Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2004, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2004, Blaðsíða 31
DV Síöast en ekki síst FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST2004 31 Hjalti Úrsus er hættur að keppa en skipuleggur kraftakeppnir af miklum móð Goösagnarinnar um svahalega sveitavarginn leitaö Hjalti Úrsus Árnason Jafn hrikalegur og fyrr og lét sig ekki muna um að rifa upp þessar föngulegu starfsstúlkur Fréttar ehf. Hjalti leitar nú ákaft að hinum sterka sveitamanni. „Nú erum við að leita goðsagnarinnar um sterka sveitamanninn. Uppsveitarvíkingurinn er yfirskrift mikillar kraftakeppni sem verður á Borg í Grímsnesi á laugardaginn klukkan 13. Þar verða tvær greinar og höldum við þaðan til Þorlákshafhar og ljúkum keppni þar,“ segir Hjalti „Úrsus“ Árnason sem er jafn hrikalegur og fyrri daginn þó hann sé hættur keppni sjálf- ur. Sér nú um að skipuleggja keppnina um sterkasta mann íslands af mikilli atorku. „Já, það verða nýjar greinar, áburðapokar koma við sögu og 500 kílóa heyrúllur sem menn velta áfram. Og svo erum við að leita eft- ir hinum svakalega sveitavargi en við höfum heyrt ótrúlegar sögur um menn sem rífa upp olíutunnur sem glussatjakkar væru, eða taka upp menn og halda þeim uppi með annarri hendi þráðbeint frá sér. Við heyrum af þessum goðsögnum en nú viljum við sjá þetta með eig- in augum. Svo virðist sem feimi hafi aftrað þeim ffá því að láta sjá sig,“ segir Hjalti. Algengt er að þegar þeir eru að ganga frá eftir keppni komi menn og stjaki við ýmsu sem notað er. „En nú viljum við að þeir mæti, öllum er heim- il þátttaka og þeir þurfa ekkert að vera með í öllu mótinu heldur geta menn verið með í einni grein ef þeim býður svo við að horfa.“ Keppnin Sterkasti maður íslands er nú orð- in 19 ára og hófst hún með látum í Laugardals- höllinni árið 1985. Keppnin reyndist söguleg: Hjalti Úrsus gerði sér lítið fyrir og handleggs- braut Guðna Sigurjónsson í sjómanni. „Þetta var svakalegt. Það heyrðist mikill smellur þeg- ar handleggurinn brotnaði og var þetta atvik notað sem dæmi á ýmsum læknaráðstefnum. Tveir keppendur aðrir örkumluðust nánast, sprungu og gátu ekki meira. Og þegar keppn- in var öll stóðu eftir goðsagnirnar Hjalti Úrsus, Jón Páll heitinn og Magnús Ver. Ekki þurfti annað en lifa keppnina af til að komast á verðlaunapall.“ Nú þegar eru þrjú mót í keppninni að baki og hefur Magnús Ver hefur sigrað á þeim öll- um. „Já, fertugur karlinn. En nýju strákarnir hafa farið vaxandi þannig að þetta er á bratt- ann hjá honum og verður það. Þeir eru ekk- ert ánægðir með þetta ástand ungu menn- irnir." jakob@dv.is •Það þótti lítill manndómsbragur af þvíhjá ÁmaMagn- ússyni félagsmálaráð- herra að hundsa inn- setningarathöfn Ólafs Ragnars Gríms- sonar. Eins og DV greindi frá var ráðherrann upptek- inn á samkomu hvítasunnusafnaðar- ins í Kirkjulækjarkoti og mætti því ekki eins og sást glöggt á mynd í DV. Konan á myndinni sem biður svo heitt er Steinunn Kristín Pét- ursdóttir frá Akra- nesi, varaþingmaður hinna frjálslyndu Guðjóns Amars Krist- jánssonar og Sigur- jóns Þórðarsonar ása- trúarmanns. Talið er að hún hafi beðið fyr- ir ráðherranum... •Þjóðinni er í fersku minni þegar Halldór Ásgrímsson þurfti þrjár atrennur til að geta slitið þinginu í fjarvem Davíðs Oddssonar, og end- aði á því að kalla sjálfan sig „við- vaning.“ össur Skarphéðinsson sem notaði samlíkingu úr sögunni með því að kalla fjölmiðlamálið „hundrað daga stríð- ið“ talaði um lok hundrað ára stríðsins undir lok umræðunnar en í mannkynssögunni var það allt annað stríð. SteingrímurJ. Sigfússon rifjaði svo upp kristnitökuna á Alþingi fyrir liðlega þúsund ámm og sagði ítrekað að þá hefði Snorri goði hoggið á hnút- inn í samskiptum kristinna og heiðinna manna en átti auðvitað við Þorgeir Ljósvetningagoða... •Um það er rætt inn- an Sjálfstæðisflokks- ins að Davíð Odds- son forsætisráðherra hafi verið búinn að taka um það ákvörð- un að verða utanrík- isráðherra eftir að 15. september rennur upp og Framsóknarflokkur- inn fær forsætisráðuneytið. Veik- indi Davíðs hafa sett strik í reikn- inginn og hann mun þurfa nokkra mánuði til að ná bata eftir erfiðar aðgerðir. Það er því eins víst að þessi áform séu breytt... I tilefni af 100 ára afmæli rafvæóingar eru sýningar i öllum stöðvum um sögu . þeirra. Á Verið velkomin í stöðvar Landsvirkjunar Ljósafossstöð við Sog Málverkasýning Kjartans Guðjónssonar. Kjartan er 83 ára myndlistarmaður sem hefur málað um árabil. Blöndustöð í Húnaþingi Ár og kýr! Myndlistarsýning Jóns Eiríkssonar bónda á Búrfelli, Húnaþingi vestra. Ein mynd af kúm á dag allt kúaárið mikla 2003. Laxárstöð í Aðaldal í hvelfingum Laxárstöðvar. I samvinnu Landsvirkjunar og Listasafnsins á Akureyri. °P'ð affa e Nánari upp °g í sí Hvað er með Ásum? Höggmyndir Hallsteins Sigurðssonar og fróöleikur um goðin og heimsmynd þeirra í Laxárstöð. Einnig opið í Sultartanga, Hrauneyjafossi, í Kröflu og Végarði. Landsvirkjun

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.