Einherji


Einherji - 17.12.1968, Blaðsíða 1

Einherji - 17.12.1968, Blaðsíða 1
11.—12. tölublað Þriðjudagur 17. des. 1968 37. árgangur. Sigluf jörður í vetrarskrúða. EFLUM NORÐLENZKAR BYGGDIR EINHERJI flytur lesendum sínum, svo og öllum landsmönnum, beztu jóla- og nýársóskir. Um leið þakkar hann öllum þeim mörgu, er skrifað hafa í blaðið, eða lagt því til annað efni á líðandi ári, svo og öðrum, er stutt hafa að útkomu þess. Sérstakar þakkir vill blaðið flytja fréttariturum sínum í kjördæminu og væntir samstarfs við þá á kom- andi ári. EINHERJI kemur út í 3500 eintökum. Fastir kaupendur eru 2500, þar af um 1800 í Norðurlandskjördæmi vestra. Blaðið ræðir fyrst og fremst um málefni er varðar Norðurlandskjördæmi vestra og flytur fréttir þaðan, enda er það málgagn Framsóknarmanna á því svæði. Reynt hefur verið að láta blaðið koma út sem reglulegast, eða einu sinni í mánuði, 6—8 síður og jólablað stærra. Því er ekki að leyna, að miklir fjárhagsörðugleikar eru á útgáfu blaðsins. T. d. kostar prentun, pappír og myndamót á þessum 10—12 tbl. um 150 þús. kr. Samt teljum við nauðsynlegt að halda útgáfunni áfram, enda brýn þörf á, að túlka og berjast fyrir atvinnulegri uppbyggingu og bættri búsetuaðstöðu bæja, þorpa og sveita á Norðurlandi. Með hjálp sinna mörgu stuðningsmanna vill Einherji vinna að því, og styðja norlenzkar byggðir. GLEÐILEG JÓL Blaðstjórnin Rafveita Siglufjarðar 55 ára Fjórða elzta rafveita landsins mmm _ Rafveita Siglufjarðar er stofnsett og vígð 18. des. 1913, og er því nú 55 ára. Rafveita Siglufjarðar er fjórða elzta rafveita lands- ins. — Fyrsta rafstöðin, við Hvanneyrará, var nefnd Ljósastöð, en 1925 er nafni hennar breytt og hún nefnd Rafstöðin og er hún starf- rækt sena aðalstöð þar til Skeiðsfosstöðin er tekin í notkun 1945. Síðan er hún nefnd Gaonla rafstöðin og notuð nú sem varastöð, og með upsetningu 1.000 kw. dieselvélar 1965 heitir hún Varastöð. Eins og áður er sagt tók Skeiðsfossvirkjun til starfa árið 1945. Fyrst með einni túrbínu og tveim túrbínum síðan 1953. Rafveita Siglufjarðar hef- ur selt Rafveitum ríkisins raforku til Ólafsfjarðar og Fljóta frá árinu 1955. Á þessu ári hafa verið framkvæmdar töluverðar endurbætur á stíflu Skeiðs- fossvirkjunar til lagfæringar á steypuskemmdum o.fl. Var unnið fyrir um 2 millj. kr. Árið 1967 framleiddi Skeiðsfossvirkjun og vara- stöðin samtals 9,9 millj. kw.- stundir, sem seldust fyrir 9,4 millj. kr. Rekstur Rafveitu Siglu- fjarðar gekk vel á síðasta ári og bókfærður hagnaður samkv. rekstrarreikningi er rúm 1 millj. kr. Nú er vatnsstaða í uppi- stöðulóni óvenjulega slæm. vantar um 3,75 m á að lónið sé fullt. Er því útlit fyrir mikla dieselkeyrslu, og vara- stöðin þegar verið keyrð frá 3. des. s. 1. Þessi óvenjulega slæma vatnsstaða orsakast af úrkomuleysi í sumar og haust, og veturinn kom með frostáhlaupi mánuði fyrr en venjulega. Hin þurra og góða tíð í nóvember orkar lítið til vatnsaukningar. Forstjóri Rafveitu Siglu- fjarðar nú er Sverrir Sveins- son. ORÐSENDING til félagsmanna og annarra viðskiptavina. Vegna sívaxandi kostnaðar við Heimsendingar, erum við tilneyddir að gera þær breytingar, að mögulegt sé, að ljúka heimsendingum fyrir lokun sölubúða. Til þess að þetta sé mögulegt, verða pantanir heim- sendinga að berast sem hér segir: Mánudaga til föstudags verða pantanir að berast okk- ur fyrir kl. 4 e. h., til þess að verða sendar samdægurs. Laugardaga verða pantanir að berast fyrir kl. 10 f. h. til þess að þær verði sendar fyrir helgi. Heimsendingar eru góð þjónusta en kostnaðarsöm, en með samstarfi við ykkur viðskiptavinina er hún mögu- leg án aukagjalds og treystum við því, að þið pantið samkvæmt ofanrituðum reglum. Munið, að á laugardög- um er aðeins opið í 3 klst., og því æskilegt að beina heimesndingum frekar á aðra daga vikunnar. KAUPFÉLAG SIGLFIRÐINGA

x

Einherji

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Einherji
https://timarit.is/publication/788

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.