Einherji


Einherji - 08.02.1945, Side 1

Einherji - 08.02.1945, Side 1
 J5lai) Jfratttsóímarmantta tJ&újUtftrðt EINHEBJI Blað Framsóknar- inanna í Siglufirði. Ábyrgðarmaður Har. Hjálmarsson Bia’SiS kemur út annan- hvern fimmtudag. Áskriftargjald kr. 6,00 árgangurinn. 1 lausasölu 25 aura eint. XIV. árgangur. Fimmtudaginn 8. febrúar 1945 3. tölublað Skattatrumvörp ríkisstjórnarinnar Fáheyrð skattníðsla á þá minni máttar, en stór- gróðanum hlíft. Veltuskatturinn getur fallið á tap- rekstur og stórhagnaður er undanþeginn tek juskatt- aukanum. Veltuskatturinn er refsiskattur á aðra en þá, sem stórgræða!! Veltuskatturinn settur á til þess að ná kaupfélög- unum líka og með því láta neytendur sjálfa greiða skattinn, sem þá verður í raun réttri neyzluskattur, en neyzluskattar koma þyngst niður á barnfhstu (oftast fátækustu) heimilunum. Ríkisstjórnin hefur lagt fram 3 skattafrumvörp: veltuskatts- frumvarp, útflutningsskatt á tog- arafisk, 2% af söluverði fiskjar, sem veiddur hefur verið í skip, sem selur hann í erlendri höfn, og hækkun á aukatekjum ríkissjóðs, en áður hafði ríkisstjórnin borið fram tekjuskattshækkun á hærri miðlungstekjur, en nær ekki til þess hluta teknanna, sem er yfir 200000 kr. Af þessum sköttum er áætlað ,að veltuskatturinn nemi um 10 milljónum, togaraskattur- inn 2,1 milljón króna, hækkun aukatekna 2,8 milljón króna, tekjuskattsaukningin um 6 millj- ónir, eða allir þessir skattar um 21 milljón króna. Af sköttum þessum verður að- eins veltuskatturinn og tekju- skattsaukinn krufinn að nokkru til mergjar. I. VELTUSKATTURINN: Ríkisstjórninni, sem nú situr, verður alls ekki legið á hálsi fyrir áð auka skattana. Að vísu hefði hún getað sýnt meiri sparnað í útgjöldum, en þó ekki svo, að nauðsyn væri ekki á megin hluta þessarar skattfjárhæðar .Hitt er hún aftur á móti ámælisverð fyrir, hvernig hún aflar þessara skatta, livemig hún leggur skattana á all- an almenning. Alveg sérstaklega á þetta við um veltuskattinn: Veltuskattinn, 1—1M>%, á að leggja á alla verzl- unar- og viðskiptaveltu í landinu á þessu ári, á heildsölu, umboðs- sölu (1—iy2%), en 1% á smá- söluveltu, á veltu iðnfyrirtækja, smíða og viðgerðaverkstæða og öll önnur fyrirtæki, sem selja vöru eða vinnu með álagningu, t. d. á veltu skósmiða, viðgerðarverk- stæða, raflagningarmanna, tré- smíðaverkstæðisvinna, járnsmíða- verkstæðisvinna, mál'ningaverk- stæðisvinna o. fl. o. fl. háttar verk- stæðisvinnu, ef lagt er á vinnuna sjálfa. Þetta er því eigi skattur á burgeisana, þótt hann sé kallaður verzlunarskattur, sem hann er ekki nema að litlu leyti. Veltuskatturinn er ekki frádrátt arbær við ákvörðun annarra skatta á tekjur og óheimilt að leggja hann á vörur. Undanþágu frá skattinum getur fjármálaráð- herra veitt með reglugjörð. Veltuskatturinn er lagður á velt- una, jafnt hvort stórgróði er á veltunni eða stórtap. Getur nokk- ur íslendingur neitað því, að slíkt mælir á móti allri sanngirni og réttlæti ? Hann er líka lagður jafnt á veltu verzlunar með lífsnauð- synjar og á veltu glysvarnings- verzlunar og verzlunar með ó- þarfa og í raun réttri kemur hann vægar niður á glysvarningsverzl- uninni en verzlun, sem verzlar með lífsnauðsynjar. Lífsnauðsynja- verzlunin þarf að hafa mikla veltu til þess að forðast tap. Glys- varningsverzlunin má leggja meira á og hún getur því stórgrætt á þeirri veltu, sem færir lífsnauð- synjaverzluninni tap. Veltuskatt- urinn er því léttbærastur á stór- gróða og lendir minnst á óþörf- ustu verzlunum, alveg gagnstætt því sem vera skyldi. Hann lendir harðast á lífsnauðsynjaverzlunum, einmitt þar sem sízt skyldi (sbr. (Framhald á 2. síðu) Verður um heimsflugið ísland? Eins og kunnugt er var alheims flugmálaráðstefna haldin í Chica- go í vetur og þar gerðar margar og merkar samþykktir um alþjóða- flugsamgöngur eftir heimsstyrjöld ina. Sátu fulltrúar 52ja þjóða — þar á meðal 4 fulltrúar Islands — ráð- stefnu þessa. Talið er, að um 2 aðalleiðir verði að ræða frá Ameríku eftir heims- styrjöldina: frá Ameríku beint til Skotlands og þaðan aftur til baka til Ameríku um ísland (sennilega um suðurhluta íslands, Reykjanes flugvöllinn). Yrði þetta hraðferð, farin af hraðfleygum risaflugvél- um. Hin leiðin er talin, að verði: frá Ameríku um Grænland og Is- land, héðan til Skotlands, þaðan til baka um ísland og. Grænland til Ameríku. Þessa leið myndu minni flugvélar fara, sem geta ekki flog- ið jafn langt milli viðkomustaða með ferðafólk, er vildi sjá sig um og ef til vill dvelja einhvern stutt- an tíma á norðurslóðum og kynn- ast norðrinu. Allar líkur eru til þess, er flug- samgöngum þessum hefur verið komið í gott horf, að ísland verði mikið ferðamannaland. Þurfa Is- lendingar þv íað vera ekki með öllu óviðbúnir að taka á móti gestum. Sennilega þarf að byggja stór ný- tízku veitingahús nálægt Keflavík og í Reykjavík, einnig minni við Gullfoss, Geysi, Ásbyrgi (Hall- ormsstað eða annarstaðar á Héraði). I Reykjavík þyrfti stórt nýtízku veitingahús og gistihús að koma, hvort sem væri. Einherji telur, að taldir séu þeg- ar dagar einangrunarinnar, sem voru beztu verðir Islandi, og vörn- uðu þess að það komst ekki undir yfirráð stórþjóðanna. Hins vegar er frelsi Islands í framtíðinni háð viturlegri samvinnu við alþjóða- samtök. Vegna sameiginlegra sjónarmiða um stjómfrelsi, kosningafrelsi og einstaklingsfrelsi innan takmarka, sem ríkisheildinni eru eigi skaðleg — skyldleika og fl. er eigi nema eðlilegt, að Island hugsi sérlega til samvinnu við hinar Engilsaxnesku stórþjóðir. Hitt verður Islenzka þjóðin og fulltrúar hennar að láta hina voldugu stjþrnarherra hinna Engilsaxnesku stórþjóða vita, að Islendingar sækjast svo fremi eft- ir samvinnu við hina Engilsax- nesku frændur sína, að Islending- ar haldi fullu frelsi sínu og þjóð- (Framhald á 2. síðu)

x

Einherji

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Einherji
https://timarit.is/publication/788

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.