Ljósmæðrablaðið - 01.04.1995, Blaðsíða 10
- Það var ekki rútína að gera gat
fósturbelg.
- Þó að klemma hafi verið sett seint á
naflastrenginn, þá voru fá tilfelli af
nýburagulu og polycytemíu.
- Samdráttarlyf voru ekki gefin á þriðja
stigi fæðingar og var einungis 1 post
partum blæðing.
Dr. T. Eskes læknir frá Hollandi var
með fyrirlestur sem nefndist: „Er
öruggt að fæða heima“. Hann lagði
áherslu á þátt ljósmæðra í meðgöngu og
fæðingu. I Hollandi fæða 33% kvenna
í heimahúsi. Þar er perinatal mortalitet
1/1000 en á fæðingardeild á sjúkrahúsi
er það 1/100 en þar koma inn í áhættu-
meðgöngur. Hann vakti líka athygli á
því að keisaratíðni í Hollandi er u.þ.b.
8% miðað við 25% í Ameríku. ( Hér á
Islandi á Landsspítalanum var keisara-
tíðnin 12-13% árið 1994). Hann tók
það sérstaklega fram að ljósmæður í
Hollandi væru vel menntaðar og vel
þjálfaðar. I lok fyrirlestursins setti hann
upp 2 glærur hlið við hlið um það hvað
Ijósmæður halda upp á annars vegar og
hvað fæðingarlæknar halda upp á hins
vegar.
Obstetricians loves
Midwifes loves
- Abnormal deliveries
- Normal deliveries
- Instruments
- No instruments
- Episiotomi
- Heil spöng
Við birtum glærurnar eins og þær komu
fyrir. Niðurstaða þessa fyrirlesturs var sú
að konur í eðlilegri meðgöngu eru ekki
í meiri hættu að fæða heima en á
sjúkrahúsi.
Mrs. Peters, eina ljósmóðirin sem talaði
í stóra salnum, sagði frá mæðradauða í
þriðja heiminum (starfsheiti hennar er :
Director, International Confederation
of Midwifes). Hún lagði áherslu á mik-
ilvægi þess að mennta fleiri ljósmæður í
heiminum frekar en að eyða peningum
í tól og tæki. I Nígeríu t.d. deyja árlega
75 þúsund konur í meðgöngu og
fæðingu. Þar er talið að ein kona deyji
á hverjum tíu mínútum og koma megi
í veg fyrir 90 % þessara dauðsfalla.
Strax að loknum þessum fyrirlestri stóð
upp læknir frá þriðja heiminum og
þakkaði hann Mrs Peters fyrir að hafa
minnst á þriðja heiminn mitt í allri
tækni umræðunni. Hann sagði að
vandamálin væru gífurleg og af allt
öðrum toga en þau sem rædd voru á
þessari ráðstefnu.
Dr. B. Schifrin frá Ameríku var með
fyrirlestur um það „hvenær heilaskaði
eigi sér stað“. Hann telur að allt að
60% tilfelli af heilasköðum gerist fyrir
fæðingu og að ástæðurnar séu óþekktar.
Að hjartsláttarrit þessara barna eru
oftast eðlileg. Að við gætum fengið
8
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ