Freyr

Volume

Freyr - 01.06.1939, Page 12

Freyr - 01.06.1939, Page 12
90 FRE YR Notagildi búfjáráburðar, verðmæti og geymsla. Karsten Iversen, tilraunastjóri í Askov á Jótlandi telur, eftir því sem tilraunir hafa leitt í ljós, að notagildi búfjárá- burðar, samanborið við tilbúinn ábúrð, sé þannig, þegar notagildi tilbúna áburðar- ins er sett 100: Fyrir kartöflur ............. 80—100 Fyrir rófur ................. 60— 80 Fyrir vorkorn (bygg, hafra) .... 40— 50 Fyrir haustkorn (vetrarrúg, vetr- arhveiti) ................... 10— 50 Hér er ekki með sá jarðargróður, sem við ræktum mest af, — túngrösin — en danskar tilraunir hafa greinilega sýnt, að búfjáráburðurinn notast þá lang bezt þegar hann er plægður niður í moldina, strax þegar honum er ekið út, og að mik- ið af notagildi hans tapast á stuttum tíma — nokkrum klukkustundum — ef hann liggur dreifður (eða í hlössum) ofan- jarðar, eins og hann venjulega gerir hjá okkur. Það er því engum efa bundið, að það er lakasta notkunin á búfjáráburðinum, að hafa hann til yfirbreiðslu á tún, eink- um ef dregið er lengi að herfa hann niður, eftir að honum er ekið út og dreift. Tilraunir Ræktunarfélags Norðurlands hafa leitt það í Ijós. sbr. Frey 1938, nr. 3, að minnstu munaði, í 6 ára tilraun, að þriðjungs skamtur af kúamykju, borinn undir plógstrengi á grónu túni, gæfi jafn- mikla eftirtekju, að meðaltali, eins og heill skamtur af mykju breiddur á venju- legan hátt á gróið tún. Það mun vera almenn skoðun bænda hér -— og svo hefir það líka verið annars- staðar — að áburðargildi búfjáráburð- arins væri mest í hinum fasta hiuta hans, saurnum, en sannleikurinn er sá, að meiri hlutinn af áburðargildinu er í þvag- inu. I því er mestur hluti köfnunarefnis- ins og kalísins og þar eru þessi efni í auðleystum samböndum, sem notast jurt- unum vel, en í saurnum eru þau torleyst, og notagildið þessvegna minna þar. Við geymzlu áburðarins eru þessi auðleystu næringarefni þvagsins í mestri hættu að þau tapist, áður en áburðurinn er borinn á, og einnig eftir það, ef hann kemst ekki strax niður- í moldina. En bezt geymast þau ef þvaginu er safnað út af fyrir sig og geymt í þéttum safnþróm, og þá má ekki gleyma því, að þakið yfir þrónni verður að vel þétt, því að köfnunarefnið, sem verðmætast er, tapast einmitt mest við uppgufun, verður að lofttegund, sem rýkur upp. Karsten Iversen hefir talist svo til, að verðmæti köfnunarefnisins í þvagi húsdýr- anna í Danmörku nemi árlega um 50 milj. króna, en kalísins um 30 milj. króna, mið- að við hvað það kostaði að kaupa þessi efni í tilbúnum áburði. Hér verður ekki farið út í að reikna út, á líkum grundvelli, hvert verðmæti er í þvaginu, sem hér tilfellst árlega og hægt er að safna. En af þessu mega bændur draga þá ályktun, að áburðurinn —• og sízt þvagið — er ekki einskisverð- ur hlutur, sem litlu máli skiftir, hvernig hirt er um, eða hagnýttur fyrir jarðrækt- ina, og að nokkuð er leggjandi í kostnað við geymslu hans. Því er sjálfsagt fyrir þá að fylgjast vel með því, sem tilraunir hafa þegar sýnt, og munu síðar sýna betur, hvernig á að geyma og hagnýta búfjár- áburðinn, svo að notin verði sem mest. Og bess má geta, að ársbvag eftir kúna er tal- ið jafngilda einum sekk af salf'étri t;i áburðar.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.