Freyr

Årgang

Freyr - 01.06.1939, Side 3

Freyr - 01.06.1939, Side 3
Theódór Arnbjörnsson á — frá Ösi. — Bólstað Grúi gesta hefir griða leitað — herbe rgja h inurn e g h i. Verður eigi vitað, hvort vegabréf hafa allir haft. Tók þó tveim höndum Theódóri Eilífð, eigi'málg — herbergjaði hann og hélt ’ið bezta; átti þó annríkt mjög. Hún lét heimila hestamanni gæðinga geysivakra: Grana gunnhvata, er gegnum loga Sigurð til Brynhildar bar. Einnig áttfættan Óðins léttfeta; Vegtam, vindfráan jó. Geta gangvarar til Gimle runnið vegleysu víðbláins. Á enn fleiri úrvals kosti, hugsvinnur hestavinur. Hann má hleypa, hverjan morgun, Skinfaxa á skeið. ' Víst er vegsamlegt vekringum þeysa Bif rastar bröttu leið. Sækja í sig svalan andvara, gæðingar gullbitlaðir. Tekst með taumhaldi teygja vekringa, einnig aftra þeim. Freyðir um flaxandi fax og bóga, lögur Ijósvaka . . . Það er gæða gott, að geta sér orðstír sem aldrei deyr, eiga inni að eilífu, velgerð ve.itta dýrum. Engin mun Ósverja á óvart koma dásemd, draumum skyld: Hann sá hermegin, hvar sem var, gegnum holt og hæð. Theódór tök á tungu og penna hafði harla góð. Dáði hinn djúpsæi drengur, jafnt hófadyn, hrynjanda Ijóðs.

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.