Sjómannablaðið Nútíðin - 01.05.1936, Blaðsíða 3
N Ú T í Ð I N
3
gl!lllllll)liilllll!l!!l!innillinil!ll!IIH!!llll!ll>!l!!lll!IIIIIIIIIIUII!llll!ll!ll!inilllintninilinill!ll!ini!llll!lll!l)llllllllllllllll!ll!!ll!!ll!llll>i!lllllll!fllllllllll!ll!lI!llllllIlllllil^
| Sundrung og gudíeysi. f
|fl!iiiii!!iiiini!i... niinininiiiiiiiiiiiniuuiuiuiuuininiiiiniinnHniiiniinniUBisB
Ekkert einkennir nú íslenzkt þjóð-
líf meira en sundrung. — Á öllum
sviðum eru hugir manna þversum
hverjir á móti öðrum. í ræðum og
ritum berast menn á banaspjótum.
Nú er helt yfit þjóðina svo miklu
af svívirðingum að aldrei síðan
land byggðist hefir sá áburður
verið jafn mikill. Hve mikið kafnar
af góðum gróðri og göfugum til-
finningum, er ómögulegt að ákveða.
En því er hægt að slá föstu að
sálir manna hafa aldrei verið eins
saurugar og nú. Og þeir sem ætla
að hreinsa sálirnar eiga í illdeilum.
f*að er kunnugt að hin vesæla
boðun guðsorðs á landi hér, er rek-
in af ýmsum smá sértrúarflokks-
brotum, sem fyrirlíta aðrar klíkur.
Sama má segja um meiri hluta
prestastéttarinnar, að þeir binda sig
ekki við neinn fastan almennan
grundvöll heldur hræra í kenningum
kirkjunnar eftir eigin geðþótta.
Sumir þeirra trúa jafnvel ekki á
persónulegan guð. Ég heyrði aldrað-
an gáfaðan prest prédika síðastliðið
sumar á iltisamkomu og hann tók
það fram nokkrum sinnum í ræð-
unni að hann tryði á guð. En gat
þess um leið (eins og kunnugt er)
að ymsir menn gerðu það ekki. En
hann lagði íitla áherzlu á að það
væri nauðsynlegt. Svo langt erum
við fallnir niður í andlegt kviksyndi
persónulegs kenningarfrelsis, að
prestar eru farnir að þola að þjóðin
verði guðlaus. Svo mikil er andlega
kreppan orðin. Væri ekki rétt að
guðfræðingar bæru saman ráð sín
um það, hvaða kenningar væru
dyrmætastar og haldbeztar og halda
þeim síðan að þjóðinni með festu.
Persónulegur guð, Jesú guðssonur,
endurlausnarverk hans skilið á hinn
gamla hátt, áhrif heilags anda, dyr-
mæti kærleika og sannleiksástar. —
Þetta má ekki missast, Hinn aukni
níðingsháttur í þjóðlífinu sýnir að
hið áhrifalitla samsull úr ýmsum
fræðakerfum, er kaldlyndir kenni-
menn hafa borið á borð síðustu
áratugi hefir verkað ver en sú
»gamla guðfræði«, er þeir gera svo
lítið úr.
Ræður fluttar með »einföldum
orðum« orðum svo »hjartað sé með
sem undir slær« hafa meiri áhrif
heldur en ýmsar »teóríurc og
sparðatíningur efcir þennan og þenn-
an prófessor. f*að er hneyksli að
þeir skuli prédika guðsorð sem ekki
elska guð og meðbræður sína. Það
er hneyksli að trúboðar skuli pré-
dika sem fullir eru með kala til
andstæðinga sinna. Úað er hneyksli
að mikill hluti íslendinga fyrirlítur
guðsorð. Og það er hryllilegt að
þjóðin ætlar að enda sem guðlaus
þjóð. - Jóh. Sch.
Iðéjold lækka.
28. apríl s.I. gekk nýr iðgjalda-
taxti fyrir innbúsbrunatrygging-
ar í gildi hjá okkur. Eftir honum
LÆKKA IÐGJ0LOIN YFIRLEITT.
Sjóvátryggingarfélag Islands.
Umboð á Akureyri:
Axel Kristjánsson.
Hversvegna
eruð þér að leita
að allskonar
prjónagarni, fata-
efnum, frakkaefn-
um, kjóla og
kápuefnum
þegar hægt er að
fá þetta allt í
Gefjun.
Með því ao kaupa
Gefjunar-vörur
sparið þér bæði
tíma og peninga.
Munið eftir Gefi-
un er þér gerið
innkaup, því það
er yðar hagur. —
Kiæðaverksmiííjan
GEFJDN.
Ábyrgðarmöður og ritstjóri
BOYE HOLM.