Neisti - 10.03.1978, Qupperneq 1
Málgagn Alþýðuflokksins í Norðurlandskjördæmi vestrp
»
1. tölublað Föstudagurinn 10. marz 1978 47. árgangur
Munið
prófkjörið
laugardag og sunnudag
Forsíðu
leiðari
Hvað hefur
þetta fólk
*
gert ykkur ?
Það verður aldrei með réttu sagt að undanfarin ár hafi ekki
verið hægt að stjóma efnahagsmálum þjóðarinnar vegna
heimtufrekju hinna lægstlaunuðu í landinu.
Þetta fólk hefur með réttu ásakað forystumenn sína fyrir
linkynd í samningum um launakjör þess. í fyrra tókst í alls-
herjarsamningum að fá nokkrar launabætur og kaupmáttar-
aukningu fyrir þetta fólk og þótti öllum sanngjömum
piönnum það rétt, enda innan þess efnahagsramma, sem
settur hafði verið af reiknimeisturum kerfisins og gjaldþol
atvinnuveganna átti að þola.
Forsvarsmenn láglaunafólksins lýstu því loksins yfir á
margvíslegan hátt, að það yrði ekki þolað að gengið yrði á
eða hróflað við þessum samningum. í þessu sambandi er rétt
að láta hér fylgja ályktun 8. þings Verkamannasambands
íslands um kjaramál:
„8. þing Alþýðuþsambands íslands ítrekar þá afstöðu sína
að ef ráðist verður á kjarasamningana, þá hrindi verkafólk af
höndum sér öllum kjaraskerðingum eða kjaraskerðingará-
formum, með hörðustu gagnaðgerðum er verkalýðshreyf-
ingin hefur yfir að ráða“.
Allt láglaunafólk í landinu var hjartanlega sammála þess-
ari ályktun. Þessi samþykkl var alvarleg aðvörun til ríkis-
stjómarinnar að rifta ekki gerðum samningum.
En Adam og Eva voru ekki lengi í paradís. Fyrir nokkru
gerðu Sjálfstæðis- og Framsóknarmenn á Alþingi þessa
samninga að engu.
Þá voru laun verkafólks i hraðfrystihúsunum kr. 663.00 á
tímann eða vikulaunin 26.520.00, eða um 25.105.00, þegar
dregið er frá stéttarfélagsgjald og greiðslur til lífeyrissjóðs.
Nú eiga laun þessa fólks að lækka um 124 þús. kr. á næstu 10
mánuðum eða um 11.400. kr. að jafnaði á mánuði og í janúar
1979 er kaupránið orðið 17 þús. á mánuði, frá gerðum
samningum.
Nú er spurt: Hvað hefur þetta fólk gert núverandi vald-
höfum íhalds og framsóknar?
Er það þetta fólk, sem hefur tekið þátt í fjármálahneyksl-
unum undanfarna mánuði?
Er það þetta fólk, sem lagt hefur ólöglega hundruð mill-
jóna króna í erlenda banka?
Er. það þetta fólk, sem stöðugt er að braska með fjármuni
þjóðarinnar?
Nei, og aftur nei. Hlutskipti þessa fólks hefur verið aó
erfiða og halda þjóðarskútunni sjóhæfri á sama tíma og alls-
konar brask og misrétti hefur blómgast og dafnað undir
stjóm íhalds og framsóknar.
Forráðamenn íhalds og framsóknar vilja vafalaust sýna
þjóðinni fram á, að þeir séu hinir snjöllu stjómendur, sem
hafi úrræði og þor til að beita þeim. Óhugsandi er að slíkt
framferði, sem áður er greint frá, snerti ekki siðferðiskennd
almennings og fólk eigi erfitt með að átta sig á klækjúm
réttarríkis, þegar unnt er að gera slíkar aðgerðir og allt á að
heita löglegt.
Eitt hafa öll þessi mál sannað: Núverandi ríkisstjóm er
algjörlega ófær til að stýra samskiptum launþega og at-
vinnurekenda. Þessi ríkisstjóm má ekki koma nærri vinnu-
deilum, smáum eða stórum, án þess að koma af stað illdeil-
um. Hún er sönn íhalds- og afturhaldsstjóm.
Fyrsta opna prófkjörið í Siglufirði
Prófkjör Alþýðuflokksfélags Siglufjarðar um skipan í
6 efstu sæti á lista Alþýðuflokksins við bæjarstjórnar-
kosningarnar í vor fer fram á morgun laugardaginn 11.
marz kl. 14— 18 og sunnudaginn 12. marz kl. 14— 18.
Kjörstaður verður að Borgarkaffi.
Atkvæðisrétt hafa alllr íbúar Siglufjarðar, 18 ára og
eldri, sem ekki eru flokksbundnir í öðrum stjórnmála-
flokkum.
Vérður fróðlegt að fylgjast með viðbrögðum Siglfirð-
inga við þessari viðleitni Alþýðuflokksins, til þess að
auka hlutdeild þeirra um val frambjóðenda hans.
Nokkurrar eftirvæntingar gætir í röðum hinna stjórn-
málaflokkana í bænum um úrslit prófkjörsins.
NEISTI, hvetur allt alþýðuflokksfólk að duga sem bezt
í þessu prófkjöri, og sanna með því að það sé rétt, að
færa ákvörðum um val frambjóðenda meira til fólksins
en verið hefur.
Siglfirðingar! Ykkarervalið