Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2004, Síða 19
DV Sport
FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST2004 19
Glæsileg Handknattleiksmaðurinr) Guðjón Valur Sigurðsson og sundkonan Kristín Rós
Hákonardóttir voru glæsileg er þau kynntu einkennisfatnað íslensku óiympiufaranna.
DV-mynd Vilhelm
íþróttasamband íslands hefur tilkynnt hvaða íþróttamenn eru
á leið á ólympíuleikana í Aþenu sem hefjast eftir viku.
26 b leið til Ahenu
Alls munu 26 þáttakenndur keppa undir fána íslands á
leikunum. Munar þar mest um handboltalandsliðið en 15
keppendur eru í þeim hópi. Næstflestir keppendur taka þátt í
sundi, eða sjö. Tveir frjálsíþróttamenn fara út, einn fimleika-
maður og einn siglingamaður.
Reyndar gæti fjölgað í þessum
hópi þar sem hægt er að ná
lágmörkum fyrir leikana til 9. ágúst
en miðað við frammistöðu þess
fólks sem enn er að reyna við lág-
markið þá verður að teljast afar
ólíklegt að það íjölgi í hópnum.
Að sjálfsögðu eru líka þjálfarar,
flokksstjórar og forystumenn ÍSÍ á
leið út en alls verða um 50 manns í
íslenska ólympíuhópnum.
Fimm dómarar á leið út
Svo má ekki gleyma því að
íslenskir dómarar verða á leikunum.
Viðkomandi aðilar eru fyrst og
fremst að starfa á vegum alþjóðlegra
sérsambanda sinna og tilheyra því
ekki formlega íslenska ólympíu-
hópnum.
Þeir íslendingar sem eru á leið til
Aþenu sem dómarar eru Bjöm M.
Tómasson, en hann er dómari í
fimleikum karla. Berglind Péturs-
dóttir er aftur á móti dómari í fim-
leikum kvenna.
Þeir Gunnar Viðarsson og Stefán
Arnaldsson munu dæma í hand-
knattleikskeppninni og Kjartan
Steinbach verður eftirlitsdómari í
handboltanum á vegum alþjóða
handknattleikssambandsins.
Uncjmennabúðir
A meðan á leikunum stendur
munu verða starfræktar ungmenna-
búðir á ólympíuleikunum. ísland
sendir að þessu sinni þrjá
þátttakendur til Aþenu en tveir
þeirra vom valdir í tengslum við
samkeppni sem íslandsbanki og
Sjóvá-Almennar stóðu fyrir í vor í
samvinnu við ÍSÍ. Það eru þau Arnar
Már Þórisson og Sif Pálsdóttir. Þriðji
þátttakandinn að þessu sinni, Stefán
Guðmundsson, fer í boði Evrópuárs
menntunar með iðkun íþrótta en
ísland tekur þátt í því verkefni ásamt
27 öðrum Evrópuþjóðum.
íslenskt bókasafn
Edda útgáfa styrkir ÍSÍ á
leikunum með veglegri bókagjöf og
sér því ólympíuförum fyrir hollri og
fjölbreyttri afþreyingu í Aþenu.
Edda útgáfa færði ÍSÍ að gjöf tvær
bókatöskur með 110 bókum sem
samanstanda af 97 titlum sem
ÍSLENSKU KEPPENDURNIR
26 íslenskir keppendur verða á
ólympíuleikunum í Aþenu. Einnig fer
nokkurfjöldi þjálfara, fararstjóra og
dómara. Hér að neðan er listi yfir þá
einstaklinga sem keþþa fyrir [slands
hönd á leikunum i Aþenu.
Hjörtur Már Reynisson Sund
(ris Edda Heimisdóttir Sund
Jakob Jóhann Sveinsson Sund
Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir Sund
Lára Hrund Bjargardóttir Sund
Ragnheiður Ragnarsdóttir Sund
Örn Arnarson Sund
Þórey Edda Elísdóttir Frjálsar
Jón Arnar Magnússon Frjálsar
Hafsteinn Ægir Geirsson Siglingar
Rúnar Alexandersson Fimleikar
Handboltalandsliðið ISkepþendur
keppendur geta sökkt sér í meðan á
leikunum stendur.
Léttur hörklæðnaður
Á blaðamannafundi ÍSÍ var
einnig kynntur til leiks einkennis-
fatnaður íslenska liðsins en hann er
hannaður af Kristínu Halldórsdóttur
og saumaður af saumastofunni
Fasa-Föt ehf.
Vegna hitans í Aþenu er efni
fatnaðarins hör og skófatnaður er
síðan Nike-sandalar. Fatlaðir
íþróttamenn munu klæðast sama
fatnaði á sínum leikum. henry@dv.is
Með öryggið á öxlinni Gríðarleg öryggisgæsia verður á leikunum íAþenu. Grískur
hermaður, grár fyrir járnum, sést hér vappi fyrir utan aðalleikvanginn.
Bandaríska kvennalandsliðið í fótbolta
Erum öruggar í Aþenu
Bandaríska kvennalandsliðið í
knattspyrnu er komið til Aþenu og
eftir að hafa eytt tveimur dögum á
staðnum hafa þær litlar áhyggjur af
öryggi sínu.
„Ég hef ekki einu sinni haft
áhyggjur af öryggi mínu. Mér líður
mjög vel í ólympíuþorpinu," sagði
framherji hðsins, Abby Wambach,
við blaðamenn. „Það er hugsað um
hvert einasta smáatriði hérna.“
Félagi hennar í liðinu, Heather
Mitts, er yngsti leikmaður liðsins en
hún er aðeins 17 ára gömul. Hún
segist ekki hafa hugsað sig tvisvar
um að fara til Aþenu.
„Það er mikih heiður að fá að taka
þátt í ólympíuleikunum og hér líður
okkur mjög vel og við erum mjög
öruggar hér í Aþenu,“ sagði Mitts.
Grikkir munu eyða einni billjón
evra í öryggisgæslu á leikunum sem
er fjórum sinnum meira en var eytt í
öryggisgæslu í Sydney fyrir fjórum
árum.
Mikils er vænst af bandaríska
hðinu á leikunum en þær leika gegn
heimamönnum í sínum fyrsta leik.
Talið er að Grikkir munu styðja vel
við bakið á stelpunum sínum enda
er fótboltaæði í landinu eftir að
karlahðið vann EM.
„Þetta verður fyrsti leikur þeirra í
keppninni og miðað við þjóðernis-
andann sem er hjá fólkinu eigum við
von á þvl að það verði aht vitlaust á
vellinum," sagði Wambach. „Ég á
von á því að það verði margir á móti
okkur en það er allt í lagi. Það herðir
okkur bara."
Bandaríska liðið vann guh á ÓL í
Atlanta 1996 en náði ekki að verja
titilinn í Sydney. Aðeins eitt kemur
því th greina á þessum leikum; guh!
henry@dv.is
„Hvergi i heiminum fœrdu
annan eins skammt af
bröndurum d 2,5 klukku-
stundum. Kraftmikil og
sjúklega fyndin sýning!"
- B.W., Appollo Guide
1 IIC B H MI
nUvlAn!
Föstudagur
24. september
ó Broadway
Midosolo hefst 1 1. ágúst
i Skifunni Lougovegi. Simi 525 5040
Midoverdodeins 2500.-
www.soilesh.ca