Neisti - 23.04.1952, Síða 1
Siglufjarðarprentsmiðja h.f.
Jón Kjartansson bæjarstjóri,
sendir mér kveðju s'ina í Einherja
miðvikudaginn 2. apríl s.l. Hann
hefur gefið sér tíma' til þessara
ritstarfa, þrátt fyrir annríkið við
að gera upp tveggja ára saman-
dregna reikninga bæjarins. Eins
og vænta rná, getur J.K. ekki
stungið niður penna án þess að
ranghverfa sannleikanum, og er
ég þv.í tilneyddur að bera ljós að
nokkrum atriðum í grein hans.
BROTTREKSTTJR ALÞÝÐI FL,-
MANKA tJR STÖRFUM HJÁ
BÆNUM 1950.
Ekki datt mér í hug, að J.K.
hefði það hugrekki til að bera, að
hann treysti sér til að minnast á
þetta mál. Bezt hefði verið fyrir
hann og hinn ofbeldisfulla komm-
únistiska bæjarstjórnarmeirihluta,
sem hann þjónar, að leyfa tím-
anum óáreittum að draga úr áhrif
unum af óhæfuverkinu, og því
fordæmi, sem þeir hafa skapað,
með því að verða fyrstir til að
reka menn úr störfum vegna póli-
tískra skoðana. Þær eru nú að
mestu hljóðar og hóglátar kemp-
urnar, sem hæst reiddu til höggs
1 þessu máli og endirinn á þess-
ari „herferð gegn óþarfa eyðslu í
rekstri kaupstaðarins“ virðist
ætla að verða næsta örnurlegur,
en hann er í stórum dráttum
þessi. Þeir, sem áður höfðu mán-
aðarkaup, voru aftur ráonir á
föstu t'imakaupi, sem er hærra!
Eftir ódæma brölt og átök við að
reka stúlku, sem er í Alþýðufl. af
skrifstofu rafveitunnar, var hún
ráðin aftur og nú vill form. raf-
veitunefndar, Kristmar Ólafsson,
spara með þvi að fá fjórða mann-
inn á skrifstofuna til að ganga
frá reikningsuppgjöri fyrir raf-
veituna! Bæjarverkstjóri var ráð-
inn á ný, en rekinn aftur eftir
nokkra mánuði, en núverandi bæj-
arverkstjóri ráðinn af bæjar-
stjórnarmeirihlutanum ca. 5 mán-
uðum áður en staðan losnaði, sem
mun vera einsdæmi um manna-
ráðningar á Islandi. Samþ. var að
leggja niður starf aðstoðarhafnar-
varðar, en það framkvæmt á þann
hátt, að aðalhafnarvörður var rek
inn og settu kommúnistar aðstoð-
arhafnarvörðinn í starf hans
(sennilega til að tryggja viðskipti
við Rússa, eins og síðar kom á
daginn). Ekki er ósennilegt, að
„sparnaðurinn11 af þeirri ráðstöf-
un verði tuga eða jafnvel hundr.
þúsunda króna tap fyrir bæinn,
til viðbótar við það tugþúsunda
tjón, sem þegar er orðið.
Þá mun „sparnaðurinn‘ við
(bókasafnið vera á iþá leið ,að
tjónið af þeirri eyðileggingu á
safninu, sem bæjarstjórnarmeiri-
2. tbl. Miðvikudaginn 23. apríl ,52.
hlutinn hefur framkvæmt, mun
vera þó nokkuð mörgum sinnum
nieiri, en þær krónur, sem dregn-
ar voru af kaupi bókavarðarins.
Það nýjasta, sem skeð hefur í
„herferðinni gegn óþarfa eyðslu“
hjá bæjarstjórnarmeirihlutanum
er það, að Jón Kjartansson mun
hafa óskað ákveðið eftir að fá að
ráða fulltrúa fyrir sig á bæjar-
skrifstofuna. Yrði það sjötta fast-
ráðna persónan á bæjarskrifstof-
unni, fyrir utan tvo ígripamenn.
Mundi þetta létta nokkuð áhyggj-
um af bæjarstjóra, er hann þarf
að sitja flokksþing Framsóknar 'i
Reykjavík, eða sinna af skyndingu
erindum Sildarverksmiðja ríkis-
ins, sem oft getur orðið.
Þannig er „herferðin gegn
óþarfa eyðslu“ hjá bæjarstjórnar-
meirihlutanum. Munu ekki vera
dæmi fyrir öðrum eins öfugtökum
,í íslenzkum sveitastjórnarmálum,
enda ekki við öðru að búast en
endemum af þessum mönnum. Og
svo er Jón Kjartansson hissa á,
að á það skuli minnzt, þegar hann
cg félagar hans eru að beita póli-
tískum atvinnuofsóknum og skapa
fordæmi um sl'ikar aðíerðir síðar
meir. Honum finnst að.um þetta
eigi að þegja, af því að hann um
svipað leyti þarf að ræða við
vitamálastjórnina og Tryggingar-
stofnun ríkisins. Ef lýsing á verk-
um hans hefur orðið honum til
óþæginda, getur hann sjálfum sér
um kennt. Það er ekki mín sök,
þótt hann húðstrýki sig með eigin
vendi.
TOGARAKAUPANEFNDIN
„FRÆGA“.
Þá getur J.K. um grein, er ég
ritaði I Alþýðublaðinu 6. des. ’50.
Er Jón undarlega fáorður urn
grein þessa, segir einungis að til-
gangurinn með henni hafi verið
sá, að gera bæjarstjórnarmeiri-
hlutan tortryggilegan í augum
ríkisstjórnarinnar. En þar sem
bæjarstjóri er að jafnaði ekki til-
takanlega spar á málskrúð í deil-
um við okkur Alþýðufl.menn,
verður að álykta, að sérstök
ástæða sé fyrir hógværðinni. Og
ástæðan er þessi: I grein þessari
í Alþýðublaðinu birtist úrskurður
frá Félagsmálaráðuneytinu, sem
slýsti ógildar ofbeldisaðgerðir bæj-
arstjórnarmeirihlutans.
Saga þessa máls er í stórum
dráttum þessi. Haustið 1950 fór
að líða að þvi, að ákveða um
hverjir kaupa skyldu hina 10 ný-
sköpunartogara, er ríkisstjórnin
hafði í sm'iðum í Bretlandi. Leit
fremur illa út í byrjun með að
kaupendur fengjust, af því að
togararnir höfðu hækkað í verði
af völdum gengislækkunarinnar
20. árgangur.
og fleiri ástæðum. Leit því vel út
um tíma, að Siglufjörður gæti
orðið eigandi að einum þessara
togara, og kom jafnvel til tals
að selja Elliða og kaupa tvo hinna
nýju nýsköpunartogara, þótt
ekkert yrði úr þeirri fyrirætlun.
Bæjarstj.meirihlutanum mun
hafa verið ljóst, að það mundi
teljast allmikið afrek og verða
áberandi skrautfjöður í hatti
lians, að fá einn þessara nýsköp-
unartogara og frá byrjun litjð á
þetta sem sitt einkamál, og talið
sjálfsagt að útiloka Alþýðuflokk-
inn frá þátttöku í afgreiðslu
þess. Hafa þeir meirihlutamenn
vafalaust brotið heilann um
hvernig sú útilokun ætti að fram-
kvæmast, og hvort sem þær vanga
veltur hafa verið langar eða
skammar, þá varð niðurstaðan sú,
að þeir lögðu í að þverbrjóta
grundvallarreglur lýðræðislegra
kosninga og skipuðu og kusu
menn úr sínum flokkum eingöngu
í nefnd til að vinna að þessu máli.
Vitanlega gátu fulltrúar Alþ.fl.
ekki látið þetta viðgangast átölu-
laust, þar sem slíkt gerræði hefði
verið einkar heppilegt fordæmi
fyrir ofbeldisseggina um fleiri
álíka óhappaverk s'iðar meir. —
Þetta var því sent Félagsmála-
ráðuneytinu til úrskurðar, og féll
sá úrskurður á þá leið, að nefndar
kosning þessi, eins og hún var
framkvæmd, væri lagabrot og því
ógild.
En Framsóknarmaðurinn Jón
Kjartansson bæjarstjóri ,í Siglu-
íirði var ekki á því að fara eftir
úrskurði Framsóknarmannsins
Steingríms Steinþórssonar, for-
sætis- og félagsmálaráðherra. —
Hefur hann talið sigurvænlegra
fyrir pólitiska framtíð sína að
blíta þar frekar ráðum kommún-
istans Þóroddar Guðmundssonar,
hafa að engu úrskurð Félagsmála-
ráðuneytisins og standa ber að
þvi fyrir alþjóð að hafa brotið
þau lög, sem honum bar fyrst og
fremst skylda til að vernda. Enda
hældist Þ.G. mjög yfir því í
Mjölni, er heim kom, að þeir fé-
lagar hefðu framkvæmt eitt og
annað þrátt fyrir lögbrotið, og
leyndi sér ekki ánægjan yfir því.
Skrif mín og annarra Alþ.flokks
manna um þessar v'itaverðu að-
gerðir bæjarstjórnarmeirihlutans,
vill svo J.K. og meirihlutamenn
túlka á þá lund, að við höfum
verið andvígir togarakaupunum.
Gripa þeir til þessara ósanninda í
nauðvörn sinni, þvl af hálfu Ai-
þýðuflokksins hefur aldrei verið
um annað að ræða en fyllsta fylgi
við Jietta mál, sem og allt það
annað, er til atvinnuaukningar má
verða hér í bænum. ' ....
En um það, hvort þetta útilok-
unarbrölt þeirra kumpána hefur
skaðað álit bæjarins út á við, er
ekki gott að segja. En ekki þætti
mér ósennilegt, að allir, sem hafa
kynnzt þessum málum, hefðu á
Framliald á 5, síðu.
Umrœður um bæjarmál
SVAR TÍL JÓNS KJARTANSSONAR
Einn af mikilhæfustu borgurum
þessa bæjar Hannes Jónasson
bóksali varð 75 ára 10. apríl s.l.
Hingað til Siglufjarðar kom hann
fyrst á gamíárskvöld árið 1907,
og ætlaði aðeins að dvelja hér í
3 vikur. Það var gæfa Siglufjarð-
ar, að dvölin varð lengri, og hér
hefur Hannes Jónasson starfað í
44 ár og reynzt einn af beztu
borgurum þessa bæjar. Er saga
Siglufjarðar verður skráð mun
nafn Hannesar Jónassonar vera
þar skráð með gullnu letri fyrir
þau menningar- og framfarastörf,
sem hann hefur ynnt af hendi.
Pannes Jónasson var einn af rit-
stjórum gamla „Fram“. Hann var
fyrsti útgefandi blaðsins „Ein-
herja og ritstjóri hans á velmekt-
ardögum blaðsins. Hannes er
skáldmæltur vel. Um áraraðir
hefur-hann verið virðulegasti og
einn af öruggustu meðlimum
Stúkunnar Framsókn nr. 187, og
var hann heiðraður af stúkusyst-
kinum á síðasta fundi. Neisti flyt-
ur Hannesi Jónassyni og fjöl-
skyldu hans sínar beztu árnaðar-
óskir í tilefni af þessu merka
afmæli.
Þormoðiir Eyólfsson
RÆÐISMADUR — 70 ÁRA
Þormóður Eyólfsson, ræðismað-
ur átti sjötugsafmæli þ. 15. þ. m.
Þormóður er löngu þjóðkunnur
■maður fyrir afskipti sín af at-
vinnurnálum. Sat hann lengi í
stjórn Síldarverksmiðja ríkisins
og var um t.’ma formaður stjórn-
arinnar. Þá átti Þormóður sæti í
Bæjarstjórn Siglufjarðar um 16
ára bil og var eitt kjörtímabil for-
iseti bæjarstjórnarinnar. En einna
þekktastur mun Þormóður fyrir
\afskipti sín af menningarmálum
bæjarins og sem söngstjóri Karla-
kórsins Vísir um 23 ára skeið.
Þormóði var sýndur mikill og
verðskuldaður heiður í tilefni af
afmælinu. Vísir hafði afmælis-
konsert í Bíó við húsfylli áheyr-
enda og hóf á Hótel Hvanneyri
á páskadagskvöld. Á afmælisdag-
inn heimsótti Þormóð mikill f jöldi
manns, þ- á. m. Bæjarstjórn Siglu-
/fjarðar, Karlgkórinn V'isir og aðr-
ir kunningjar og vinir. Um kvöld-
ið var farin blysför að heimili
hans og hefur enginn siglfirzkur
iborgari verið heiðraður á þann
hátt fyrr. Söngmálasjóði, er ber
nafn Þormóðs Eyólfssonar, munu
(hafa borizt um 20 þús. kr. í tilefni
áf afmælinu. — Neisti flytur Þor-
/móði Eyólfssyni árnaðaróskir og
isérstakar þakkir fyrir giftudrjúg
menningarstörf hér í Siglufirði.
Páll Ásgrímsson
VERKAMAÐUR — 60 ÁRA
Páll Ásgrímsson, verkamaður,
Mjóstræti 2 átti 60 ára afmæli þ.
26. apríl s.l. Páll Ásgrímsson er
vel metinn og samstarfsmaður
góður. Hann hefur tekið virkan
þátt í störfum verkalýðshreyfing-
arinnar hér, og á nú sæti í stjórn
Kaupfélags Siglfirðinga. Neisti
flytur Páli árnaðaróskir í tilefni
af afmælinu.