Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.1939, Blaðsíða 16

Freyr - 01.06.1939, Blaðsíða 16
94 FRE YR leg' og aögengileg. Hvenær koma þau út? ÞaÖ er skaði að láta slíkar bókmenntir liggja óprentaöar. En þegar þær koina út, þá verður Eyjólfur talinn meðal okkar merkustu fræðimanna. Mér er hann ímynd hins bezta í íslenzkri bændastétt, bóndi fyrst og fremst, vel menntaður og víðlesinn; frain- faramaður í öllu og rótfastur í fortiðinni. Ragnar Á ageiwson. 2. Bcendaförin. 1 framlialdi af grein um Minningarrit B. S. S. og Eyjólf á Hvoli, fer vel á því, að geta um aðra bók, er búnaðarsambandið gaf út á s.l. ári, en þaö er Bændaförin 1938, eftir Ragnar Asgeirsson. S.l. sumar, um þær mundir, sem B-S.S. minntist 30 ára starfsemi sinnar — og gaf út Minningar- ritið — stofnaði það til „bændafarar“ til Norð- urlands og hefir Ragnar Asgeirsson sagt nokkuð frá þeirri för í 7 tölubl. Freys 1938, enda var hann „söguritari“ fararinnar og fréttaritari Morg- unbláðsins, sem birti daglega, meðan á ferðinni stóð, skemmtilegar greinar R. A. um förina. •— Einnig skrifaði Böðvar Magnússon á Laugarvatni langan greinabálk um förina í Tímanum s.l. sum- ar. En til þess, að menn gætu fengið „allt á einum stað“, sem sambandið vildi láta geymast um för- ina, var Ragnar Asgeirsson fenginn tii að skrifa um hana heita bók, að dæmi Norðlendinga, er á sínum tíma gáfu út bók um sína „bændaför“ tit Suðurlandsins 1910. Þeir voru 24, og fóru menn „einsamlir“, á hestum sínum, en í norðurförinni voru 144 (að meðtöldum fararstjóra —■ Steingrími búnaðarmálastjóra — og- söguritara) þar af 29 konur, svo að nærri lét að væri ein kona í hverri „5 manna f jölskyldu“ og mun ekki að jafnaði þykja fara vel á, að þær séu þar fleiri! Og nú voru allir í bílum, óku þeir rösklega 1600 km. á 10 dög- um, og skiluðu öllu heilu og höldnu. „Bændaför“ Ragnars er 110 síður lesmál í sama broti og „Búnaðarrit“, og yfir 40 myndir á glans- pappír. Segir hann þarna skemmtilega frá ferða- laginu, hvernig það gekk og hverjar viðtökur hóp- urinn fékk hjá þeim, sem fyrir móttökunum stóðu, en það voru vitanlega einkum búnaðarsamböndin, sem í leiðinni urðu, allt frá Reykjanesi norður a Langaues, og er um þetta í styztu máli að segja, að hvervetna var bæði gaman og gott aö koma. Prá búskaparháttum er minna sagt — og bú- skaparbasl er ekki nefnt á nafn, en frásögnin öil er lipur og létt, fjörug og fyndin, svo að þetta verður reglulegur skennntilestur og ómissandi „kver“ fyrir alla þá, er síðar leggja í „bænda- för“, og þær munu nú komast injög ,.,í móð“ fyrst um sinn, enda má nú svo að seg'ja fara gandreið uin mikinn hluta landsins á fáum dögum, og bændur og konur þeirra og dætur þarfnast þess, að „létta sér upp“ frá önnum sveitalífsins. i bókinni skiftist á óbundið mál og bundið, eins og Ragnar sýndi í Frey í fyrra, og eins og' vera ber í „Islendingasögum“. Og ég býzt við, að bæði þiggjendur og veitendur, sem hlut áttu að bænda- förinni geti bundið endurminningar sínar í sani- bandi við hana í eftirfarandi niðurlagserindi úr kvæði, sem Sunnlendingunum var flutt í Vatns- dalnum: „Gejrmist eins og góður draumur gestaminning langa stund, hlýr og andrænn undirstraumur okkur ber af þessum fund“. En til þess að „komandi kynslóðir“ geti á sinn hátt orðið liluttákandi í „bændaförum“ mæðra sinna og feðra, held ég að Ragnar Asgeirsson verði að vera með „i förinni", meðan hans nýtur við. 3. Ársrit Rœktunarfélags NorSurlands, 35. árg. 1938, er nýlega komið út, og' flytur nú eins og áður skýrslur um starfsemi félagsins og' um starfsemi búnaðarsambandanna n'orðanlands. Mestur hluti ristins er þó ritg'erð sú um „Belgjurtir“, eftir framkvæmdarstjóra félagsins Ólaf Jónsson, sem sagt var frá í síðasta blaði Frevs. 4. Búfrœð.ingurinn VI. árg. Arsrit „Hóla- mannafélaags“ og „Hvanneyrings“ 193!). Það má að vissu leyti segja um „Búfræðinginn“ að hann hafi hrakist á milli manna fram að þessu. eins og áður hefir verið getið um í Frey. En einn góðan „aðstandanda“ hefir hann þó átt frá upp- hafi: Guðmund Jónsson, kennara, á Hvanneyri, og fyrir hans atbeina mun það vera að nú er „Bú- fræðingurinn“ kominn í rétta höfn, þareð nem- endafélög bændaskólanna hafa nú tekið höndutn saman um útgáfuna, og einmitt á þann hátt, er búast má við að verði ritinu til mestrar eflingar, þ. e. a. s. að félögin skifta samstarfinu þannig, að sjá um útgáfuna sitt árið hvort. Með því er vakinn metnaður og kapp milli félaganna að gera ritið sem bezt úr garði. Fram að ])essu hefir Bú- fræðingurinn verið gefinn út frá Hvanneyri og er því að vonum að nú eru það „Hólamenn“, sem

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.