Neisti - 05.09.1947, Blaðsíða 1
NEISTI
Útgefandi Alþýðuflokloiféiag
Siglufjarðar
Ábyrgðarmaður:
ÓLAFUR H. GUÐMUNDSSSON
Sigluf jarðarprentsmiðja h. f.
19. tbl. Föstudaginn 5. sept. 1947.
15. árgangur.
SÍLDVEIÐARNAR1947 HAFA BRUGÐIZT AÐ VERULEGU LEYTI
Sildveiðarnar eru búnar. Öll
snurpuskip hafa hætt veiðum og
veiði þeirra fáu skipa, sem stunda
reknetaveiðar, er rýr. Má því segja,
að séð verði, aðvertíðin hafibrugð-
izt, og að engu orðnar þær vonir,
sem menn gerðu sér um mikið gull
i ríkiskassann og gjaldeyrissjóð-
■■■<' inn af síldveiðunum. Útkoman er
vissulega ömurleg og harma hana
allir sannir fslendingar. Fjöldi
skipa er rekinn með fyrirsjáanlegu
tapi; verksmiðjurnar réknar með
tapi; síldarsöltunarstöðvarnar
reknar með tapi. Verkafólk í landi,
i verksmiðjum og á söltunarstöðv-
um gengur með skarðan hlut frá
borði, og sjómennirnir fá aðeins
umsamda tryggingu í flestum til-
J fellum. Síldveiðarnar og síldariðn-
aðurinn er orðinn svo snar þáttur
í atvinnul'ifi þjóðarinnar, að þegar
síld veiðist ek'ki, eða þegar vel
veiðist. þá gætir þess meira og
minna í öllum greinum þjóðfélags-
ins. Flutningar með skipum lands-
manna, eða leiguskipum, eykst eða
minnkar, og ailir fylgjast nú orðið
með gjaldeyrisvoninni, sem bundin
er við þennan atvinnuveg. En ein-
i mitt i ár var sérstaklega mikils um
vert fyrir þjóðfélagið að mikil síld-
veiði yrði. Ýmsar aðrar framleiðslu
vörur landsmanna voru seldar í
sambandi við síldarlýsi, og ékki
var unnt að selja sumar þeirra,
nema ákveðinn hluti síldarlýsis
kæmi á móti.
Einn er sá flokkur manna 'í þessu
landi, sem vill skella allri sök á
núverandi ríkisstjórn og telja
‘y þessir menn, að síldarleysið sé ekki
aðalmeinið, heldur seta núverandi
ríkisstjórnar og afskipti hennar af
afurðasölumálunum. Engum s'kyn-
sömum manni dettur í hug að saka
ríkjandi stjórnarvöld um aflaleysi,
enda mætti þá á það minna, að
aflaleysi var einnig í tíð fyrrver-
andi ríkisstjórnar. Hefur óspart
á það verið bent, að einmitt nú-
verandi skortur á gjaldeyrj væri
**-' vegna aflabrestsins á síldveiðunum
1945 og 1946. Þegar þar við bætist,
að treglega gengur með sölu ann-
ara afurða, og að verð þeirra fer
lækkandi, enginn gjaldeyrir fyrir
setuliðsvinnu, eða annað þess
háttar, þarf þá nokkurn að furða
i.
þó að nú sé tilfinnanlegur gjald-
eyrisskortur.
I sambandi við sölu íslenzkra
afurða hafa kommúnistar talið
það óhyggilegt af núverandi ríkis-
stjórn að selja aðrar afurðir í sam-
bandi við síldarlýsið. En einnig þar
var fyrirmynd frá tíð fyrrverandi
ríkisstjórnar. I samningunum við
Rússa 1946, kemur það fram, að
þeir vilja þvi aðeins taka frysta
fiskinn, að þeir fái tiltekið magn af
síldarlýsi. Á því ári tókst ekki að
selja til þeirra fuilt magn síldar-
lýsisins, þessvegna urðu þeir enn
kröfuharðari 1947, og tiltóku
ákveðið magn lýsis móti hverri
einingu freðfiskjar. Var þetta það
hart sótt af þeirra hálfu, að þeir
neituðu að taka við nokkrum ugga
freðfiskjar, fyrr en tryggt væri til-
svarandi magn síldarlýsis. Eru til
staðar um þetta óyggjandi stað-
reyndir, skjöl og skilríki, svo ekki
þýðir í móti að mæla. Hitt er fleip-
ur, en síendurtekið af kommúnist-
um, að Rússar hafi viljað kaupa
aðrar f ramleiðsluvörur landsmanna
og það við góðu verði. Er hér
aðeins um að ræða endurtékin ó-
sannindi þeirra ’í þeirri von, að ein-
hver kunni að festa á þau trúnað.
Hitt er svo annað mál, að það var
(Framhald á 2. síðu)
FISKYFIRTÖKUMAÐUR ÁKA JAKOBSSONAR
SKYTUR AFTUR UPP KOLLINUM
Enn er mönnum í fersku minni,
er Áki Jakobsson ætlaði að byggja
alla fjárhagslega afkomu þjóðar-
innar á viðtölum, sem hann átti
persónulega við fiskyfirtökumann,
sem hingað kom s. 1. haust frá
Rússlandi. Eins og fram kom hafði
þessi maður ekkert umboð til samn
inga eða samningaumleitana. Er
hann hafði lokið starfi sínu hér
við fiskyfirtökuna fór hann af
landi burt og hefur ekki til hans
spurzt síðan. Nýlega skaut þessi
maður þó aftur upp höfðinu, ekki
hér á landi 'í eigin persónu, heldur í
dálkum Mjölnis. Skilst manni helzt
á þeirri grein, að þessi maður hafi
mætt svo slæmu atlæti og umtali
hér á landi, að hann hafi orðið alls-
hugar feginn, að flýja á náðir
Bretanna, sem annars eru þó ekki
í hávegum hafðir í því blaði. En
þar sem þessi harmsaga er mörg-
um nokkuð undrunarefni, er ekki
úr vegi að rekja nokkur þau atriði,
sem kunn eru úr heimsókn þessa
dánumanns til vors kalda Fróns.
Maður þessi kom hingað til þess
að taka á móti freðfiski, sem Rúss-
ar keyptu af oss s.l. ár. Áka er
fremur vel til hinna gerzku, svo
sem kunnugt er, en ást hans til
vestrænna þjóða er öllu kaldari.
Fannst honum hér vel bera í veiði
að selja austrænum afurðir íslend-
inga, helzt allar, svo Bretar, Svíar,
og aðrir ómaklegir, fengju sem
minnst. Tók hann austanmanninn
tali og sat löngum á einmæli við
hann. Ólafur Thors hafði utanríkis
mál í sínu veldi, og þótti súrt, ef
maður sá hefði umboð til umræðna
um stórmál þjóða í milli, að ekki
skyldi hann til málþings kallaður.
Mun hann hafa góðfúslega bent
Áka á þetta. Brást þá Áki við og
kvaðst ekki ræða sölu lands og
réttinda, heldur aðeins sölu fiskjar
og fiskafurða. Ólafur mun hafa
talið réttara, að samninganefnd
utanríkisviðskipta ræddi við aust-
anmann. Það vildi Áki ékki þýðast,
enda fáir að hans skapi í þeirri
nefnd. Skipaði hann nýja nefnd og
veglega. Formaður var þar Ársæll
Sigurðsson, sérfræðingur kommún-
ista í utanríkisverzlunarmálum, en
auk hans voru í nefndinni þeir
Einar Sigurðsson frá Vestmanna-
eyjum og Ólafur Jónsson frá
Sandgerði. Eru þetta allt prúðir
menn og háttvísir í framgöngu.
Kvöddu þeir Rússann til fundar
við sig, en hann tjáði þeim þegar,
að hann hefði ekkert umboð stjórn-
ar sinnar til neinnar ákvörðunar.
Hinsvegar mun hann hafa tekið
(Framhald á 2. síðu)
HEILDARSÖLTUN
miðvikudagmn þ. 3. sept. 1947
Akureyri og umhverfi... 585
Dalvík ................ 1.859
Djúpavík .............. 2.790
Drangsnes ............... 818
Hofsós .................. 106
HólmaAÚk ................ 999
Hr'ísey................ 1.766
Húsavík ............... 2.835
Ingólfsfjörður .......... 173
Ólafsfjörður .......... 1.061
Raufarhöfn ............ 4.310
Sauðárkrókur ............. 50
Siglufjörður.......... 42.993
Skagaströnd.............. 440
Samtals 60.785
HEOARSDLTUN
í Siglufirði, miðvikud. 3. sept. 1947
Ásgeir Pétursson ............ 765
Bátastöðin ................ 1.648
Dröfn h.f.................. 1.496
Hafliði h.f................ 2.033
Hrímnir hd. ............... 1.337
Isafold s.f. .............. 1.584
Jarlsstöðin ............... 4.171
Kristinn Halldórsson ........ 491
Kaupfélag Siglfirðinga .... 1.220
Njörður h.f................ 3.613
Ólaf Hinriksen .............. 156
Pólarsíld h.f................ sgg
Pólstjarnan h.f............ 4.115
Reykjanes h.f.............. 1.991
Samv.fél. Isfirðinga ...... 3.073
Söltunarfélagið h.f........ 1.125
Söltunarst. J. B. Hjaltalín 1.343
Söltunarstöðin Drangey .... 1.549
Söltunarstöðin Nöf ........ 1.847
Söltunarst. Ól. Ragnars .... 1.902
Sölt.st. Sigf. Baldv....... 2.919
Sunna h.f.................. 3.727
Samtals 42.993
K.S.-ingar!
Fundur í 'kvöld kl. 8,30 í
Suðurgötu 10.
Mjög áríðandi
STJÓRNIN