Mjölnir - 09.12.1938, Blaðsíða 1

Mjölnir - 09.12.1938, Blaðsíða 1
Útgefandi: SÓSÍALISTAFÉLAG SIGLUFJARÐAR. I. árg. I Siglufirði, 9. des. 1938. I 1. tbl. Til lesendanna. Petta blað, sem nú hefur göngu sína, er málgagn siglfirzkrar alþýðu, gefið út af hinum pólitísku samtökum hennar, Sösíal- istafélagi Siglufjarðar. Meðan siglfirzk alþýða var óklofin, gaf hún út „gamla“ Mjölnir, en klofningsárin hafa komið út ýms önnur blöð frá samtökum hennar. Nú hefir svo að segja öll alþýðan í þessum bæ, sem fylgjandi er sósialismanum, samein- ast í Sósíalistafélagi Siglufjarðar, þá hefur Mjölnir göngu sína á ný, sem málgagn sameinaðrar alþýðu. Mjölnir mun skoða það sem hö’fuð verkefni sín, að sameina alla alþýðu til baráttu gegn fátækt, misrétti og íhaldi, en íyrir bættri fjárhagsafkomu og aukinni menntun og menningu alþýð- unnar og fyrir að koma á réttlátasta og skynsamlegasta stjórn- arfyrirkomulagi veraldarinnar, sósíalismanum. Baráttutæki alþýðunnar, verkalýðsfélögin og kaupfélagið, mun Mjölnir styrkja og verja fyrir árásum, en berjast fyrir um leið, að þau starfi á lýðræðisgrundvelli. Bæjarmál og öll önnur vel- ferðarmál Siglufjarðar rnuhu verða rædd ýtarlega. Mjölnir heitir á alla alþýðu og alla frjálslynda menn til samstarfs. Aframhaldandi samvinna í hœjarstjórninni. Nýr samningur milli Alþýflokksfélagsins og Sósíalistafélags Siglufjarðar. Eftir bæjarstórnarkosningarnar sl. vetur náði A-listinn meirihluta í bæjarstjórn Siglufjarðarkaupstaðar. A-listinn var borinn fram af Jafn- aðarmönnum og Kommúnistum, studdur opinberlega af öllum verka- lýðsfélögum hér í bæ, nema Verka- kvennafélagi Siglufjarðar, það fé- lag fékkst ekki til að lýsa yfir op- inberum stuðningi, sem heild, við A-listann. Auk áðurnefndra aðilja studdu listann fjöldi einstaklinga, Sósíalistafél. Siglufjarðar heldur fund kl. 4 siðdegis sunnudaginn 11. desember í Alþýðuhúsinu (stóra salnum). Á dagskrá verða félagsmál, verkalýðsmál og ýmisl. fleira. Á fundinum veröa afhent félagskírteini. Stjórnin. sem ekki voru í neinum pólitísk- um flokki og ekki meðlimir verka- lýðsfélaganna. Flokkarnirgerðu með sér málefnasamning, sem var birt- ur opinberlega í flokksblöðunum. Undir þennan málefnasamning skrifuou allir frambjóðendur list- ans. Voru þeir þar með flokkslega og persónulega skuldbundnir til þess, að vinna að framgangi samn- ingsins. í samningi, sem gerðurvar milli flokkanna, var það tekið frarn, að báðir flokkar skyldu hafa jafn- marga menn í nefndum, ennfrem- ur skyldu varamenn flokkanna boðaðir í forföilum aðalmanna. Allt fram á síðastliðið haust gekk allt vel, samkomulagið var gott. Málin voru rædd og sameig- inlegar ákvarðanir teknar í öllum stærri málum. Eftir Alþýðusambandsþingið í okt. s.J. klofnaði Alþýðuflokkurinn urn land allt. Vinstri hluti hans gekk til sameiningar við Kommún- istaflokkinn og stofnaður var hinn nýi stjórnmálaflokkur, Sameiningar- flokkur alþýðu, Sósíalistaflokkur- inn. Hér á Siglufirði voru vinstri Frh. á 3. síðu.

x

Mjölnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.