Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1992, Page 145
Ingi Björn Albertsson, til liðs við Sjálfstæðisflokkinn og
voru þingmenn flokksins eftir það 20. Formaður þing-
flokks Borgaraflokksins, Guðmundur Agústsson, lýsti því
yfir í lok nóvember, að hann væri hættur að styðja ríkis-
stjórnina.
Alþingi, 113. löggjafarþing, kom saman 10. október.
Guðrún Halldórsdóttir frá Kvennalista tók þá sæti Guð-
rúnar Agnarsdóttur.
Vinsældir ríkisstjórnarinnar voru taldar í lágmarki í byrj-
un ársins, en í janúar sögðust aðeins 32,6% þeirra, sem
svöruðu í DV könnun, styðja stjórnina, en 67,4% voru á
móti. Þegar leið á árið, virtist ríkisstjórnin fá aukið fylgi og
var það í DV könnunum 37,6% í apríl, 43,4% í ágúst og
45,5% í október. - Samkvæmt skoðanakönnun Félagsvís-
indastofnunar í febrúar hafði Alþýðuflokkur 8,1% fylgi,
Framsóknarflokkur 16,4%, Sjálfstæðisflokkur 45,5%,
Alþýðubandalag 11,9%, Kvennalistinn 14,5% og Borgara-
flokkurinn 0,6%. Þegar leið á árið, fór fylgi Sjálfstæðis-
flokks og Kvennalista heldur minnkandi samkvæmt skoð-
anakönnunum, en fylgi Alþýðuflokks og Framsóknar-
flokks vaxandi. Alþýðubandalag stóð I stað og Borgara-
flokkur mældist varla.
Flokksstarf
Flokksþing Alþýðuflokksins var haldið í Hafnarfirði 12.-
14. október. Formaður og varaformaður voru báðir endur-
kjörnir, þó að þeir deildu hart um húsnæðismál og fleira.
21. flokksþing Framsóknarflokksins var haldið í nóv-
ember. Þar kom fram hörð andstaða gegn hvers konar að-
ild að Evrópubandalaginu. Steingrímur Hermannsson var
endurkjörinn formaður með 323 atkvæðum af 338 eða
95,6%. Halldór Ásgrímsson var endurkjörinn varaformað-
ur með 330 atkvæðum af 350 eða 94,3%.
I október og nóvember voru haldin prófkjör í nokkrum
kjördæmum vegna Alþingiskosninga 1991. Sjálfstæðisflokk-
urinn hélt prófkjör í 5 kjördæmum. Mest þátttaka var í
Reykjavík, en þar kusu 8.480. Davíð Oddsson borgarstjóri
(143)