Freyr - 01.06.1939, Síða 2
FREYR, XXXIV, árg. Nr. 6.
Góð boð.
BÚNAÐARFÉLAG ÍSLANDS BÝÐUR:
1. Það, sem tii er af Búnaðarritinu fyrir einar
25 krónur.
Af ritinu eru komnir út 52 árg., en í það vantar að
mestu 2. árg. og 19.—27. árg. og einstök hefti i 28.—
35. árg.
2. Það, setn til er af Frey fyrir 20 krónur.
Af honum eru komnir út 33 árg., en í hann vantar
3 fyrstu blöð 1. árg. og 12.—14. árg. alveg.
3. Nýjum kaupendum Freys, sem senda 10 krón-
ur með pöntun, 34. árg. blaðsins, (sem nú er
að koma út) og auk þess það, sem B. í. hefir
áður gefið út af Frey, þ. e. a. s. 30. —33. árg.
en það eru 42 blöð, alls 708 stður.
BÚNAÐARFÉLAQ ÍSLANDS.
Búnaðarbanki íslands
Stofnaður með lögum 14. jiini 1929.
Bankinn er sjálfstæð stofnun undir sérstakri
stjórn og er eign ríkisins. — Trygging fyrir
innstæðufé er ábyrgð ríkissjóðs, auk eigna bank-
ans sjálfs. — Bankinn annast öll innlend banka-
viðskipti, tekur fé á vöxtu í sparisjóði, hlaupa-
reikningi og viðtökuskírteinum_____Greiðir hæstu
innlánsvexti.
Aðalaðsetur í Reykjavík, Austurstræti 9. Útibú á Akureyri.