Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2004, Side 18
18 FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST2004
Sport DV
Þrjú félög
með fulltrúa
KSÍ veitti í gær viður-
kenningu fyrir leikmenn
7.-12. umferða í Lands-
bankadeild karla. Athygli
vakti að aðeins þrjú félög -
FH, ÍBV og Víkingur - áttu
fulltrúa í liðinu. Birkir
Kristinsson er markvörður í
liðinu. f vöminni em Grétar
Sigfinnur Sigurðsson, Freyr
Bjarnason, Tommy Nielsen
og Mark Schulte.
Miðjumenn em Heimir
Guðjónsson, Bjamólfur
Lámsson, Kári Árnason og
Emil Hallfreðsson.
Framherjar eru síðan
Gunnar Heiðar Þorvaldsson
og Jermaine Palmer.
Gunnar Heiðar var að auki
valinn besti leikmaður
umferða 7-12. Sigurður
Jónsson, þjálfari Víkings,
var valinn besti þjálfarinn
og Egill Már Markússon
besti dómarinn. Athygli
vekur að enginn KR-ingur
er í liðinu en þetta er í
fyrsta skipti sem þeir eiga
engan fulltrúa síðan KSI
byrjaði með þessar
viðurkenningar.
Kippur
kominn í
miðasölu
Aðstandendur ÓL í
Aþenu kætast þessa
dagana því mikill kippur
er kominn í miðasölu. Á
miðvikudag var sett met
er tæplega 50 þúsund
miðar vom seldir á
einum degi. Nú hafa
selst 2,5 milljónir miða á
íþróttaviðburði leikanna
en langt er samt í land
því rúmlega fimm
milljón miðar em í boði.
Wengerneitar
öllu
Arsene Wenger, fram-
kvæmdastjóri Arsenal,
neitaði því í samtali við
breska fjölmiðla í gær að
Real Madrid og Arsenal
væm búin að komast að
samkomulagi um kaupverð
á miðjumanninum Patrick
Vieira. „Ég neita því
algjörlega að við séum
búnir að samþykkja tilboð
frá Real,“ sagði Wenger.
„Annars hef ég ekkert meira
um málið að segja." Þrátt
fyrir þessi ummæli
Wengers em spænskir
fjölmiðlar enn sannfærðir
um að búið sé að semja um
kaupverð og að Vieira sé á
leiðinni til Madrid.
Meo vængnaf eins
og albatros
Það er engin furða að
Þjððverjinn Michael Gross
skuli hafa verið uppnefndur
Albatrosinn. Þessi merki
sundmaður er 2,01 metri á
hæð og „vænghaf" hans er
2,11 metrar.
Gross vann sitt fyrsta ólympíu-
gull þann 29. júlí 1984 þegar hann
kom fyrstur í mark í 200 metra
skriðsundi og þar að auki sló hann
heimsmet sem hann átti reyndar
sjálfur.
Daginn eftir var Gross aftur
mættur ferskur í laugina þar sem
hann nældi sér í gull í 100 metra
flugsundi og sló aftur heimsmet.
Flestir áttu von á því að Gross
myndi vinna sitt þriðja gull í 200
metra flugsundi en lítt þekktur
kappi frá Ástralíu, Jon Sieben að
nafni, sló honum við og kom við
bakkann á undan Gross. Þrátt fyrir
Þrátt fyrír tapið var
Gross auðmjúkur í
viðtölum við fjölmiðla
þar sem hann kaus að
hrósa Sieben í hástert
í stað þess að væla.
Þessi framkoma færði
Gross mikla virðingu.
tapið var Gross auðmjúkur í
viðtölum við fjölmiðla þar sem
hann kaus að hrósa Sieben í hástert
í stað þess að væla. Þessi framkoma
færði Gross mikla virðingu.
Þrátt fyrir þetta áfall þá réð Gross
ríkjum í 200 metra flugsundinu frá
1981 til 1988. Hann sigraði á
tveimur heimsmeistaramótum,
fjórum Evrópumótum og setti
fjórum sinnum heimsmet í
greininni.
Gross mætti til leiks á ný á ÓL
1988 sem fram fór í Seoul í Suður-
Kóreu. Þar urðu Gross ekki á nein
mistök heldur sigraði hann örugg-
lega í 200 metra flugsundinu og tók
í sínar hendur gullið sem hann hefði
átt að vinna fjórum árum áður.
Gross vann til fleiri verðlauna á
ólympíuleikunum því hann var
einnig í boðsveit Vestur-Þjóðverja í
200 metra skriðsundi. Sú sveit fékk
silfur árið 1984 og brons árið 1988.
DV telur niöur að
ólympíuleikunum í Aþenu
með því að skyggnast í sögu leikanna sem fara
nú fram í 28. sinn.
Á ferð í gegnum ólympíusöguna - ý dagar til 28. leikanna í Aþenu
XX 1972
VISSIRÞÚ?
í Miinchen var í fyrsta skipti (52 ár
keppt í bogfimi á ólympíuleikunum.
Ólympíuhetjan...
Það var f fyrsta skipti keppt í
handknattleik á ÓL 1972.
Dómarar sóru ólympíueið í fyrsta
skipti í Munchen.
Það vakti mikla athygli þegar
Mark Spit/. lýsti því yfir fyrir ÖI.
1988 að hann ætlaði sér að vinna
sex gullverölaun. Hann stóð ekki
við stórti orðin en kotn þó heiin
tneö tvö gull og eitthvað af silfri og
bronsi.
Spitz gafst ekki upp heldur
mtetti enn ákvcðnari á OI, 1972.
Ilann byrjaöi í 200 metra llttg-
sundi þar st*m hann vann og setti
heimsmet. Stðar samtt kvöld í'ékk
hann sitt annaö gull er hann synti
til sigurs í 4x100 metra skriðsundi
með félögum sínum. Daginn cftir
sigraði Spitz t 200 metra skriö-
sundi og aítur setti hann heims-
met.
Tveimur döguin síðan tók
hann þátt í 100 metra flugsundi og
4x200 metra skriösundi. Aftur
landaði hann tveimur gullverð-
launum og tveimur heimsmetum.
Slakastur þótti Spitz í 100 metra
skriðsundi en hann blés á slíkar
vangaveltur. Signiði og setti enn
eitt heimsmetiö.
Spitz hafði ekki lokið keppni
þar því hann vann síöan gull og
setti heimsmet með félögum sín-
um í 4x100 metra fjórsundi.
Uppskeran: Sjö gull og sjö
heimsmet á átta dögum. Þann
árangur hefur enginn íþrótta-
maður leikiö eftir.
Munchen í Þýskalandi
26. ágúst til 11. september 1972
FJÖLDIÞJÓÐA 121
FJÖLDIKEPPENDA 7134
6075 KARLAR, 1059 KONUR
FJÖLDIÍÞRÓTTA 23
FJÖLDIÍÞRÓTTAGREINA 195
ÞJÓÐIR MEÐ VERÐLAUN 48
Þjóðir með Sovétríkin 50
flestguH Bandaríkin 33
Umsækjendur um leikana:
Detroit, Montreal og Madrid.
Leikamir í MOnchen voru almennt
taldir bestu leikarnir frá upphafi. Það
setti aftur á móti Ijótan blett á
leikana að á morgni 5. september
ruddust átta arabískir hryðjuverka-
menn inn í ólympiuþorpið. Þeir tóku
gísla og myrtu síðan ellefu ísraelska
íþróttamenn aðeins tuttugu kíló-
metrum frá útrýmingar-búðunum í
Dachau. Leikunum var frestað í 34
tíma I kjölfarið og minningarathöfn
var haldin á aðalvellinum til að
minnast ísraelsku fórnarlambanna.
Eftir mikil funda-höld ákvað formað-
ur alþjóða ólympíunefndarinnar að
leikunum skyldi verða haldið áfram.
Frægt er þegar hann segir í ræðu
sinni. „The games must go on".
Það voru mörg met sett (Múnchen.
Aldrei höfðu fleiri þátttakendur
tekið þátt í leikunum og (þrótta-
greinarnar höfðu heldur aldrei verið
fleiri.