Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2004, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2004, Side 24
24 FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST2004 Fókus DV Kvikmyndin Fahrenheit 9/11 hefur vakið sterk viðbrögð um allan heim, jafnt hjá stuðningsmönnum og andstæðingum Bush-stjórnarinnar. Kvikmyndin er sögð hafa breytt landslagi heimildarmyndagerðar til frambúðar. Krosstör litla monnsins milli demókrata og repúblikana í Bandaríkjunum sé breiðara en það hefur oft verið og að hafa skerpt þá hugmyndafræði sem einkennir þessa flokka. Þrýstihópar flokkanna hafa flykkst í þau kvikmyndahús sem sýna myndina og oft hefur verið stutt í að til átaka komi. Repúblikanar hafa staðið fyrir miklum áróði til að sverta ímynd Moores og von er á annarri heimildarmynd úr þeirra röðum sem þeir segja að sýni að Moore einfald- lega hati Bandaríkin. Michael Moore vakti fýrst al- menna athygli fyrir heimildarmynd sína Roger and Me sem fjaliar um leit flytja verksmiðjur fyrirtækisins frá heimabæ Moores til Mexíkó og með því skapa gríðarlegt atvinnuleysi sem að lokum gerði út af við bæinn. Myndin þótti sýna á fróðlegan og kafdhæðnislegan hátt, áhrif hnatt- væðingar og gróðrafíknar stórfyrir- tækjanna á hinn almenna Banda- ríkjamann. Síðan þá hefur Moore gert fjöímarga sjónvarpsþætti og heim- ildarmyndir með svipuðu sniði þar sem reynt er að beina kastljósinu að því óréttlæti og þeim ójöfnuði sem einkennir Bandaríki nútímans. Fahrenheit 9/11 er frumsýnd í dag í Laugarásbíói og Regnboganum. Kvikmyndin Fahrenheit 9/11 hef- ur vakið meira umtal og fengið meiri umfjöllun en nokkur önnur heim- ildarmynd kvikmyndasögunnar. Mikla athygli vakti þegar Michael Moore hlaut gullpálmann á Cannes- kvikmyndahátíðinni en myndin er önnur heimildarmyndin sem hefur hlotið þau merku verðlaun ffá upp- hafi. Myndin hefur slegið hvert að- sóknarmetið af öðru og vilja margir meina að með þessari mynd hafi landslagið við gerð heimildarmynda breyst til frambúðar. Ekki eru þó allir á eitt sáttir um heimildagildi myndar- innar og hefur Moore fengið mikla gagnrýni fyrir að hagræða sannleik- anum og setja skemmtanagildið í for- grunn í stað sannleikans. í Fahrenheit 9/11 beinir Moore kastljósinu að forseta Bandaríkjanna, George W. Bush, og stríði hans gegn hryðjuverkum. Moore heldur því fr am að þessi misheppnaði viðskipta- maður sem hafi sterk tengsl við Saud- konungsfjölskylduna í Sádí-Arabíu og fjölskyldu Bins Laden hafi komist til valda í Hvíta húsinu með ólögmæt- um hætti og vanrækt svo skyldur embættisins og viðvaranir um að þessir erlendu vinir hans myndu ganga á bak orða sinna. Eftir harm- leikinn 11. september heldur Moore því síðan ffarn að Bush hafi mistekist hrapalega í að grípa til viðeigandi ráðstafana til að verja bandarísku þjóðina en þess í stað, nýtt sér harm- leikinn til að maka krók stuðn- ingsmanna sinna. Að lok- um sýnir Moore fram á það að George W. Bush og ríkisstjórn hans hafi tekist að koma Bandaríkjunum í meiri vandræði nú en nokkru sinni fyrr og af hverju bandaríska þjóðin Michael Moore og George W. Bush Kvikmyndin var bönnuð I Kúveit af viröingu við Sádl- Arabíu sem kemur illa undan henni. CONTROVERSY...WHAT CONTROVERSY? Móðir Banda rfsks her- manns Biður Bush um son sinn afturheim. p'BushTI 'BRIÍV& wl [S°N | | 'HONE 1 NÖý m ^uVE MICHAEL MOORE ... ... I CAUDCilLIFIT h rAnRENHEIT 9/ f WINNER / BEST PICTURE % 2004 CANNES FILIH FESTIVAL iFCFilms fmKíííiír i 1 PBS7^ LGF Michael MooreEraf andstæðingum sínum sagður sjálfumglaður og óheiðarlegur. Þorpið, skítapleis? í litlu þorpi einhversstaðar í Bandaríkjunum býr fólk sem lifir afar einföldu lífi. Þetta er allt svo voða sveitó og rólegt að maður býst við því að Ingalls-ijölskyldan labbi inn í rammann á hverri stundu. En það er eitthvað hræðilegt í skógin- um sem umkringir þorpið og enginn má fara inn í hann nema eiga það á hættu að vera drepinn af hræðileg- um skrímslum sem þar búa. Það hefur staðið hálfgert vopnahlé á milli þessara tveggja fylkinga um árabil en nú virðist það á enda því að skrímslin eru farin að koma inn í þorpið og skilja eftir dýrahræ og mála rauð strik á hurðir fólks eins og erkiengiUinn hér um árið. Hvað skal þá gera? Ja, það er nú það. Mann- eskja er send út úr þorpinu til þess að ná í hjálp en ég get ekki sagt hver eða af hverju án þess að koma upp um ákveðna hluti sem halda flétt- unni saman. Svo brothættur er söguþráðurinn. Þegar menn stóla á það eingöngu að vera með snjallar sögufléttur í sínum myndum þá eru þeir ekki í bransanum af réttri ástæðu. Eins og Shyamalan sýndi nú góða takta með fléttu fléttanna í The Sixth Sense (þótt gömul væri, sjá Carnival of Souls, é62) og kom með helvíti góða sýn á ofurhetjuna í Unbreakable þá skrikaði honum allverulega fótur í Signs og hér rennur hann beint á rassgatið og á í bölvuðum erfiðleik- um með að koma sér á fætur aftur. En maður verður að athuga að maður fer á þessa mynd með gífur- legar væntingar og vonir um það að maðurinn komi manni nú almenni- lega á óvart, því að hann er búinn að selja sjálfan sig sem mann sem gerir ekkert annað. Það eina sem kom mér á óvart var hversu ofboðslega léleg fléttan var og fyrirsjáanleg og það versta er að ég get ekki sagt af hverju. Það var svo lélegt því þá skemmi ég fyrir þeim sem hafa ekki séð hana. Á tímabili hélt ég að hann hefði komið með hana bara svo hann sjálfur gæti komið fram í einu atrið- anna eins og hann var vanur að gera í fýrri myndum. Það góða við þetta allt saman er það að hann mun ör- ugglega ekki gera svona mynd á næstunni heldur gera mynd sem þarf ekki fléttur og bellibrögð til að fá fólk til að tala um hana. Maður getur vonað. Þótt Sixth Sense og Unbreakable væru langar þá náðu þær að halda athygh manns út í gegn með góðri sögu. Hér er nánast engin saga og svo sannarlega er hún ekki spenn- andi eða áhugaverð heldur rétt drattast áffarn og reynir að byggja upp spennu sem verður algjörlega tilgangslaus þegar upp er staðið. Eg get alveg lofað ykkur því að von- brigðin verða mikil. Myndin tekur sig svo alvarlega og er svo hástemmd að enginn leikari vogar sér að tala fyrir ofan nokkur desíbel og allir tala eins og sviðsleik- Shaun of the Dead Good Bye Lenin! Crimson Rivers 2 Spider-Man 2 Around the World in 80 Days Eternal Sunshine of the Spotless Mind Harry Potter og fanginn frá Azkaban The Day AfterTomorrow The Village Sýnd i Sambióunum og Háskóla- biói. Leikstjóri: M. Night Shyamalan. Aðalhlutverk: Bryce Dallas Howard, Joaquin Phoenix, Adrien Brody, William Hurt. Ómar fór í bíó arar í dramakasti. Tæknilega séð er myndin mjög vel gerð, kvikmynda- taka og allt umhverfi samsvarar sér mjög vel og Shyamalan notar hljóð einnig vel til að ná fram spennu í nokkrum atriðum. En það bjargar ekki þeim leiðindum sem hér fara fram því að til þess að gera góða bíó- mynd þarf allt saman að haldast í hendur og gera góða heild sem hon- um tekst ekki að gera því miður. Strákurinn er sem sagt búinn að missa það og hann ætti nú að taka sér gott frí og fara að gera myndir í einhverjum öðrum geira en þessum. Ómai öm Hauksson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.