Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2004, Side 23
DV Fókus
FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST2004 23
Margarflottar
útgáfur í boði
Það er ógrynni af James
Brown plötum á markaðn-
um. Margar af gömlu plöt-
unum hans hafa verið end-
urútgefnar (t.d. kvik-
myndaplöturnar Soul On
Top, Black Caesar og
Slaughter’s Big Rip Off og
eðalverkin The Payback og
Get On The
Good
Foot), en
svo eru
líka ótal
safii-
plötur
og tón-
leikaplötur
£ boði. Af tón-
leikaplötunum eru Live At
The Apollo 1 og 2 bita-
stæðastar, en af safnplöt-
um er valið erfiðara.
Einfalda safnplatan 20
AIl Time Greatest Hits
stendur vel fyrir sínu, en
hin tvöfalda 50th Anni-
versary Collection er tölu-
vert betri. Það eru líka til
mjög vandaðar
safnplötur
sem taka
fyrir
ákveðin
tímabil,
t.d. Make
It Funky,
tvöföld
platasemtek-
ur fyrir árin 1971-1975.
Fyrir þá sem vilja kafa
aðeins nánar í feriÚnn er
óhætt að mæla með fjög-
urra diska pakkanum Star
Time. Hann kom upphaf-
lega út árið 1991 og þótti
einstaklega vel unninn og
pottþéttur. Það er nýbúið
að endurútgefa hann í
nýjum umbúðum. Það
segir sitt um gæðin að það
hefur ekkert verið átt við
innihaldið. Þetta eru sömu
lögin og sömu ritgerðirnar
í bæklingnum.
Universal á í dag út-
gáfuréttinn af öllum helstu
verkum James Brown. Það
er slatti af ódýrum James
Brown plömm í boði sem
ekki eru frá Universal. Það
eru undantekningarlítið
annars flokks upptökur.
sem markar upphafið af fönk-tíma-
bilinu. Lagið slær í gegn um
sumarið.
1965 - I Got You (I Feel Good)
kemur út.
1968 James gefur út Say It Loud,
I’m Black & I’m Proud, - lagið verður
einkennislag réttindabarátm
þeldökkra Bandaríkjamanna.
1. Jjúlí 1971 - James gerir samning
við Polydor Records.
1972 - James lýsir yfir stuðningi
við Richard Nixon í forsetakosning-
unum. Á honum skellur bylgja
haturs og fyrirlitningar frá leiðtogum
blökkumanna.
1. sept. 1974 - James spilar fyrir
120.000 manns á tónleikum í Zaire.
1. sept. 1979 - James gerir mis-
heppnaða tilraun til þess að heilla
diskókynslóðina með plötunni The
Original Disco Man.
1. júní1980 - James leikur óðan
prest í kvikmyndinni The Blues
Brothers.
1. sept. 1984 - James gerir lagið
Unity með rapparanum Afrika
Bambaataa.
1986 - Lagið Living In America (úr
Rocky 4) slær í gegn.
1986 - Eric B. & Rakim sampla
James Brown í laginu Eric B. Is
President. Lagið er eitt ótal
hipphopp-laga sem notast við tón-
listina hans
23. sept. 1986 - James er tekinn
inn £ Rock & Roll Hall Of Fame.
15. des. 1988 - James er dæmdur
f sex ára fangelsi fyrir lfkamsárásir,
ólöglega meðferð skotvopna, fyrir að
keyra fullur og fyrir að reyna að
stínga lögguna af. Hann situr inni £
tvö og hálft ár.
1991 - Fjögurra diska kassinn Star
Time sem spannar allan ferilinn
kemur út.
25. feb. 1992 - James fær
Grammy-verðlaun fyrir ævilangt
framlag til tónlistarinnar.
Jan. 2004 - Ákærður fyrir heimil-
isofbeldi.
Sumar 2004 - Spilar fyrir tugi
þúsunda á Glastonbury og í Hyde
Park (upphitun fyrir Red Hot Chili
Peppers).
" B,.»n «
skemmtarwbransanum, so b 66 9 fl)Jf vjðurnefni
kaupa valdar útvarpsstöðvar.
f mars 1970 þegar hljómsveitin
hans hótaði að ganga út f heilu lagi
ef meðlimirnir (sem var vitanlega
útjaskað fyrir lág laun) fengju ekki
launahækkun þá réði James sam-
dægurs unglingahljómsveitina The
Pacesetters f staðinn. í henni voru
m.a. Bootsy og Catfish Collins sem
seinna gerðu það gott með George
Clinton í Parliament/Funkadelic.
James og Bobby Byrd kenndu Paces-
etters prógrammið síðdegis og tón-
leikarnir sem voru á dagskránni um
kvöldið fóru fram með nýju bandi,
þó þeir hafi reyndar byrjað aðeins of
seint. Þegar Bootsy og félagar
stungu af fáum árum seinna til þess
að ganga til liðs við George Clinton
þá fann James bara enn aðrar stjörn-
ur til að spila með.
Ruglið...
Um miðjan áttunda áratuginn
fór að halla undan fætí hjá James
Brown. Fyrsta áfallið kom 14. júní
1973 þegar elstí sonur hans, Teddy,
dó í bflslysi. Skömmu seinna tóku
bandarísk skattayfirvöld hann til
rannsóknar og svo hættu plötumar
hans að seljast eins vel og áður.
James misstí smám saman tökin
bæði á rekstrinum (neyddist til að
selja útvarpsstöðvamar eina af
annarri), tónlistinni og loks á sínu
eigin h'fi.
James tók mjög hart á allri eitur-
lyfjaneyslu í hljómsveitum sínum á
sjöunda og áttunda áratugnum. Það
kom því mörgum á óvart þegar hann
fór sjálfur að misnota eiturlyf. Um
miðjan níunda áratuginn var hann
farinn að nota hið stórhættulega of-
skynjunarlyf PCP, öðm nafni
englaryk, reglulega. Hann var
farinn að hegða sér furðulega
og ekki bættí úr skák að
þáverandi eiginkona
hans Adrienne var sjálf
forfallinn fíkiU.
Eitt leiddi af öðm.
Adrienne kærði hann
fyrir lfkamsárásir,
tvær dætur hans fóm
í mál við hann og
heimtuðu pening og
James sjálfur kærði
Adrienne fyrir að kveikja
í hótelherbergi þeirra í
Bedford í New Hampshire.
Hámarki náði ruglið 24. sept
ember 1988 þegar James réðst
vopnaður byssu og riffli inn á lög-
fræðingaþing sem var haldið í sama
húsi og skrifstofur hans í Augusta.
Það hafði einhver notað klósettið
hans í leyfisleysi og hann varð æfur.
Þegar lögreglan var kölluð á staðinn
stakk hann af á pallbílnum sínum og
stöðvaði ekki fyrr en löggan var búin
að skjóta dekkin á bílnum í tætíur.
Þá steig hann út, að sögn viðstaddra
algerlega út úr heiminum og byrjaði
að syngja fyrsta versið í laginu
Georgia On My Mind...
James fékk sex ára dóm, en var
sleppt eftír tvö og hálft ár. Adrianne
lést í fegmnaraðgerð 1995. Þó að
James hafi heldur
róast er hann
samt ekki
alveg
laus við
vand-
ræð-
Hann
vann
nýlega
mál gegn
fyrmm sam-
starfskonu sem
kærði hann fyrir kynferðis-
lega áreimi og síðast í janúar á þessu
ári kærði núverandi eiginkona hans,
Tomi Rae Brown, hann fyrir að
hrinda henni í gólfið...
Enn í góðu tónleikaformi
James Brown hefur ekki gefið út
plöm með nýju efni sem eitthvað er
varið í í mörg ár. Hann hefur hins-
vegar haldið áfram aö koma ffarn á
tónleikum við góðar undirtektir.
Tónleikarnir f Laugardalshöll 28.
ágúst em hlutí af tónleikaferða-
laginu „Seven Decades Of Funk“.
Með honum kemur 17 manna
hljómsveit (söngvarar, dansarar,
a.m.k þrír blásarar, tveir trommu-
leikarar, tveir bassaleikar, tveir gftar-
leikarar, slagverksleikari, hljóm-
borðsleikari...) og þó að krafturinn í
karlinum sé kannski ekki
alveg jafn mikill og á átt-
unda áramgnum þá dansar
hann samt enn á sviðinu
eins og honum einum er
lagið og stjórnar bandinu
með tilþrifum. Ef eitthvað
er að marka tónleikadóma
af netínu þá er hljómsveit-
in sem spilar með honum
líka hörku fönksveit.
Tónleikarnir í Laugar-
dalshöll eru einstakt tæki-
færi til þess að upplifa einn
af sönnum orginölum tón-
listarsögunnar og ekki
spillir fyrir að íslensku
fönkdýrin í Jagúar hita
upp. Búið ykkur undir
alvöru fönkmessu...
•»