Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.01.1905, Qupperneq 9

Freyr - 01.01.1905, Qupperneq 9
I’REYR. 5 Landshagsskýrslurnar fyrir árið 1902 telja öll tún landsins 2,99 □ mílur. Eftir því ætti meðal túnstærð að vera lakar 8 vallardagslátt- ur. Þessar tölur eru svo langt frá því að geta verið réttar, að nærri sanni mun láta að margfalda þær með tveimur. —- Matjnrtagarð- ar eru taldir i sömu skýrslu 0,5 □ míla, eða rúmlega eins stórir og ' i(i hluti túnanna. Hvort þessi tala er of lág eða of há skal ég láta ó- sagt, en hitt er mér nær að halda, að þegar frá eru reiknuð nokkur kauptún og sjávarþorp, megi ferðast um alt landið til þess að finna matjurtagarð, sem er eins stór og sjötti hluti túnsins. Víðast hvar eru þeir aðeins litlar holur borið saman við túnin, og í heilum hér- uðum engir eða því sem næst. -Eins og áður er sagt eru túnin í Múlasýsl- um yfirleitt litil. Þetta er í fullu samræmi við það, sem sagt er um nautgripafjöldann í kafl- anum um búpeningsrækt, því eftir þvi sem ég fæ hezt séð, er það regla hér á landi, að stærð túnanna standi íjnokkurnveginn réttu hlutfalli við nautgripaeignina. Undantekning frá þess- ari reglu gjöra þó Jþau hygðarlög, þar sem mikið er af góðum starengjum eins og t. d. í Ölfusi, Flóa og meðfram Safamýri. Þetta sam- hand millum túnræktarinnar og nautgripafjöld- ans verður skiljanlegt, þegar þess er gætt að túnrækt án áburðar er ómöguleg, og að mykj- an hefir verið og er aðaláburður túnanna á öllu landinu. Að vísu getur sauðatað og hrossatað verið ágætur áburður; gæðin fara eftir því hversu vel hrossin og sauðféð er fóðr- að. Hjá oss gengur megnið af hrossunum úti nær því alt árið, og þegar þau eru inni, er fóðrið venjulegast lítiðVjg lélegt. Hrossatað er því viðast hvorki mikill né góður áburður, og þýðing þess fyrir túnræktina þar af leiðandi óvíða mikil. Af sauðataði fellur mikið til ár- lega nær því alstaðar á landinu, og fer það eftir fjárfjölda, útigangi o. s. frv. En því miður njóta túnin að eins lítils hluta af þessum rnikla og góða áburði, megninu af því erbrent. Og þetta á sér einmitt stað í Múlasýslum, þar er sauðatað aðal-eldsneytið, og í sumum sveit- um nær því það einasta. Sjálfsagt stafar þetta nokkuð af því að sumstaðar er erfitt um mó- tak t. d. víða á Upp-Héraði. Aðalorsökin er þó óefað gamall ávani, og það, að bændum er ekki fullljóst, hvað sauðataðið er afardýrt elds- neyti. Yæri þeim þetta fuilljóst, er ég í eng- um vafa um að flestir þeirra mundu alveg hætta að brenna sauðataði eða þvi sem næst. Stærst og fallegust tún sá ég á ferðinni á Höskuldsstöðum í Breiðdal, Brekku í Mjóa- firði, Dvergasteini, Vallanesi, Klaustri og Bustarfelli í Vopnafirði, öll um og yfir 30 dag- sláttur. Mjög óvíða eru tún girt í Múlasýslum. I öllum Breiðdalnum t. d. aðeins eitt. A Hér- aði eru tún girt á stöku stað, þó tiltölulega mjög óvíða. I Vopnafirði hafa eigi allfá tún verið girt með torfgarði fyrir mannsaldri síðan. Nú eru þær girðingar eyðilagðar að mestu. Á stöku stöðum er farið að nota gaddavír til túngirðinga að einhverju ieyti, einkanlega í fjörðunum. Túnasléttun er skamt, á veg komin, en all- víða eru tún að meiru eða minna ieyti slétt frá náttúrunnar hendi. Ahugi á jarðabótum hefir vaknað mikið seinna á Austurlandi en i öðrum hlutum landsins. Mestallar jarðabætur þar stafa frá seinustu 10 árum eða þó öllu fremur seinustu 7 árum. Til þess að sanna þetta set ég hér samanburð á jarðabótum bún- aðarfélaga í Múlasýslum og Norðuramtinu. Eg hefi valið Norðuramtið tíl samanburðarins, af því að þar eru hér um bil sömu skilyrði fyrir jarðabótum frá náttúrunnar hendi og í Múla- sýslum. Samanburður á jarðabótum búnaðarfélaga í Múlasýslum og Norðuramtinu. 6X5 O cð JO ci a -a FQ Pélagatal Jarðabæturí dagsverkum FQ *Cð fi ■s § g s ífri •Cð ■a . GQ 5? 60*° o Norðuramtið co 538 9627 1690 18 5,7 Múlasýslur . 00 n 35 607 533 17 1,1 Norðuramtið r^* 37 705 18036 1935 26 9,3 Múlasýslur . 00 6 76 1560 682 21 2,3 Norðuramtið CM 36 670 16360 1863 24 8,8 Múlasýslur . 05 **H 15 221 6559 717 30 9,1

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.