Einherji - 16.11.1946, Side 1
EINHERJI
C/oð Framsóknarmanna
í Siglufirfii
Blaðið kemur út •
annan livern
laugardag.
Ábyrgðarmaður:
fíagnar Jóhannesson
Áskriftargjald kr. 10
árgangurinn.
I lausasölu 25 aura.
15
. árgangur
Siglufirði, laugardaginn 16. nóv. 1946
21. tölublað
NÝR BÆJARSTJORI RÁÐINN ! STAÐ
HALLGRÍMS DALBERGS
Kommúnistar munu heimta ný.jar bæjarstjórnar-
kosningar — segir Mjölnir.
Hver verður afstaða bæjarfulltrúa Sjálfst.flokksins?
Á bæjarstjórnarfundi þann 6.
þ. m. var nýr bæjarstjóri ráðinn 1
stað Hallgríms Dalbergs, sem
gegnt hefir því starfi undanfarið.
Fyrir valinu varð hr. Gunnar
Vagnsson viðskiptafræðingur,
hlaut hann þó aðeins 4 atkv. við
Læjarstjórakjörið (Alþ.fl.m. og
Frams.m.) Aðrir umsækjendur um
stöðuna voru þeir Báður Jakobs-
son lögfræðingur og Sölvi Blöndal
hagfræðingur. Illaut' hinn síðar-
nefndi 3 atkv. (kommúnista) en
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins skil-
uðu jafnan auðum seðlum í þau
þrjú skipti, sem kosið var um
bæjarstjórann.
Afstaða Sjálfstæðism. í þessu
mikilsverða máli er vægast sagt
einkennileg. Fyrir almenningi mun
hún þó rökstudd á þá lund að um-
sækjendur um bæjarstjórastöðuna
séu fulltrúunum með öllu ókunnir,
og Sjálfstæðismenn hafi ekki verið
ánægðir með neinn þeirra.
í nýútkomnum Mjölni er það
boðað, að kommúnistar muni
„beita sér fyrir þv'í að óska eftir
við ríkisstjórnina að nýjar kosn-
ingar fari fram“, á Siglufirði til
að binda enda á ófremdarástand
það, sem nú er. Er ekki að efa,
að kommúnistum gengur gott eitt
til með þessum bollaleggingum sín-
um, ekki síður en þegar þeir ráku
70 Siglfirðinga úr KFS á sínum
tíma til heilla fyrir kaupfélagið,
eins og þeir töldu það vera. En
Einherji leyfir sér að spyrja: Hver
verður breytingin með nýjum
bæjarstjórnarkosningum ? — Hún
verður engin! — Útkoman verður
nákvæmlega hin sama og var við
síðustu bæjarstjórnarkosningar,
þ. e. a. s. styrkleiki flokkanna
verður hinn sami. — Ef til vill
vonast kommúnistar eftir því, að
Hertervigs-lið Sjálfstæðisflokksins
— bjóði fram sjálfstæðan lista og
þeim takist þannig opinberlega að
kljúfa Sjálfstæðisflokkinn, en
annar verður ekki árangurinn.
★
Hugmyndum sinum um nýjar
kosningar geta kommúnistar ekfci
„Vegir skiplast. — Allt fcr gmsar leióir
inn á fgrirheitsins lönd.
Einiim lífiö arma breiöir,
öSrum dauöinn réttir hönd."
Árla dags, þriðjudaginn 5. nóv.
s.l. vildi það slys til austur í Horna-
firði, að nýr Svíþjóðarbátur Borg-
ey að nafni, sökk skyndilega og
fórust þar fimm manns. Þrír menn
komust af og var bjargað af bát-
um, sem ikomu frá landi.
Þeir, sem fórust með skipinu
voru þessir:
Sigurður Jóhannsson, skipstjóri,
Ólafur Sigurðsson, vélstjóri,
Páll Bjarnason, háseti,
Rögnvaldur Ákason, matsveinn,
Kristín Þorláksdóttir frá Breiða-
dalsvík, 15 ára gömul. Hún var
farþegi með skipinu.
komið í framkvæmd nema fá sam-
þykkt í bæjarstjörn vantraust á
Gunnar Vagnsson — enginn sem
þekkir vinnubrögð þeirra efar að
þeir hafa sl’ikt í hyggju, enda þótt
engin reynsla sé komin á Gunnar
Vagnsson sem bæjarstjóra.
Styöja fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins slíkt vantraust? Það er
spurning sem margan fýsir að fá
svar við.
Almennt er litið svo á, að Sjálf-
stæðismennirnir, sem mættu á
fundi þeim, er bæjarstjórakjörið
var til afgreiðslu á, og gerður hefir
verið hér að umræðuefni — hafi
ekki af innanflokksastæðum viljað
bera ábyrgð á bæjarstjóranum,
sem kjörinn var, en hinsvegar vita
allir, að Pétur Björnsson og Egill
Stefánsson hafa of mikla ábyrgðar
tilfinningu til að bera, til að vera
með ástæðulausu vantrausti á hinn
nýkjörna bæjarstjóra þegar í upp-
hafi starfs hans. Með tilliti til
þess mun kommúnistum ekki tak-
Veður var ekki mjög slæmt, er
skipið fórst, þó sjór væri all mikill.
Borgey var 90 rúmlestir að
stærð og eign samnefnds hlutafé-
lags í Hornafirði.
f f ý
I kvöldfréttum útvarpsins s.l.
laugardagskvöld var skýrt frá
þeim hörmulega atburði, að þann
dag hafi bóndinn að Ási í Fellum,
Guttormur Brynjólfsson, orðið
fyrir sprenginu og beðið bana af,
ásamt tveimur litlum dætrum s’in-
um og einni bróðurdóttur. Atvik
þetta skeði nærri bænum, en með
hvaða hætti er ókunnugt, þar sem
enginn er til frásagnar.
Bóndinn að Ási kom frá því að
gá að kindum. Þegar hann var
kominn það nærri bænum, að til
ferða hans sást hlupu litlu telp-
(Framhald á 2. síðu)
(Framhald á 2. síðu)
HORMULEG T i Ð!N D I
9 manns fórust af slysförum í síðustu viku.
im,ffim
Þakka lijartanlega fyrir auð-
sýndan vinarhug og árnaðaróskir
á afmælisdegi mínum 5. nóv. s.l.
ÓSKAR J. ÞORLÁKSSON
Vaxtabréf
Stofnlánadeildar
sjávarutvegsins
Sala þessara bréfa nam þann 12.
þ. m. 5tó milljón króna. — Betur
má ef duga skal. —
Nýlega var birt yfirlit yfir
hvernig sala vaxtabréfanna skipt-
ist milli kaupstaða og kauptúna i
landinu og vissulega vorum við
Siglfirðingar þar 'i tölu þeirra, sem
minnst höfðum keypt. Getum við
ekki hert róðurinn? Keypt fleiri
bréf og þar með lagt góðu máli lið
og tryggt um leið fjármuni vora
því vaxtabréfin eru tryggð með
ríkisábyrgð og eru því jafntrygg
og bankainneign.
TIL MINNIS
Fyrstu 9 mánuði ársins 1946
nam innflutningurinn til landsins
298,5 millj. (Þar af verðmæti skipa
aðeins 25,5 milljónir) Útflutningur
á sama tíma nam aðeins 204.3 millj
— óhagstæður verzlimarjöfnuður
rúmar 10 milljónir á mánuði iiverj-
um þennan tíma.
Hinn óhagstæði greiðslujöfnuð-
ur á rót sína að rekja til gegndar-
lausts innflutnings á venjulegri
eyðsluvöru, sem sum er óþörf með
öllu.
Aðeins tæp 10% af innflutnings-
verðmætinu var varið til skipa-
kaupa. Þessi stefna í gjaldeyris-
málum var verðlaunuð 30. júní s.l.
að háttvirtum kjósendum. Það er
ekki nema eðlilegt, að haldið sé
áfram á sömu braut.