Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2004, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2004, Page 22
22 FÖSTUDAQUR 6. ÁGÚST2004 Fókus DV Please, Pleáse, Please (1956) Fyrsti smellurinn. Lagið sem vakti athygli á James Brown og kom honum á samning. Papa's Got A Brand New Bag (1965) Tlmamótaverk. Lagið var und- anfari fönksins hjá James Brown og hafði mikil áhrifá þróun soul tónlistar á sjöunda áratugnum. Fram að þessum tlma hafði James mest unnið með blús, en hér var komið eitthvað nýtt. Blanda afdjass- grúvi, gospel og einhverju glæ- nýju. Lagið passaði llka vel fyrir umróta og byltingar- straumana sem einkenndu þennan tíma I bandarlskri sögu. I Got You (I Feel Good) (1965) Sennilega vinsælasta lag James Brown. Lagið opnaði dyrnar fyrirJames inn I vinsæl- ustu sjónvarpsþættina, t.d. Ready Steady Go I Englandi og Ed Sullivan Show I Bandaríkj- unum. Sígildur soul smellur sem er á ófáum soul safn- plötum. It's A Man's Mans's Man's World (1966) Óllkt öðrum lögum James Brown, It's AMan’s Mans's Marís World er ballaða sem var tekin upp meö Sammy Lowe og hljómsveit ásamt strengjasveit og meðtimum úr hljómsveit James Brown. Eftir fyrstu tökuna sagði James. „Þetta er komið!". Sammy sem var þaulvanur upþtökumaður gapti afundrun. Eitt vin- sælasta lag James I Evrópu. Say It Loud, l'm Black & l'm Proud (1968) Einkennislag fyrir réttinda- baráttu blökkumanna.„Það blöa 50 milljón manns eftir þessu lagi“ á James aö hafa sagt við hljóðfæraleikarana í stúdfóinu þegarþað var tekiö upp. Lagið gerðiJames samstundis að hetju I augum bandariskra svertingja. Funky Drummer (1970) Ekki eitt af vinsælustu James Brown lögunum (fórí5l.sæti Billboard-listans), en trommu- breikið I Funky Drummer (20 sekúndur nálægt enda lagsins) er oft nefnt sem mest sampl- aða breik sögunnar. Það hefur verið margoft notað bæði I hipphoppi og danstónlist. Trommarinn Clyde Stubble- field á heiðurinn afbreikinu, en James fær höfunda- greiðslurnar... Get Up (I Feel Llke Being A) Sex Machlne (1970) Ódauðleg klasslk sem mun seint hverfa afdansgólfunum. Eitt affyrstu lögunum sem James gerði með nýju hlómsveitinni sem hann réði eftirað gamla bandið hans gekk útl fússi I mars 1970. Hér eru bræðurnir Bootsy (bassi) og Catfísh (gítar) I stuði. Lagiö var tekið upp strax eftir tón- leika 25. apríl 1970.„Besti tlm- inn til að hljóðrita," aö sögn James. The Payback (1974) Eins og öll lögin á samnefndri plötu er þetta langt og kraum- andi fönklag. The Payback sem var tvöföld með átta lögum er oft nefnd sem besta James Brown plata áttunda áratug- arins. Þær eru samt margar góðar, t.d. Get On The Good Food og kvikmyndaplatan Black Caesar. Unlty (með Afrika Bambaataa) (1984) Afrika Bambaataa er einn af upphafsmönnum hipphopp- tónistarinnar. Hann hefur alla tlð verið undirmiklum áhrifum fráJames Brown. Lagið er vel heppnað og samstarfið mikill heiður fyrir þá báða. Living In America (1985) Ekki byitingarkennt eða merki- legt lag I sjálfu sér, en þetta er síðastaJames Brown lagið sem náöi vinsætdum. Lagið var I kvikmyndinni Rockt IV. Það náði 4. sæti á Billboard-listan- um. Það er skammt stórra högga á milli í tónleikahaldi í Reykjavík þessar vikurnar. Þann 28. ágúst er komið að sjálfum James Brown sem er einn af áhrifamestu tón- listarmönnum síðustu 50 ára þó hann hafi undanfarin ár oftar komist í fréttirnar vegna eiturlyfjaneyslu og heimilisofbeldis en vegna tónlistarafreka. Trausti Júlíus- son kynnti sér viðburðaríkan feril hans. Áhrif James Brovm á tónlistar- söguna verða seint ofmetin. Hann hefur verið að í rúma hálfa öld. Hann átti stóran þátt í þvl að rhythm & blues tónlistin þróaðist yfir í soul undir lok sjötta áratugarins og hann var í fararbroddi þegar fönkið varð til upp úr miðjum sjöunda áratugn- um. James hefur líka haft mikil áhrif á þá tónlistarmenn sem hafa komið fram síðustu áratugi. Hann er sá tónlistarmaður sem hefur haft mest áhrif á hipphopp-tónlistina, en áhrifa hans gætir mjög víða. Þau eru augljós hjá Michael Jackson Prince og George Michael, en teygja sig út um allt í poppinu, rokkinu og djass- inum... Þó að James sé ekki fyrirferðar- mikill í efstu sætum vinsældarlista í dag þá á hann að baki fleiri lög sem hafa komist inn á Topp 100 í Banda- ríkjunum heldur en allir aðrir tón- listarmenn í sögunni að Elvis Presley undanskildum. James hefur gefið út yfir 800 lög og 96 þeirra hafa farið í eitthvað af 100 efstu sætunum á bandaríska smáskífulistanum. Alinn upp í sárri fátækt James Brown fæddist 3. maí 1933 í Barnwell í Suður-Karólínu. Móðir hans skildi hann eftir í umsjá föður- ins þegar hann var þriggja ára. Fyrst eftir það bjó hann hjá pabba sínum, en þegar hann var fimm ára flutti hann til frænku sinnar, Handsome Washington, oftar kölluð Honey, sem bjó í Augusta í Georgíu. Honey rak vændishús, spilavíti og sprútt- sölu. Á næstu árum var James m.a. í því að útvega viðskiptavini fyrir heimilisfyrirtækið. Hann var strax harðduglegur og dansaði á götum úti og bónaði skó fyrir peninga. Hann fékk fljótlega áhuga á tónlist og lærði að spila á munnhörpu, trommur og píanó. Þegar James var orðinn 15 ára fór hann hinsvegar að brjót- ast inn í bfla og hús og ári seinna var hann dæmdur í átta ára fangelsi fyrir röð af þjófhuð- um. í fangelsinu æfði James hafna- bolta stíft og spilaði á fangelsis- píanóið. Hann frétti af söngvaran- um Bobby Byrd á meðan hann sat inni. Hann sendi honum bréf og það var ekki síst fyrir tilstilli Bobbys að honum var sleppt eftir þrjú ár. James gekk til liðs við hljómsveit Bobbys, The Gospel Starlighters. Hún breyttist í The Flames og síðar í The Famous Flames. í upphafi spil- aði James á trommur, en varð fljót- lega aðalsöngvari og leiðtogi sveitar- innar. James gerði samning við King plötufyrirtækið í janúar 1955 og ári seinna kom fyrsta smáskífan hans, Please, Please, Please út. Blómaskeiðið 1965-1974 Ferill James Brown & The Famous Flames fór hægt af stað, en árið 1959 sló lagið Try Me í gegn. Á sjöunda áratugnum átti James svo fjölmarga smelli og sendi frá sér 2-3 stórar plötur á ári. Merki- legust þeirra var tónleika- platan Live At The Apollo Vol 1. James var sann- færður um það að tón- leikaplata seldist, en King fyrirtækið var á öðru máh og þvertók fyrir að borga upp- tökurnar. James lagði þá út fyrir þeim sjálfur og þegar platan kom út sumar- ið 1963 sló hún í gegn, seldist í yfir milljón eintökum og var mest selda plata Krng í mörg ár. Á meðal laga sem slógu í gegn með James Brown á sjöunda áratugnum má nefna Think, Out Of Sight, Papa’s Got A Brand New Bag, I Got You (I Feel Good), Cold Sweat, Say It Loud I’m Black & I’m Proud og Ain’t It Funky. Á fyrri hluta áttunda áratugarins var svo blómaskeið James Brown. Tónlistin hafði þá þróast út í feitt og margslungið fönk og James bókstaf- lega mokaði út snilldarverkunum. Á einu ári, 1971-1972, sendi hann frá sér 10 smáskífur sem fóru inn á Topp 10 á r&b lista Billboard og á ár- unum 1970-1974 sendi hann frá sér 14 stórar plötur með nýju efni, þ.á m. voru fimm tvöfaldar. Um miðbik áratugarins þegar diskóið ruddi sér til rúms minnkaði hinsvegar áhug- inn á James (og salan) og við það var eins og innblásturinn hyrfi. Ótrúleg vinnusemi og metn- aður Það sem einkennir feril James Brown meira en nokkuð annað er vinnusemi og metnaður. James hef- ur alltaf gert gríðarlegar kröfur til sjálfrar sín og allra í hljómsveitum sínum. Þeir voru sektaðir ef þeir gerðu mistök á tónleikum og álagið á þeim var sérstaklega mikið. Þegar James spilaði í Apollo Theater í Harlem árið 1962 þá bókaði hann húsið í viku og svo var spilað fimm sinnum á dag alla dagana. Eftir tón- leika var svo stundum farið í hljóð- ver og tekið upp fram á morgun. Metnaðurinn hjá James sést á því að frá árinu 1968 fór hann að kaupa útvarpsstöðvar. Hann hafði um nokkurt skeið haft þann háttinn á að hann fékk vinsæla útvarpsmenn til þess að kynna hann á tónleikum og borgaði þeim vel fyrir. Þetta tryggði auðvitað að þeir spiluðu plöturnar hans. Þar sem hann borgaði þeim bara fyrir að koma fram á tónleikum þá var þetta allt löglegt. 1968 ákvað hann að ganga skrefi lengra og 3. maí 1933 - James Joe Brown fæðist (Bamwell, Suður Karólínu. Hann virðist ekki ætla að lifa fæð- inguna af (andar ekki), en Minnie frænka hans blæs lífi í hann. 1935-1938 - Eftir að móðir hans fer burt býr James með föður sínum í kofaræksnum hér og þar í Barnwell. Þeir búa við sára fátækt. James litli er mikið einn á meðan pabbi hans er að vinna. 1938 - James flytur til Honey, frænku sinnar í Augusta í Georgíu, þar sem hann elst upp. Á heimilinu er sprúttsala, fjárhættuspil og vændi. 1944 - James vinnur hæfileika- keppni í Augusta með laginu So Long. 1949 - James er dæmdur í átta ára fangelsi fyrir innbrot í hús og bfla. 1953 - James er sleppt úr fangelsi fyrir góða hegðun. Hann gengur tfl liðs við The Gospel Starlighters sem Bobby Bird leiðir. Hljómsveitin þró- ast yfir í The Flames, hættir í gospel tónlist og fer yfir í r&b. 1. nóv. 1955 - The Famous Flames hljóðrita lagið Please, Please, Please í WIMM stúdíóinu í Macon, Georgíu. 23.jan.1956 - James gerir samn- ing við King/Federal plömfyrirtækið. 1. okt. 1958 - Try Me, fyrsta James Brown lagið sem fer á topp Billboard r&b listans kemur út. 24. okt .1962 - James leggur sjálf- ur út fyrir upptökum á tónleikum í Appollo Theater í New York. 30. júní 1963 - Live At The Apollo Vol. 1 kemur út. Platan slær í gegn og selst í yfir milljón eintökum og gjörbreytir hugmyndum fólks um tónleikaplötur. 1. feb. 1965 - James tekur upp lagið Papa’s Got A Brand New Bag

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.