Einherji - 29.11.1967, Qupperneq 3
EINHEEJI
3
ggjjiUM DAGÍNN*
VEGINNlH
húss KS um 340 tonn. Nokkuð af
kolaniun var nú handflakað og
skapaðist með þvi meiri vinna en
ef heilfrystur væri, en óvíst er
enn hvernig það reynist. Þá munu
tveir menn hór á Sauðárkróki
taka Æskuna, 80 t bát, á leigu í
vetur og ætlunin að gera hana út
á línuveiðar. En Æskan er ókom-
in enn og mun eitthvað hafa
seinkað vegna þess að hún þurfi
í slipp aftur.
Hér hafa verið allmiklar fram-
kvæmdir í sumar, bæði í bygg-
ingum og ýmsum framkvæmdum
á vegum bæjarins. Nú dregur úr
þeim mjög með vetrarkomu og
því hætt við atvinnuerfiðleikum
í vetur. — M.F.
Snjór lítill en frost nokkuð
Flatatungu, 15. nóv.
Hér er snjólaust að kalla, en
frost um 10 stig og hefur svo
verið um tíma og því kuldalegt
tun að litast. Féð er komið að
húsi, en litið gefið nema þá helzt
eitthvað af fóðurbæti t.d. síld.
Heyfengur mun hér fram í döl-
unum, í meðallagi, einkum að
austanverðu, en spretta var mun
minni að vestanverðu, og bithagi
óvenju graslaus. Ekki munu
bændur fækka sauðfé, en lirossum
hklega eitthvað, en hrossaslátrun
er ekki lokið. — G.O.
Féð vænna en í fyrra. —...
Vetur settist snennna að
Hofsósi, 16. nóv.
Sauðl'jársláturn hjá Kaupfélagi
Austur-Skagfirðinga hófst 18.
sept. og lauk 11. nóv. Ekki var
slátrað nema 5 daga í viku.
Slátrað var alls 7543 kindum,
5984 dilkum og 1558 fullorðnum
kinúum. Meðalfallþungi dilka
reyndist 14.24 kg, eða um 380 gr.
meiri en 1966. Þyngsti dillcskrokk-
ur vóg 26 kg og var eigandi Ingi-
björg Ólafsdóttir, Krossi í Ós-
landshlíð. Ekki liggur fyrir enn
hvaða bóndi hafði mestan meðal-
þunga á dillrum sínum. Sláturhús-
stjórl og vigtarmaður var Fétur
Jóhannsson, hreppstjóri í Glæsi-
bæ, en kjötmatsmaður Róar Jóns-
son, bóndi Grafargerði. Flokkun
kjötsins varð þannig:
I fyrsta flokk fóru 64.22%
1 annan flolck fóru 18.46%
1 þriðja flokk fóru 17.32%.
Hér hefur verið ráðinn nýr
kaupfélagsstjóri, Þorkell Hjör-
leifsson frá Siglufirði.
Allmikill snjór hefur verið hér
í austanverðum Skagafirði fyrir
utan Hofsós, en þó mest í Fljót-
um. Aflabrögð eru treg þegar á
sjó gefur. Eokið vinnu við höfn-
ina á þessu ári og óvíst hvenær
framhald verður. — N.H.
Samgöngur á sjó og landi —
Sfldin tafði leiklistina
Siglufirði, 16. nóv.
Hér hefur verið nokkur snjór
að undanförnu og vetrarveður þó
ekki hörð. Sl. föstudagur, 10. nóv.,
var stór dagur I Siglufirði. Siglu-
fjarðarvegur ytri og Strákagöng
voru formlega vígð og opnuð til
umferðar. Samgöngumálaráðherra,
Ingólfur Jónsson, kom að sunnan
með mörgu stórmenni og fríðu
föruneyti og bæjarstjórn Siglu-
fjarðar bauð til veizlu, enda
ástæða til, því hér var náð mikl-
um áfanga í samgöngumálum
Siglfirðinga, sem hefði þurft að
vera komin mikið fyrr.
Togarinn Hafliði landaði hér í
gær hjá íshúsi SR 194 t, mest
þorskur og stórufsi. Gæftir hafa
verið stlrðar og afli línubáta
tregur, 2—3 t í róðri.
Nokkuð af saltsíldinni er farið,
það sem fyrst var saltað, Finn-
landssíld og eitthvað á Sviþjóð, en
Atvinnumál í Horðurlands-
kjördæmi vestra
„Kjördæmisþing Fram-
flokksins í Norðurlandskjör-
deemi vestra ályktar að sjáv-
arútvegur verði áfram, sem
hingað til, aðalundirstöðuat-
vinnuvegur sjávarplássa í
kjördæminu með undantekn-
ingum hvað Blönduós og
Hvammstanga snertir. Þó
mun Hvammstangi hafa
nokkra sérstöðu hvað rækju-
veiðum viðkemur. Hin sjáv-
arplássin, Siglufjörður, Hofs
ós, Sauðárkrókur og Skaga-
strönd, eiga afkomu sína að
imestu eða verulegu leyti und
ir sjávarafla og vinnslu hans
í landi. Það er sammerkt
með ölium þessum stöðum að
þar eru til vinnslutæki í
landi til að vinna sjávarafla,
svo sem hraðfrystihús, niður
lagningarverksmiðja á Siglu-
firði, síldarverksmiðjur á
Siglufirði og Skagaströnd,
beinamjölsverksmiðjur á
Hofsósi og Sauðárkróki. Þá
er og á Siglufirði tunnuverk-
smiðja. A Siglufirði eru
margar síldarsöltunarstöðv-
ar og einnig á Hofsósi og
Skagaströnd.
Þegar á það er htið hve
mikið er af vinnslustöðvum
á þessurn stöðum, og sumar
sáralítið notaðar vegna hrá-
efnisskorts, en atvinnulífið
oyggist að mjög miklu leyti
á starfrækslu þeirra, sést
hve þýðingarmikið það er að
halda þessum atvinnufyrir-
tækjum gangandi. I þessum
fyrirtækjum er einnig bund-
ið mikið fjármagn, sem eng-
an arð gefur, ef þau eru ekki
starfrækt.
Þingið telur því þýðingar-
mikið, og jafnframt ódýr-
ustu leiðina til að endurreisa
og bæta atvinnulíf þessara
staða, að fá hentug veiði-
skip til að afla hráefnis í
þau vinnslutæki, sem þegar
eru til. Það yrði líka fljót-
virkasta leiðin til að bæta
atvinnuástand þessara staða
og stöðva fólksflóttann það-
an. Þessi lausn ætti líka að
falla inn í þann ramma, er
hin svonefnda „Norðurlands-
áætlun“ kemur til með að
marka.
Kjördæmisþingið telur að
hráefnisöflun til hraðfrysti-
húsanna verði bezt leyst með
því að gerðir verði út 3—4
togarar, og þeir reknir af fé-
lagi, sem sveitarfélög við-
komandi staða í kjördæminu
standa að, eða á annan hátt,
verði það talið æskilegra.
Beinir iþingið því til sveita-
og bæjarstjóma á þessu
svæði, að þau itaki mál þetta
til ýtrustu yfirvegunar og
geri síðan tillögur um rekstr
arform skipaima, verði
sé að fullnýta þau vinnslu-
tæki — verksmiðjur og sölt-
unarstöðvar — sem til em í
kjördæminu.
Sérstaklega skorar þingið
á stjórnvöld landsins að
greiða fyrir kaupum á full-
komnum flutningaskipum,
sem sérstaMega verði útbúin
til að flytja síld, af fjarlæg-
um miðum til söltunar. Tel-
ur þingið þetta mikilvægt
m.a. til að halda þeim salt-
síldarmörkuðum, sem búið er
að vinna upp. Einnig mundi
aukin söltun stórauka at-
vinnu í landi og bæta gjald-
eyrisstöðuna. Meðan beðið er
eftir varanlegum aðgerðum,
með kaupum á stærri veiði-
skipum, telur þingið aðkall-
andi að hið opinbera stuðli
að því með sérstökum að-
gerðum að leiguskip verði
fengin til að leggja upp afla
á fyrrgreindum stöðum.
Einnig telur þingið nauð-
synlegt að stuðlað verði að
fullnýtingu þeirra annarra
atvinnutækja, sem nú eru
starfrækt í kjördæminu, m.a.
með auknum lánveitingum
og annarri fyrirgreiðslu, sem
tryggt gæti afkomu fyrir-
tækjanna betur en nú er.
Þá verði látin fara fram
ýtarleg athugun á þvi, að
nýta betur en nú er gert
möguleika á vinnslu land-
búnaðarafurða.
1 trausti þess að 'hraðað
verði sem mest gerð hinnar
svokölluðu „Norðurlandsá-
ætlunar“ telur þingið rétt að
bíða með frefcari tillögugerð
í atvinnumálum kjördæmis-
ins, svo hægt verði að sam-
ræma þær þeim væntanlegu
úrræðum, sem þar verða
gerð.“
NYJAR B/EKUR FRÁ ÆSKUNNI
Barnablaðið Æskan sendir í
haust frá sér 9 bækur, þar af
sjö bækur fyrir börn og ungl-
inga. Bækurnar, sem út eru
komnar eru:
Ævintýri Æskunnar:
1 þessari nýju ævintýrabók eru
30 heimsfræg ævintýri frá 17
löndum. Bókin er 140 blaðsíður að
stærð í stóru broti og með yfir
150 litmyndum, sem gerðar eru af
hinum frægasta listamanni heims,
V. Kubasta, en allar myndir eru
prentaðar í einni fullkomnustu
myndaprentsmiðju Evrópu.
Ævintýrin eru: Frá Þýzkalandi:
Mjallhvít, Lævirkinn syngjandi,
Gjafirnar þrjár, Kóngsdæturnar
tólf og Hnetu-Jón og gullgæsin.
Frá Englandi: Sefsláin og heimsk-
ingjarnir. Frá Danmörku: Sonur
hafmeyjunnar og Töfrabókin. Frá
Skotlandi: Jakob kóngsson og
Brúna nautið frá Morrova. Frá
Spáni: Kjúklingurinn klofni og
Lífsvatnið. Frá Frakklandi: Þyrni
rós og Stígvéla-kötturinn. Frá
Wales: Álfkonan í tjörninni. Frá
Ungverjalandi: Dýrin þakklátu.
Frá irlandi: Svarti þjófurinn og
Írski dvergurinn. Frá Italíu:
Froskakóngsdóttirin. Frá Noregi:
Kvörnin á hafsbotni og Höllin
Soría Moría. Frá Póllandi: Kóngs-
dóttirin á glerfjallinu. Frá Portú-
gal: Kóngssonurinn og dúfan. Frá
Sikiley: Ævintýrafuglinn. Frá
Tékkóslóvakíu: Langfeti, Jötunn
o gAmarauga.
Þýðinguna hefur gert Rúna
Gísladóttir. Texti prentaður í
Odda h.f.
Ævlntýri Óttars:
Þetta-er drengjasaga, sem ger-
ist fyrir nokkrum áratugum í
sveit á Norðurlandi. Höfundur
hennar, Hannes J. Magnússon,
hefur áður sent frá sér margar
á barnabækur. Síðasta bók Hannes-
hugmundina fallizt. Jafn-
framt telur þingið að flutn-
ingar á síld til vinnslu í
ar var drengjasagan Gaukur verð-
ur hetja, sem kom út á síðast-
liðnu ári og seldist þá upp. Aðal-
landi, af fjarlægari miðum, jsöguhetjan í þessari bók er Ottar
beri að stórauka, svo hægt'
óvíst hvenær hitt fer vegna far-
mannaverkfallsins. Þá var saltáð
hér fyrir Sigló-síld um 5.300 t. og
er nú verið að yfirtaka það.
Drangur kemur tvisvar í vlku
frá Akureyri en fer ekki til
Slcagafjarðarhafna. Þurfa bví að
verða tvær ferðir frá Sauðárkróki
til Siglufjarðar í viku, landleiðina
ef við Siglfirðingar eigum ekki að
búa við verri samgöngur að
vetrinum en áður var. — J.Þ.
Grímsson, sem er drengur um
fermingaraldur, þegar sagan hefst.
Hann er sonur fátækra hjóna,
sem verða að ráða Óttar í vist að
lokinni fermingu. Hann er svo
heppinn að komast á gott heimili,
þar sem hann kemur sér vel. Þar
eignast hann góðan félaga, Mugg,
sem er drengur úr Reykjavík.
Eiga þeir eftir að lifa saman
mörg ævintýri. Þama gerast
margir sögulegir atburðir. Óttar
kemst oftar en einu slnni í lífs-
hættu. Hann villist í stórhríð og
kemst með naumindum lífs af.
Öðru sinni lendir hann í eldsvoða
og bjargar þá gömlum manni, og
hann launar honum vel lífgjöfina.
Það var draumur Óttars að
komast í skóla og fá að læra.
Hann ver til þess öllum stundum
að lesa bækur. Þessi draumur
virðist ætla að rætast í sögulokin,
en áður en það verður lendir
hann þó í ýmsum mannraunum.
Saga þessi sýnir, hve einbeittur
vilji og óslökkvandi menntaþrá
getur brotið alla erfiðleika á bak
aftur. Þessi bláfátæki sveitapiltur
er því þrátt fyrir allt á leið í
skóla í sögulok.
Bókin er 159 blaðsíður að stærð.
Prentuð í Odda h.f.
Kubbur og Stubbur:
Barnasagan Kubbur og Stubbur
eftir Þóri S. Guðbergsson er
byggð á samnefndu leikriti, sem
sýnt var hjá Leikfélagi Reykja-
víkur í Iðnó veturinn 1966—1967.
Var leikritið sýnt alls 27 sinnum
við ágæta aðsókn og undirtektir
áhorfenda. Bók þessi er öll mynd-
skreytt af börnum, og er bæði
skemmtilegt og nýstárlegt að sjá,
hvernig þeim tekst á frumlegan
hátt að setja fram og sýna allar
þær persónur, sem Kubbur og
Stubbur hitta á hinu sögulega
ferðalagi sínu.
Kibba kiðlingur:
Þetta er falleg og skemmtileg
saga fyrir yngstu börnin. 1 hvert
sinn, sem ný útgáfa hefur komið
af þessari vinsælu bók, hefur upp-
lagið selzt upp á skömmum tíma.
Bókin er prýdd yfir 30 fallegum
myndum og er í þýðingu Harðar
Gunnarssonar kennara. Þetta er
fimmta útgáfan. Prentun: Oddi
h.f.
Gusi grísakóngur:
Þetta heimsfræga ævintýri
meistarans Walt Disney, hefur
verið fáanlegt í mörg ár. Nú er
bókin komin út í annarri útgáfu
í þýðingu Guðjóns Guðjónssonar,
skólastjóra. í bókinni er fjöldi
mynda eftir sjálfan Walt Disney.
Örkin hans Nóa:
Nú er þessi heimsfræga saga
Walt Disney komin út í sjöttu út-
gáfu. Það þarf ekki mikið að
kynna þessa frægu bók fyrir
þeim yngstu, því þau lesa hana
upp aftur og aftur og hafa svo
gaman af myndunum, sem höfund
urinn hefur gert sjálfur. Bókin er
96 blaðsíður að stærð, prýdd 56
EINANGRUN
SIGLI I JARÐAR ROFIN
Frainliald af 1. síðu
ins. Drangur, sem var á leið
inn f jörðinn, blés 1 pípu sína
íkveðju- og virðingarskyni
og minnti þannig á, að hann
hefði um langan tíma, að
vetrinum, verið einn um það
að rjúfa hina daglegu ein-
angrun Sigluf jarðar.
Síðan var haldið til Siglu-
fjarðar og bauð bæjarstjórn
gestum og fleirum til hádeg-
isverðar að Hótel Höfn. Hóf-
inu stjórnaði Ragnar Jóhann
esson, forseti bæarstjómar.
Bauð hann gesti velkomna
og sagði meðal annars:
— „Góðar samgöngur, á
landi, ílofiti og á legi, eru ein-
hverjar þýðingarmestu fram
kvæmdir fyrir velgengni nú-
tíma þjóðfélags, einstakra
byggðarlaga og íbúa þeirra.
Ég vil því óska og vona, að
hinn nýi vegur til Sigluf jarð-
ar og jarðgöngin, sem í dag
vom opnuð til umferðar,
verði Siglufirði og Siglfirð-
ingum til ævarandi blessun-
ar. Eg vil einnig óska og
vona að blessun guðs megi
ávallt hvíla yfir þessum nýja
vegi og jarðgöngunum og
allri umferð þar, um ókomna
framtíð.“ —
Margar ræður vom fluttar
undir borðum, af vegamála-
stjóra, þingmönnum o.fl. I
ræðu vegamálastjóra og fl.
var rakinn aðdragandi að
gerð ganganna og sagt frá
vinnu og kostnaði við þau og
Sigluf jarðarveg ytri.
myndum. Prentun annaðist Oddi
h.f.
Föndurbækur Æskunnar:
Þriðja bókin í þessum föndur-
flokki er nú komin, en hún er
Laufsögun I., tekin saman af
Gauti Hannessyni, kennara. Bók-
in hefst á lýsingu áþeim tækj-
um, sem þarf til laufsögunar, þá
kemur sérstakur þáttur um efni
og svo sjálf kennslan í, hvernig
hægt er að ganga frá smíðisgrip-
unum. Alls eru í bókinni 24 verk-
efni, og myndir eru yfir 30. Á
síðasta ári komu út fyrstu bæk-
urnar í þessum bókaflokki og
voru þær: Pappamunir I. — Papp-
ír I. Um útgáfu þeirra bóka sá
Sigurður H. Þorsteinsson.
Dæmisögur Esóps:
Þriðja bókin í „Afmælisbóka-
flokki Æskunnar" er Dæmisögur
Esóps i ljóðum, eftir séra Guð-
mund Erlendsson á Felli í Sléttu-
hlíð. Grímur H. Helgason magist-
er sá um útgáfuna. Prentun ann-
aðist Oddi h.f.
Skaðaveður 1891—1896:
Þriðja bókin í þessum bóka-
flokki kemur út í nóvember. 1
þessari bók er meðal annars sér-
stök frásögn um októberbylinn
mikla í Skriðdal. Halldór Pálsson
safnaði efninu, en Grímur M.
Helgason magister sá um útgáf-
una. Prentun annaðist Oddi h.f.
Æskulýðsblað
Æskulýðssamband kirkjunnar í
Hólastifti hefur sent frá sér nóv-
emberhefti Æskulýðsblaðsins.
Æskulýðsblaðið kemur út fjór-
um sinnum á ári á vegum ÆSK í
Hólastifti. Ritstjóri þess er Bolli
Gústafsson sóknarprestur í Lauf-
ási við Eyjafjörð. Afgreiðsla þess
er að Hafnarstræti 107 Akureyri.
Æskulýðsblaðið er 26 blaðsíður
að stærð auk kápu. Efni blaðsins
er fjölbreytt og hið athyglisverð-
asta.