Mjölnir - 09.12.1938, Side 3
M J O L N I R
3
Áframhaldandi sam-
vinna í bæjarstjórn.
Frh. af 1. síðu.
menn Alþfl. mjög stérkir ag stór
hluti Jafnaðarmannafélagsins var
með að stofna Sósíalistafélag
Siglufjarðar. Meðal þeirra voru
bæjarfulltrúarnir Jón Jóhannsson,
form. Verkamannafél. Þróttur og
Arnþór Jóhannsson, sem tekið hafði
sæti i bæjarstjórninni sem aðal
maður, vegna brottflutnings Jóh.
Guðmundssonar. Sá hluti Jafnaðar-
mannafélagsins, sem fylgdi hægri
mönnum að málum, krafðist þess
að Jón og Arnþór segðu af sér í
bæjarstjórn og eftirlétu varamönn-
um Alþfl. sætin. Krafa þessi átti
ekki stoð í lögum. Kosinn bæjar-
fulltrúi hefir rétt til sætisins áfram
þó hann fari úr þeim stjórnmála-
flokki, sem hann var i, þegar kosn-
ingarnar fóru fram. Jón og Arnþór
buðu að skjóta þessu máli undir
úrskurð allra verkalýðsfélaganna í
bænum, jafnt þess félags, sem ekki
hafði stutt listann, sem hinna. —
Sömuleiðis undir allsherjaratkvæða-
greiðslu í Jafnaðarmannafélaginu,
og einnig undir úrskurð al-
menns verkalýðsfundar, sem boð-
aður yrði af þeim aðiljum, sem
stóðu að kosningu listans. Ollu
þessu var neitað. AlþýðufL-
mönnum var þá boðið annað sæt-
ið, þvi var sömuleiðis neitað. Uér
var úr vöndu að ráða. Norðfjarðar-
dæmið var öllum sósíalistum i
því máli er þegar fallinn, ogdóm-
ur íslenzku alþýðunnar í samein-
ingarmálinu fellur innan skamms,
báðir munu þeir falla ásömuleið:
Þeir sem börðust gegn
sameiningunni, það eru
liðhlauparnir.
Alþýðan tekur nú höndum sam-
an i Sameiningarflokki alþýðu —
Sósíalistaflokknum, og myndar sér
með honum nýjan og sterkari for-
ustuflokk, á lýðræðislegum fjölda-
grundvelli, til þess að berjast fyrir
velferðar og áhugamálum sínum,
bættum atvinnu- og menningar-
skilyrðum, auknu lýðræði, frelsi og
jafnrétti innan þjóðfélagsins og sigri
sósíalismans í landinu.
fersku minni. Átti sami leikurinn að
endurtaka sig hér. Hægri menn lýstu
því yfir, að þeir myndu jafnvel
reyna að knýja fram nýjar kosn-
ingar, sem þeir þó viðurkenndu að
gætu þýtt það, að afturhaldíð í
bænum kæmist i meirihluta. Eitt
voru allir sammála um, að enginn
einn flokkur myndi fá hreinan
meirihluta. Það þýddi, að með nýj-
um kosningum fékkst engin lausn
málsins til hagsbóta fyrir alþýðuna
í bænum, heldur hið gagnstæða.
Við sósíalistar vissuni, að við
myndum verða langt um sterkari
í kosningunum en Alþýðufl. og
það var ekki af ótta við styrkleika
hægri mannanna, sem við vildum'
forðast það, er við álitum óþarfar
ojf beinlínis hættulegar kosningar,
heldur eingöngu vegna þeirrar
ábyrgðar, er á okkur hvildi, sem
aðila að málefnasamningnum.
Eftir að fulltrúar frá Alþýðufl.-
höfðu neitað að ræða þessi mál frek-
ar við nefnd frá Alþýðuflokksfélag-
inu, var gengið inn á kröfu Al-
þýðufl. þannig, að varamenn þeirra
skyldu taka sæti Jóns og Arnþórs.
Var gerður skriflegur samningur
milli Alþýðuflokksfélags Siglufjarð-
ar og Sósíalistafélags Siglufjarðar,
um aframhaldandi samvinnu í bæj-
armálum, þar sem báðir aðilar
skuldbundu sig til að vinna að
framgangi málefnasamningsins frá
því í fyrra. Auk þessa voru önnur
atriði sett inn i þennan samning,
sem nauðsynlegt var að ganga
frá, svo að ekki gæti orðið sund-
urþykkja um Þau síðar og samn-
ingurinn á ný farið út um þúfur.
Samning þennan samþykkti Sósíal-
istafélagið með öllum atkvæðum,
á framhaldsfundi sínum sama dag.
Það má segja, að báðir aðilar
hafi mátt vel við una. Alþýðufl.-
menn fengu fulltrúasætin í bæjar-
stjórn, en við sósíalistar gátum
tryggt um leið, eftir því sem best
verður séð, framkvæmd málefna-
samningsins, sem við töldum aðal
atríðið og sýndum í verki, að við
vildum standa við þau loforð, sem
við höfðum gefið kjósendum okkar.
G. J.
Leiðrétting.
Að gefnu tilefni er hér birtur
hausin á lista þeim sem Pétur
Baldvinsson skrifaði undir samkv.
eigin ósk:
»Við undirritaðir lýsum hér
með yfir að við erum fylgjandi
því að stofnaður verði hér Sósía-
listaflokkur á grundvelli tillagna
»Jafnaðarmannafélags Reykjavík-
ur« um sameiningu verkalýðs-
flokkanna — deild úr Samein-
ingarflokki alþýðu. — Um leið
og við lýsum yfir að við ger-
umst stofnendur flokksins, ósk-
um við eftir að verða boðuð á
stofnfund hans«.
Listsýning.
Góðir Siglfirðingar!
Hér fer í hönd sýningá verkum
frú Þúrdísar Egilsdóttur, sem er ef-
laust sú frumlegasta íslensk kona
í sinni Iist. Þessar tvær myndir
eru gjörðar að öllu leiti eftirhenn-
ar hugviti, hefir hún unnið band-
ið og litað úr íslenskum jurtum.
Myndirnar sýna: önnur íslenskan
bóndabæ og alla útivinnu, en hin
íslenska baðstofu og fólk við vinnu
sína. Þessa sýningu ættu allir að
sjá, sem unna íslenskri list.
Siglufirði, 8. desember 1938.
Soffía Hjaltalín
Samkvœmis-
kjólatau
eru væntanleg með
Goðafossi.
Verzl. Halld. 3ónass.
B-deild
Allt best og ödýrast í
JÓLABAKS TURINN.
Jón Jóhannsson.
G E I S L I N N