma. Kjósandi. VERKAFÖLK Munið að orlofsárið er úti um miðjan þennan mánuð. Látið ganga frá gömlu orlofsbókunum fyrir þann tíma, og takið nýju bækurnar á pósthúsinu fyrir 15. þ. m. Þá hafið þið nýju bókina við, þegar kaupgreiðsla fyrst fer fram á nýja orlofsárinu. FIMMTUGUR varð í gær Egill Stefánsson, kaupmaður. Egill er Siglfirðingum að góðu kunnur. Hann fluttist hingað frá Akureyri, og var fyrst við Sameinuðu verzlahirnar, en gerðist svo verkstjóri í síldarverk- smiðjunni Gránu og var þar í mörg ár. Síðan stofnaði hann eigin verzlun, og hefur rekið hana síðan. Egill Stefánsson hefur alLmikið komið við sögu bæjarins. Hann hefur setið í bæjarstjórn, og var varaforseti bæjarstjórnar síðasta kjörtímabil. Slökkviliðsstjóri hefir hann verið í mörg ár. Egill er söngelskur, og er meðlimur karla- kórsins Vísir, og formaður kórsins var hann’mjög lengi. Egill er al- þýðlegur í viðkynningu, glaður og ræðinn og starfsamur. Hann er giftur Sigríði Jóhannesdóttir, mestu atorkukonu. Blaðið óskar Agli allra heilla á þessum merku tímamótum mannsæfinnar.

x

Neisti

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neisti
https://timarit.is/publication/848

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.