Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1992, Side 170
Dýrið var sett í poll til hressingar, slapp þaðan í ána og
hefur ekki sézt síðan.
Listamannalaun o.fl. I árslok var ákveðið, að Atli
Heimir Sveinsson, Guðbjörg Þorbjarnardóttir og Sigfús
Halldórsson bættust í hóp þeirra, sem Alþingi veitir heið-
urslaun listamanna. - 103 rithöfundar fengu starfslaun eða
viðbótarritlaun, 2-6 mánaða laun sem svaraði byrjunar-
launum menntaskólakennara, en þau voru 70.950 kr. - 59
listamenn fengu starfslaun, fjórir til 12 mánaða, fimm til 9
mánaða, fimmtán til 6 mánaða, átján til 4 mánaða og þrjá-
tíu og fimm til 3 mánaða. Hulda Hákon myndlistarmaður,
Jóhanna Kristín Ingvadóttir myndlistarmaður, Leifur Þór-
arinsson tónskáld og Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari
hlutu starfslaun til 12 mánaða. - Leifur Breiðfjörð fékk
bjartsýnisverðlaun Bröste-fyrirtækisins danska, en þau
voru nú afhent í 10. sinn. - Menningarverðlaun DV hlutu:
Vigdís Grímsdóttir rithöfundur, Kristján Guðmundsson
myndlistarmaður, Hörður Askelsson kórstjóri, Grétar
Ragnarsson leikmyndahöfundur, Þráinn Bertelsson kvik-
myndahöfundur, Ingimundur Sveinsson arkitekt og Kristín
Isleifsdóttir leirkerasmiður. - Þessir fengu heiðurslaun
Brunabótafélagsins: Elsa Waage söngkona, Jón Geir
Ágústsson byggingafulltrúi, Kristín Jónsdóttir myndlistar-
maður, séra Þórhallur Höskuldsson og Þröstur Þórhallsson
skákmaður. - Steinar Sigurjónsson hlaut verðlaun úr Rit-
höfundasjóði ríkisútvarpsins. - Bókmenntaverðlaun útgef-
enda fyrir árið 1990 fengu Fríða Á. Sigurðardóttir og
Hörður Ágústsson.
Ljósvakamiðlar. I ársbyrjun keyptu nokkrir kaupsýslu-
menn meirihluta í Stöð 2 og var Þorvarður Elíasson ráðinn
sjónvarpsstjóri. - I febrúar var sjónvarpsfélagið Sýn stækk-
að að mun. Fyrirtækin Bíóhöllin, Vífilfell, Frjáls fjölmiðl-
un og Oddi gerðust hluthafar og Goði Sveinsson var ráð-
inn framkvæmdastjóri. Var talað um, að félagið hæfi út-
sendingar með haustinu. Hinn 4. maí var síðan tilkynnt, að
Stöð 2, Sýn og Islenzka útvarpsfélagið hefðu verið samein-
uð. — I hlustendakönnun í febrúar sögðust flestir hlusta á
(168)