Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2005, Side 48
48 LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2005
Sport DV
I SJONVARPINU
Everton-Chelsea
Það er komið að skuldadögum
hjá Múrenunni. Sóknarleikur
Chelsea er sem aftanmóða og
arnarhland án Ara-Robba og Bláu
Bítlarnir setja þeim stólpípu í dag.
Lau. kl. 12.45
Pinnamatur Cole
og Mourinho
Ashley Cole, leikmaður
Arsenal, og Jose Mourinho,
knattspyrnustjóri Chelsea, hitt-
ust á leynilegum fundi á hóteli í
London á dögunum. Mönnum
ber ekki saman hvað þeim fór á
milli og því þótti borðleggjandi
að slá á þráðinn til vélbyssu-
kjaftsins Freysa og fá hann til að
varpa ijósi á hvað Coie og Mour-
inho gerðu á hótelherberginu.
FREYSI FRÍKAR ÚT
„Þetta byrjaði á nettum fund-
arhöldum," sagði Freysi í gegnum
talstöðina. „Þeir voru aðallega að
ræða um það að stofna til upp-
reisnar í deildinni út af því að
menn em að fá of mikinn pening
fyrir leiki, þessir gæjar synda allir í
seðlum. Ætíunin var að ágóði
heillar leiktíðar færi í þriðja heim-
inn til að bjarga því sem hægt
væri að bjarga þar, þ.á m. bróður
mínum.
Bruce Ómar Grobbeiaar
Þegar langt var liðið á þennan
svokallaða fund, urðu tvímenn-
ingarnir harðákveðnir í að stofna
bara nýja deild með John Barnes
sem á að heita Úrvalsdeild
Grobbelaars til að heiðra færeyska
markvörðinn Bmce Ómar
Grobbelaar sem lék svo lengi með
Liverpool og var ekki bara frægur
á vellinum heldur líka á götunum.
Hann gaf alltaf iðulega tii þriðja
heimsins og því borðleggjandi að
heiðra nafn hans með þessum
hætti.
„En þeir töluðu líka mikið um
pinnamat og em báðir miklir
áhugamenn um það viðfangsefni.
Ashley Cole hefur verið að bjóða
sínum félögum í Arsenal upp á
pinnamat í hálfleik og þ.a.l. hafa
menn verið bara rólegir í seinni
hálfleik. Algjör óþarfi að stressa
sig á einhverjum íþróttaleik þegar
menn em búnir að sporðrenna
góðum pinnamat.
Pinnamatur í gufunni
Mourinho var svo hrifinn af
þessu að hann ákvað að hitta Cole
„ á herbergi og fá almennilega
pinnamatsuppskrift af því í Finn-
landi, þaðan sem Mourinho er,
fæst ekki pinnamatur í gufúböð-
um heldur bara sterkur mjöður
sem gerir mönnum ekki gott. Þeir
fundu sig tilknúna til að bera
saman bækur sínar og er þetta
eitthvað sem á eftir að bjarga fót-
boltanum þegar í harðbakkann
* slær,“ sagði Freysi, sem vissi
greinilega upp
, á hár hvað
| gerðist á
þessum um-
'' deilda fundi
Mourinho
og Cole.
Birmingham-Liverpool
Darren Anderton setur þrennu
og Spursarar gráta að hafa misst
sinn besta leikmann. Móri fer að
pakka niður í tösku og er farinn að
sakna Franco. Lau. kl. i4.so
Bolton-Middlesbrough
Það er „orka og kraftur í hverjum
Sopa.“ Sammi er sjóðandi. Boro í
djúpum. Lau.kl.16.55
Man. City-Man. Utd
Þetta verður eins og slæmur
dagur í Bosníu. „Danny Crane“!
Sun.kL15.3S
Arsenal-Crysta!
Palace
Fríða og dýrið?
Reyes er með brúnku
en er samlitur
Arsenalbúningnum
eftir símaatið í
vikunni.
Mán. kl. 22.40
Blackburn-Norwich
Spilamennskan hér verður
eins og að ef Scooter myndi
re-mixa „Stairway to
heaven.“ Einmitt.
Portsmouth-Aston
Villa
Eins og að koma niður
af 3ja vikna kúr á diskókexi og Prins
Christian.
Hartlepool-Brentford
Stórkostíeg skemmtun á sama
hátt og jarðeðlisfræðingar eru alltaf
hrókar alls fagnaðar í partíum.
Tottenham-WBA
Arnesen verður kærður til
barnaverndarnefndar þegar 120
fjórtán ára hollenskir boltastrákar
finnast í 40 feta vörugám við White
Hart Lane.
BOLTINN EFTIRVINNU
Liverpool-kappinn Jamie Carragher er með böggum hildar
þessa dagana enda varð faðir hans honum til skammar þegar
hann lék með enska landsliðinu gegn Hollandi.
Pabhi Carraghep
er lyllibytta
Carragher fékk þann heiður að
leika með byrjunarliði enska
landsliðsins á miðvikudag en sá
varð ekki glaður er hann fékk
fréttirnar eftir leikinn. Faðir hans,
Gary Carragher, datt
nefnilega ærlega í það fyrir ^
leikinn og mætti á y
skallanum á leikinn.
Hann lét síðan
öllum illum
látum í VIP-
stúkunni
sem
endaði
með því I
að honum
varhentút
áður en WíKtMt
leiknum í
lauk. i J.
Sá/gamli j
(sem j
reyndar er I
aðeins 45 J
ára 1 gamall
og var því
greinilega
ekki að bíða
boðanna
með
bameignir)
fékk sér því
næst sæti
með
Hvaðermeð
þennan frakka?
Tískudrósimar í Chelsea gera
óspart grín aö stjóranum sínum,
Jose Mourinho, þessa dagana þar
sem hann mætir alltaf 1 sama gráa
frakkanum á leiki en þeim finnst
hallærislegt að ganga oftar en
tvisvar í sömu fötunum. Astæða
Mourinho er einföld en hann telur
frakkann færa sér lukku og því
neitar hann að leggja honum.
Hann er eldd einn um að vera
hiátrúarfullur í boltanum því Alan
Shearer borðar alltaf iqúkling og
baunir fyrir leiki og Gazza borðaði
ávalltMars-
stykkiá
leikdag.
gráskítugum
almúganum þar
sem hann hélt
áfram að skapa sér
"T vinsældir.
* Almúginn gafst að
lokum upp á að
hlusta á grobbið í
Gary og tveir beljakar
spóluðu í kaliinn og börðu
hann í buff. Öllum var hent út
af vellinum í kjölfarið.
Réðst á iögguna
Það líkaði Gary afar illa og
hann tók reiði sína út á
lögreglumönnunum, egndi þá í
slagsmál og fékk fyrir vikið
ókeypis ferð í steininn þar sem
hann var látinn sofa úr sér.
Carragher var miður sín
þegar íjölmiðlamenn tjáðu
honum fréttirnar eftir leikinn.
„Ég er bara fyrst að heyra
þetta núna. Ég á erfitt með að
trúa þessu og skil ekki af
hverju hann hagar sér svona.
Svona framkoma er honum og
fjölskyidunni tii skammar. Ég verð
að lesa yfir hausamótunum á
honum þegar hann losnar úr
steininum," sagði Carragher og
yfirgaf svæðið en ekkert hefur
spurst til pabba hans sem fer
væntanlega huldu höfði þessa
dagana.
Óþroskaðir
kjúkiingar í
kappakstri
Ungstimi Man Utd, þeir Mads
Timm og Callum Flanagan, em
fyrir rétti í Manchester þessa
dagana þar sem kappakstur þeirra
á götum borgarinnar endaði með
því að Flanagan keyrði á annan
bfl sem hafði lítið með kapp-
aksturinn að gera. Vltni sögðu
fyrir rétti að þeir hefðu æst hvem
annan upp á ljósum, öskrað
ókvæðisorðum og verið með
dónalegar handabendhtgar. Þeir
hefðu síðan reykspólað af stað og
horfið á mettíma. Flanagan missti
stjóm á Honda Civic-bíl sínum í
beygju og keyrði beint á Ford
Fiestu sem kom akandi á móti.
Bflstjóri Fiestunnar, ung kona,
fótbrotnaði og félagi Flanagan í
United-liðinu, Phil Marsh, sem
sat í bflnum með
honum,
fótbromaði einnig
og fór úr axlarlið.
Sjálfúr slapp
Flanagan
algjörlega við 1 -
meiðsli. Timm neitar
ásökunumum
gáleysislegan
akstur en
Flanagan
hefúrjátað
brot sitt i
Pervert í herbúðum West Bromwich
Beraði sig á netinu
Svisslendingurinn Bemt
Haas, leikmaður WBA, á ekki
sjö dagana sæla eftir að upp
komst hvers lags pervert
hann er í raun og vem.
Gaukurinn hefur verið í
tölvusambandi við ókunnar,
og óþekkar, stúlkur þar sem
vefmyndavélar hafa leikið
stórt hlutverk.
Leikurinn sem Haas lék 3
við stúlkurnar var að þau
skiptust á að leika við hvort
annað fyrir framan
myndavélarnar en Haas
gerði þau reginmistök að
sýna á sér andlitið og þá
komst upp um glæpinn.
Það sem meira var að þá fitíaði
hann við sig stúlkunni algjörlega
að kosmaðarlausu á meðan
hún fékk greiddar tæpar 15
þúsund krónur fyrir að setja
á svið sína sýningu.
Ekki alltaf svona feiminn
Svissneski landsliðsmaöurinn
«Bernt Haas hylur hér kynfæri
sin i landsleik með Sviss. Hann
var ekki svona feiminn þegar
hann flaggaði félaganum fyrir
ókunna konu sem fyigdist
með tilburðunum meö hjálp
1 ~
LIÐIÐ MITT
Held með West Ham
vegna Iron Maiden
Kristinn Snær Agnarsson,
trommuleikari reggísveitarinnar
Hjálma, er mikill áhugamaður
um fótbolta og hefur afrekað það
að halda með tveimur liðum í
gegnum tíðina.
„Ég fór að halda með Arsenai
þegar ég bjó í Svíþjóð," sagði
Kristinn. „Það var aðailega út af
Freddie Ljungberg, sem er sænsk-
ur. En ég hef alltaf haldið með
West Ham út af Iron Maiden.
Þungarokkið tengdi mig liðinu
sterkum taugum á sínum tíma.
Steve Harris, bassaleikari Maiden,
spilaði einu sinni með unglinga-
liði West Ham.
Rétt ákvörðun
Hann átti möguleika á að ger-
ast atvinnumaður með liðinu en
hann lætur sér það nægja að vera
með svitabönd merkt West Ham
þegar hann spilar á tónleikum. Ég
held m.a.s. að hann eigi hlut í lið-
inu í dag. Annars er ég mjög sátt-
ur við þá ákvörðun hjá honum að
taka bassann fram yfir takka-
skóna.
Ég held að hann megi vera það
líka af því að ég held að hann
hefði orðið frekar slappur fót-
boltamaður. Það sem ég hef séð
af honum í myndböndum og svo-
leiðis, þegar hann er að leika sér í
fótbolta með félögum sínum, er
afleitt.
Bestur í rokkinu
Hann er best geymdur í rokk-
inu, Harris hefði seint gert West
Ham að stórveldi í boltanum,
held ég. Hann hefði kannski sóm-
að sig vel sem þjálfari, hann virð-
ist nefnilega vera frekar harður
nagli.
Það er löng leið þangað til ein-
hver bikar lítur dagsins ljós hjá
West Ham-liðinu. Ég held að
Harris yrði að leggja öll stefgjöld-
in fyrir Run To The Hills-lagið í
sjóð til að kaupa nýja leikmenn,
þá fyrst myndu hiutimir fara að
gerast hjá West Ham.“
Allir í Egilshöll
Kristinn var harður á því að
allir West Ham-aðdáendur ættu
að skella sér í Egilshöll þann 7.
júní næstkomandi þegar Iron
Maiden kemur í heimsókn.
„Ég hvet að sjálfsögðu alla
West Ham-aðdáendur til að
mæta á Iron Maiden því ef að
menn telja sig vera sanna unn-
endur liðsins,
þá er skyldu-
mætingfyrir
þá,“ sagði
Kristinn
Snær Agn-
arsson, reggí'
trommarinn
knái í
stórhljóm-
sveitinni
Hjálmar.