Akranes - 01.09.1944, Blaðsíða 1

Akranes - 01.09.1944, Blaðsíða 1
III. árgangur September 1944 9. tölublað Vér skulum liorfa fram II. Svo sem lesendur ef til vill muna, var í 9. tölublaði, fyrra árgangs, grein með þessari yfir- skrift. Var það þá og er enn ætlunin, að þetta verði áframhaldandi greinaflokkur, þar sem rædd séu fyrst og fremst framtíðarverkefni og viðhorf Akraness, en öðrum þræði og engu síð- ur þjóðarinnar í heild, ef svo ber undir. í síðustu grein undir þessari fyrirsögn var þess getið, að framtíð Akraness yrði að byggjast á og verða bundin við sjóinn að langmestu leyti. Þar var og minnst á vora einustu lífs- og framfaravon í þeim efnum, hafnarbæturnar. Hér er ekki hægt að horfa fram, né heldur að fram- leiða þarfir vorar og þjóðarinnar á nú- tíma vísu, án þeirra endurbóta og enn- fremur hlutdeild í því rafmagni, sem nauðsyn krefur. Vér vonum í lengstu lög að afstaða Al- þingis til Andakílsvirkjunarinnar verði á þann eina veg, sem héraði þessu má til framfara verða og framkvæmda. Því ef hingað kemur ekki fljótlega raforka, er svarar þörfum Akraness, er óhægra um nauðsynlega aukningu útvegsins að því er tekur til alls iðnaðar honum viðkom- andi, sem og margvíslegs annars iðnað- ar, sem skapast og viðhelzt aðeins fyrir þetta undraafl. Það verður því að leggja höfuð áherzlu á framkvæmd virkjunar- innar, og fylgjast vel með því, að þar á verði enginn dráttur fram yfir ítrustu nauðsyn. Skilyrði til aukningar flotans hér er í flestum tilfellum orðin ágæt og viðun- andi, nema að því er tekur til hafnarbót- anna. Vér höfum góðan frystihúsakost. niðursuðu og fullkomna vinnslu á bein- um. Hér er dráttarbraut og vélsmiðjur. En af því sem hér er nefnt má sjá, hver þörf er á nægu rafmagni. Þess þá held- ur, sem hina mestu nauðsyn ber til að kaupa varavél til rafmagns vegna verk- smiðjunnar. Síðastliðna vetrarvertíð voru bræddir í verksmiðjunni 628.072 lítrar lifrar, sem vænta má að sé allt að einnar milljón króna .virði. Af þessu dæmi má sjá, hve hin minnsta truflun í þessu efni getur valdið miklu tjóni. Á Akranesi er nú þegar allmikill húsa- kostur, land Qg vergögn til aukningar útvegsins, nóg og gott vatn. En þó allt lítils- eða einskis virði, ef hið eina vant- ar: Meiri hafnarbœtur. í því trausti að þær komi, þegar vér getum og viljum, verður að auka við flotann undir eins og færi gefst og það telst skynsamlegt. Þangað til hafnarbæt- urnar eru komnar lengra á veg er senni- legast, að 50—100 smálesta mótorbátar séu frekast við vort hæfi. í því efni ber vafalaust að stefna að nýbyggingum eða kaupum á nýjum eða nýlegum skipum, a. m. k. sem aðalreglu. Liggur það svo í augum uppi, að ekki virðist þurfa að færa þar að frekari kröfur. Því miður þarf víst miklu meira til en að hugsa þetta og segja, því ómögulegt er að spá nákvæmlega eða hugsa sér hvernig viðhorfin verða eftir stríðið, að því er þessi mál snertir yfirleitt; bæði um byggingu og rekstur atvinnutækj- anna. Hitt er vitað, að þörf vor til starfs og stríðs í þessum efnum er söm og jöfn, og hverfur ekki þótt almenningur hafi um nokkur ár haft rýmri fjárráð. Þeir fjármunir hafa farið eða verða þá farnir víðs vegar, því margir hafa eins og oft áður verið þess örari við sjálfa sig eða aðra, sem þeir hafa aflað meir en áður, eða ráðist í það, sem þeim var mest þörf á að leysa og í sumum tilfellum fest fé þar, sem það rýrnar meira og minna. Það verða sjálfsagt margir varir við það einn góðan veðurdag, að stríðsgróðinn hefur „gufað upp“ rjá þeim, eins og oft hefur brunnið við áður. Samkvæmt núgildandi lögum (hvað lengi sem þau standa) er nokkurs styrks að vænta til nýbyggingar smærri skipa. Það má segja að í neyð sé það þakkar- vert. En haldbetra væri það og heppi- legra, ef fært væri að reka atvinnutæk- in þann veg, að þau þyrftu ekki að vera styrkþurfar og lifa af molum, því í flest- um tilfellum veikir það viðnámsþrótt þeirra er þyggja og ala þá upp í því að gera kröfur og sækja til annarra það, sem betra er hjá sjálfum sér að taka. Reynslan mun sanna fyrr en margan grunar, að erfiðleikarnir verða ærnir, og að þá reynir ef til vill meira á þolrifin en oft áður. Að þá þarf — ef vér eigum að horfa fram og komast áfram — miklu rneiri samhug og samvinnu um lausn vandamálanna en nokkru sinni áður. — Ennþá virðist fátt benda til að um slík- an samhug og samtakamátt sé að ræða á hærri stöðum um landsmálaviðhorfið. Eólkið í smábæjunum væri því menn að meiri, ef það gæfi tóninn í þessum efn- um. Stórvirki og erfið viðfangsefni verða aldrei vel eða fullleyst nema með slíku sameiginlegu átaki eða skilningi og vel- vilja fjöldans. Á þetta ekki sízt við um vora tíma og þá, sem fram undan bíða vor. Bæirnir eiga að gera sem allra mest að því að leysa sjálfir — og sem mest einir — sín eigin vandamál. Ekki að vera með kvabb eða kvörtun um hvert, smáræði til ríkissjóðsins. Þeir eiga þvert á móti og af fullkominni alvöru að vinna á móti gengdarlausum fjáraustri til alls og allra úr ríkissjóði. A. m. k. til margs þess, sem fé væri betur ónotað til. Það mun sannast — því miður fyrr en varir — að ríkissjóðurinn er nú ekki óþrotleg nægtalind, og það koma — því miður — þeir tímar, sem ekki verður eins hægt um vik að „sópa“ þangað fé — né þaðan — sem nú um stund. Oft — og fyrir mörgum árum — hef ég getið um þá miklu nauðsyn þess, að ríkissjóður gerði skipulegar áætlanir um framkvæmdir fram í tímann — fyrir landið í heild. — Þessa þurfti ekki með meðan ekkert var gert eða hugsanlegt að gera. En síðan farið var hér á stað með stórstígar framfarir á mörgum svið- um, var þetta og er hin mesta nauðsyn. Um þetta atriði eitt mætti skrifa langt mál og væri það meiri nauðsyn en margt annað, sem skrafað er um af miklum móði. Vér Akurnesingar höfum ekki af miklu að státa um menningu og framfarir. — Ýmislegt bendir þó til viðleitni í þá átt, þó meira mætti það vera og röggsamleg- ar að unnið. Til þessarar viðleitni má telja nefndarálit það, er atvinnumála-

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.