Einherji


Einherji - 06.04.1945, Síða 1

Einherji - 06.04.1945, Síða 1
EINHERJI Blað Framsóknar- manna í Siglufirði. Ábyrgðarmaður Har. Hjálmarsson BiaSiS kemur út aunan- hvern fimmtudag. Áskriftargjald kr. 10.00 árgangurtnn. I lausasölu 25 aura eint. XIV. árgangur. Föstudaginn 6. apríl. 1945. 7. tölublað. Síldarsöltun og % síldarverzlun Sigluf jörður er, verstöð og hefur verið það, frá því að Norðmenn hófu hér síldarsöltun. Smátt og smátt hafa þó verstöðvareinkennin verið að mást út í svip og útliti bæjarins, en í atvinnulífinu haldast þessi verstöðvareinkenni stöðugt, enda hafa þorskveiðar, er héðan voru talsvert stundaðar haust og vor, stöðugt dregizt saman. Stendur mönnum, sem vonlegt er, mikil ógn af hinu langvarandi og almenna atvinnuleysi, er hér. ríkir haust og vetur og jafnvel fram á vor. Hafa Siglfirðingar mikið rætt og ritað um nauðsyn þess að koma upp nýjum atvinnu- greinum hér, til þess að bæta úr þessum mjög svo ömurlega ástandi en því miður, lítt hafizt handa, til mæna löngum vonaraugum til þings og stjórnar um úrlausn þessa mikla vandamáls. Núverandi heimsstyrjöld hefur, svo sem öllum er kunnugt, fleytt miklum gróða á land víða á landi hér, þótt Siglufjörður hafi orðið allmikið útundan í þeim efnum. Enda hefur mjög dregið úr einni aðalgrein atvinnulífsins hér á Siglufirði, síldarsöltuninni, sökum þess, að markaðir vorir hafa flestir algjörlega lokast vegna stríðsins. Þess er nú að vænta, að þessl arðgæfa atvinnugrein verði nú brátt tekin upp aftur af fullum krafti, og verða því Siglfirðingar að vera viðbúnir að markaðir vorir fyrir síld opnist nú á komandi sumri, og er nú mál til komið að hefja undirbúning af fullum krafti og alvöru, til að taka á móti silfr- inu úr hinni miklu námu Siglfirð- inga, græði. En við þenna undirbúning verða Siglfirðingar að gera sér 1 jóst, hvar þeir ætla að o standa, er ,,nýskipan“ þeirra atvinnu- greina, er síldarsöltun hljóta að fylgja, verður gerð í nánustu fram tíð. En atvinnugreinar þessar eru meðal annars, síldarverzlun og tunnugerð. Það skiptir miklu fyrir Siglfirð- inga að þeir velji sér rétta stöðu við háborð þessara þýðingarmiklu atvinnugreina. Ætla Siglfirðingar að verða húsbændur á sínu heimili og herrar yfir síldarpöllunum hér í framtíðinni, eða ætla þeir að lúta öðrum og vera þjónar aðkomu- manna, eins og átt hefur sér stað, að langmesta leyti, allt frá því að Norðmenn hófu síldarsöltun hér? Fyrsta skilyrði til sæmilegrar afkomu okkar Siglfirðinga er, að hver og einn, sem vettlingi getur valdið, ungir sem gamlir, karlar og konur, hafi aðstöðu til að hafa uppgripa atvinnu yfir sumarið. Þessa aðstöðu geta Siglfirðingar öðlast í framtíðinni, því aðeins, að Siglfirðingar sjálfir, eða menn kosnir af þeim, stjórni atvinnu- tækjum þeim, sem hér verða rekin í framtíðinni. Þetta var ein af veigamestu á- stæðunum fyrir því, að bærinn átti sjálfur að endurbyggja „Rauðku,“ en ekki selja ríkinu hana. Enda var stórt spor stigið með þeirri framkvæmd, í áttina til þess, að skapa sem flestum Sigl- firðingum uppgripa atvinnu að sumrinu. Sú framkvæmd þoldi heldur enga bið, bæði vegna hins ömurlega ástands^ síldveiðanna, veiðibanna og löndunarstöðvanna, og svo einnig hins ískyggilega út- lits um atvinnuhorfur 60 heimilis- feðra Siglfirðinga, sem atvinnu höfðu við verksmiðjur bæjarins, „Gránu og Rauðku,“ enda hefði það verið frá siðferðislegu sjónar- miði mjög rotið og ómaklegt, ef Siglufjarðarbær hefði ekki tryggt góða afkomu þessara manna í fram tíðinni, svo mikinn gróða, sem þeir voru búnir að vinna bænum inn í verksmiðjum þessum um mörg ár. Hin miklu vinnuafköst þeirra og vfðurkennda starfsþjálfun átti önnur verðlaun skilið-en þau, að þeir yrðu sendir í hin og önnur vinnusnöp. Framhald á 2. síðu Sigurjón Siprðsson SEXTUGUR Næsta sunnudag, 8. þ. m., verður Sigurjón Sigurðsson, fyrrverandi ökuþór, sextugur. Hann er fæddur á Kaupangs- bakka í Kaupangssveit 8. apríl 1885. Foreldrar hans voru þau Guðrún Jóhannsdóttir og Sigurður Sigurðsson, sem Siglfirðingum er að góðu kunnur. Bjuggu þau hjón- in aðallega á Kaupangsbakka og Þórustöðum í sömu sveit. Á 4. árinu flutti Sigurjón frá Kaup- angsbakka og til Þórustaða með foreldrum sínum. Ólst hann þar upp. 21. árs fór hann þaðan til Akureyrar, var þar 2 ár. Fór það- an 1909 til Siglufjarðar og var hér við ýmsa vinnu. Eftir 5 ára dvöl hér fluttist hann héðan til Lambanesreykja og bjó þar með dugnaði og myndarskap í 2 ár, þótt fátækur væri. Síðan seldi hann jörðina og flutti aftur til Siglu- fjarðar og hefir búið hér síðan, lengst af sem „næststærsti“ öku- þór bæjarins.mema uppá síðkastið. Því lengur, sem menn þekkja Sigurjón, finna menn betur og betur hinn góða og duglega dreng, sem veitir öðrum hlýju og yl við kynninguna. Heill sé þér Sigurjón! „Glaður og reifur skyli guma hver“ o. s. frv. Það er regla, sem ég hygg, að vel eigi við þig. Lifðu vel og lengi, margir Sigl- firðingar munu hugsa til þín hlý- lega næsta sunnudag og árna þér allra heilla. Kunningi RAUÐKA Síðustu fréttir herma, að allt efni og vélar muni koma í tæka tíð til Rauðku, ef ekkert óvenju- legt beri að höndum. Það má því ganga út frá, að Rauðka komizt upp fyrir byrjun síldarvertíðar næsta sumars, ef ekkert óvenju- legt ber að höndum. Sigifirðingar! Það verður ekki aðeins 5 þúsund máia Rauðka held- ur 7—8 þúsimd mála, sem kemur upp í siunar! Skeidsfoss Rafstraumur frá Skeiðsfoss kom til bæjarins á skírdag, 29. f. m. Er vonandi, að það marki víðtæk tímamót í sögu bæjarins. Hefir verið sett upp ein s vélasamstæða, 1500-1800 ha, sem framleitt mun geta um 2350 ha, þegarstiflan verður hækkuð um 6 metra, sem áformað er að gera í sumar. I ráði er, að önnur vélasamstæða verði sett upp í shmar eða haust upp á nærri 3600 hö. og á þá allt afl stöðvarinnar að verða nálægt 6 þús. hestöfl. Einherji mun síðar greina nánar frá málinu.

x

Einherji

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Einherji
https://timarit.is/publication/788

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.