Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2004, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST2004
Fréttir DV
Ragnar Sigurjóns-
son fiskútflytjandi
Fjölskyldan hefuraf-
neitaö honum.
íkveikjur á
Vopnafirði
Kveikt var í tveimur hús-
um á Vopnafirði um helg-
ina. Aðfaranótt sunnudags
kom upp eldur í húsi við
Miðbraut ellefu og var það
gangandi vegfarandi sem
kom að húsinu þar sem eld-
ur logaði upp með hurðar-
gaflinum. Slökkviliðið var
kallað á staðinn og slökkti
eldinn. f fyrrakvöld kom svo
í ljós að eldur hafði einnig
verið borinn að gluggatjöld-
um í Steinholti 4. Ekki var
um miklar skemmdir að
ræða. Lögreglan á Vopna-
firði hefur engan grunaðan
en málið er í rannsókn.
Hún segir að líklegt þyki að
sá sem eldanna kveikti hafi
ætíað að skemma meira en
úr varð. Húsin voru bæði
mannlaus.
Bremsurnar
voru nýjar
„Bremsurnar í trukkn-
um voru nýjar," segir Guð-
jón Magnússon, sem
steypti trukk sínum fram af
einbreiðri brú á mánudag-
inn til að forða stórslysi.
„Ég horfði nýlega á þegar
skipt var um þær allar. Bíll-
inn var fullhlaðinn að
koma úr brekku, þess
vegna gat ég ekki stoppað.“
Jóhannes Björgvinsson,
lögregluvarðstjóri í Búða-
dal, segir að sett hafi verið
út á ákveðin atriði varðandi
öryggisbúnað í skoðunn-
arskírteini trukksins frá
aprílmánuði. Guðjón sagði
að það eina sem skipti sig
máJi sé að allir hafi lifað af
og að hann láti sér annað
litíu varða.
Löggan þarf
ekki lífverði
„Erlendir þjóðhöfðingjar
og ráðamenn sem hingað
koma á vegum íslenskra
stjórnvalda hljóta gæslu í
samræmi við alþjóðlega
sáttmála,"
segir Jón
Bjartmarz yf-
irlögreglu-
þjónn. í DV í
gær var viðtal
við tvo lífverði
sem gagn-
rýndu lögregluna fyrir að
hafa af þeim verkefni.
„Þetta er einfaldlega
ekki rétt hjá þeim. Sérsveit-
armenn sem sinna þessum
störfum eru menntaðir í
þeim.“
Aðspurður um hvort
lögreglan hafi einhvern
tímann notið hjálpar
menntaðra lífvarða svarar
Jón Bjartmarz neitandi.
„Við sinnum okkar starfi
eins og lögreglan í ná-
grannalönd-
unum,
ir Jón.
„Þannig er
það bara.“
Ragnar Sigurjónsson fiskútflytjandi var framseldur frá Taílandi um helgina. Hann
á yfir höfði sér dóm í fjársvikamáli en hann yfirgaf landið fyrir fimm árum meðan
réttarhöldin voru enn í fullum gangi. í dag hefur fjölskylda Ragnars afneitað
honum. Guðmundur Thorlacius. sonur Ragnars, segir hann ekki lengur föður sinn.
Eina sem hann viti um pabbann sé það sem hann les í blöðunum.
Fjölskyldan afneitar
Ragnari fjársvikara
„Hann bara fór og við vissum ekkert," segir Guðmundur Thor-
lacius Ragnarsson, sonur Ragnars Sigurjónssonar sem var fram-
seldur frá Taílandi síðustu helgi. Um fimm ár eru síðan Ragnar
flúði fsland meðan réttarhöld í fjársvikamáli á hendur honum
stóðu yfir. Ragnar yfirgaf konu sína og tvö börn sem hvorki vissu
um málaferlin né hvert Ragnar hafi farið.
„Hann er löngu kominn út úr okk-
ar Jífi,“ segir Guðmundur en hann
vinnur í dag sem lögfræðingur hjá
íjármálaráðuneytinu. „Eina sem ég
veit um manninn les ég í blöðunum.
Það er staðan hjá okkur öllum. Hann
bara fór og við héldum að hann ætl-
aði að koma aftur. Það eru fimm ár
síðan."
Ragnar var ákærður fyrir að svíkja
fjórar milljónir út úr Nígeríumanni.
Hann seldi honum 1000 þorskhausa
en afhenti aldrei vöruna. Málið vakti
mikla athygli á sínum tíma. Nokkrum
dögum áður en þriðja þinghaldið átti
að hefjast flaug Ragnar til London þar
sem hann hvarf sporlaust.
Hringdi bara til að biðja um
pening
Lögreglan í Bretíandi hóf um-
fangsmikla leit að Ragnari og Interpol
lýsti eftir honum í 177 löndum. Fjöl-
skyldan hér heima beið í óvissu.
Ragnar hafði haldið réttarhöldunum í
fjársvikamálinu leyndum fyrir sínum
nánustu en skyndilega komst allt upp
á yfirborðið. Þremur og hálfum mán-
uðieftiraðRagnar hvarf hringdi hann
í dóttur sína.
„Við vorum hrædd meðan leitin
stóð yfir í Bretíandi," segir Guðmund-
ur. „Við vorum í góðu samstarfi við
lögregluna úti en vissum í raun ekk-
ert. Eina sem við vissum var að hann
Ragnar fór. í dag hef-
ur fjölskyldan afneit-
að Ragnari. íþeirra
huga er hann ekki til.
hefði svikið okkur. Svo skyndilega
hringir hann í systur mína. Hann var
að biðja um pening. Það var eina
skiptið sem hann hafði samband. Til
að biðja um pening."
Neitaði að gefa upp rétt nafn
Eftir símtalið varð ljóst að Guð-
mundur hafði flúið til Taílands. Lög-
reglan hér á landi hafði samband við
hann en Ragnar neitaði að koma
sjálfviljugur heim. Farið var fram á
við taílensk stjórnvöld að Ragnar
yrði framseldur og árið 2000 var
sú beiðni samþykkt ef hann
kæmist í þeirra vörslu.
Það gerðist í maí á þessu ári
þegar Ragnar var handtekinn í
Taílandi fyrir smáþjófnað. í
fangelsinu neitaði Ragnar að
gefa upp rétt nafn og krafðist
þess að fá samband við ís-
lenska ræðismanninn. Með
því að hafa sambandi við
hann vissi Ragnar að hann
yrði sendur heim. En taílensk
fangelsi eru jafnvel verri kostur
en sá að gera upp við fortíðina
hér heima á Fróni.
Fjölskyldan afneitar Ragnari
Guðmundur, sem vill frekar titía
sig Thorlacius en Ragnarsson, segir:
„Við höfðum ekki hugmynd um að
hann ætíaði að koma. Hann
hringdi ekki í okkur og lög
reglan lét okkur ekki vita.
Ég uppgötvaði þetta
þegar ég las DV á
þriðjudags
morg-
Af viðtölum við aðra fjölskyldu-
meðlimi má greina mikla sorg varð-
andi málið; meiri svik en hann hefði
haft í frammi væru vart hugsanleg.
Guðmundur sonur hans vill hins veg-
ar ítreka að Ragnar sé ekki lengur
hluti af fjölskyldunni. Hann sé í raun
ekki til í þeirra augum.
„Við lifum öðru lífi í dag,“ segir
Guðmundur Thorlacius, sem hefur
þurft að sjá föður sinn snúa við sér
baki. Aðspurður hvort hann hafi af-
neitað föður sínum segir hann: „Auð-
vitað. Hann er eklá til í mínu lífi í
dag.“
simon@dv.is
Fellihýsi á raðgreiðslum
Svarthöfði hefur ákveðið að byrja
að safna fyrir nýjum jeppa og felli-
hýsi fyrir næsta sumar. Fátt er betur
til þess fallið að auka veg manns á
meðal samborgaranna en aka glæst-
um jeppafáki með íbúðarvirði
dinglandi í rassgatinu. Frá fjöru til
fjalla og um þorp og bæi mun Svart-
höfði ásamt vísitölufjölskyldu sinni
vekja aðdáun eyjaskeggja. Ein vika á
landinu bláa með jeppa ásamt hjól-
hýsi í eftirdragi yrði óborganleg.
Svarthöfði á sínum meðal-
launum hrekkur í kút þegar þetta
orð „óborganleg" flýgur um huga
hans. Kaldur hrollur læðist niður
eftir baki Svarthöfða þegar honum
Svarthöfði
verður hugsað til þess að hann
neyðist líklega til að setja annað
tveggja, farkostinn eða viðhengið, á
raðgreiðslur eða víxil. Samkvæmt
einföldum hugarreikningi gæti
Svarthöfði með harmkvælum lagt
fyrir 20 þúsund krónur á mánuði
sem þýðir 240 þúsund á ári upp í
fjárfestingu sem nemur um 12 mUlj-
ónum króna. Þá er ljóst að miðað við
vikuferðalag þá myndi gistinóttin
kosta um milljón krónur.
Nú er Svarthöfði enginn Jón Ás-
geir með 12 milljónir á mánuði og
Hvernig hefur þú það?
Garðarsson, útvarps- og sjónvarpsmaöur„Ég er að taka til í bflskúrnum og hefþað bara
Þessi tiltekt er búin að bíða í þrjú ár og ég er feginn að vera byrjaður. Hálfnað er verk þá hafið
er. Ég ersvona hálfnaður."
raðgreiðslur frá sumri og fram á
haust myndu shga fjárhag hans og
allra nánustu ættingja. Svarthöfði
andvarpar þegar honum verður
hugsað til gamla tjaldsins sem hann
erfði eftir ömmu sína. Tjaldið hafði í
gegnum tíðina heillað hal og sprund
í Þórsmörk og Atíavík enda er það
með himni. Tjaldið, sem framleitt
var af Belgjagerðinni, er farið að láta
á sjá en verður samt að duga enn um
sinn.
Hámarkið, ef miðað er við af-
komu og greiðslugetu, að mati
Svarthöfða var þó að fjárfesta í
gömlum tjaldvagni sem hægt væri
að hengja aftan í ijölskyldubfl Svart-
höfða sem er af gerðinni Golf árgerð
1981. Slflct apparat vekti að vísu
nokkra athygli en athygli er eitthvað
sem Svarthöfði er vanur. Eina sem
skiptir Svarthöfða máli er að snúa
lyklinum og keyra af stað.
Svarthöfði