Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2005, Qupperneq 30
30 MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2005
Flass DV
.1
Svala Björgvins var
valin best klædda
konan af blaðinu
Sirkus á föstudaginn.
DV lék forvitni á að
vita hvar hún verslar
og hvað er í uppáhaldi.
Hvar
kaupir
hún fötin
sín?
„Já, bara frábært, ég vissi ekki af
þessu, á eftir að sjá blaðið," segir
Svala hress i bragði.
„Ég kaupi mikið affötunum mín-
um erlendis. í London, New York og
L.A. Þar fer ég í„second hand"
verslanir eða þar sem eru notuð
föt, ég er mjög hrifin af fötum frá
1930," segir hún brosandi.
„Þær verslanir sem ég versla i
heima eru Kron, Spútnik, Nakti
apinn og Rokk og rósir. Dett stund-
um inn i Zöru og kaupi þar jakka
og buxur, annars er ég aðallega í
gömlum fötum sem ég kaupi á e-
bay, sem ég breyti svo ef mig lang-
ar til. Efnin íþessum gömlu fötum
eru svo geggjuð það er svo iétt að
breyta þeim, "segir Svala hlæjandi.
„Ég kaupi einnig mikið að skóm á
e-bay, það tekur smá tíma að kom-
ast inn i ebay-pakkann en um að
gera að kynna sér það þá að það
taki smá tima, þviþetta er alveg
þess virði. Einnig les ég mikið af
Vogue-blöðum frá 1970-1979, er
mjög hrifin affötum frá þessum
tim," segir Svala að lokum.
Platan Jólaskraut
kom í verslanir á
dögunum. Þar eru
margar af okkar
þekktustu stjörn-
um að syngja
gömul og góð
jólalög. Friðrik
Ómar fékk bestu
gagnrýnina í
Fréttablaðinu í
síðustu viku af
listamönnunum á
plötunni.
Friðrik Ómar
Áberandi núna.
Fyrirsætan Elísabet Thorlacius sem komst í fréttirnar nú í haust fyrir að sitja fyrir
nakin í tímaritinu Bleikt og blátt og systir hennar Ragnhildur Jóna Eyvindsdóttir
ákváðu að láta gott af sér leiða og héldu magnaða tískusýningu á Pravda síðastlið-
ið laugardagskvöld til styrktar Unicef. _______________
Elísabet Thorlacius
og Ragnhildur Jóna 1^^
Eyvindsdóttir Með Hfe
hjartað á réttum stað. H
„Já, ég er mjög ánægður með gagn-
rýnina og innilega þakklátur, ég hugsaði
mig lengi inn þegar ég var beðinn um að
eralltsvo
marhugsandi.
rsyngjainní
þekkt fólk,“segir Friðrik (
„AUir þessir söngvarar eru búnir að vera
lengi að og kannski hefur hann Freyr Bjama-
son svo oft gagnrýnt þau að ég er kannski nýr
og ferskur," segir hann og dregur úr hæfileik-
umsínum.
„Ég syng tvö lög á þessari plötu, Allt
sem ég óska mér, lag sem Mariah
Carey hefur gert vinsælt, þama er
það með fslenskum texta eftir Einar
Bárðar, svo syng ég gamalt og gott lag, Ég verð
heima um jólin. Svo er líka pínu fyndið að nafnið
mitt er tvisvar skrifað vitlaust, ég heiti Friðrik öm í
staðinn fyrir Friðrik Ómar, sem segir kannski það
að ég er alls ekki eins þekktur og þau,“ en söngvar-
ar á þessari plötu em Sveppi, Birgitta, Jónsi, Heiða,
Nylon og Friðrik Ómar.
„En það er viridlega gaman að fá svona góða
dóma," segir hann hlæjandi og bætir við að allur
hans frítími fari í að að syngja sálma því hann er
með jólatónleika milli jóla og nýárs á Akureyri og
ÓlafsfirÖi. „Þeir stafa nafiúð mitt rétt," segir hann
hlæjandi.
maria@dv.ls
„Mér datt þetta allt í einu í hug
bara, mig var búið að langa lengi
að styrkja Unicef en vildi gera
þetta öðruvísi og með mína
reynslu fannst mér þetta tilvalið,"
segir Elísabet Thorlacius fyrirsæta
sem hefur verið þekkt fyrir að sitja
fyrir nakin á síðum íslenskra tíma-
rita.
tíl styrktar bágstöddum
Með hjartað á réttum stað
Elísabet ákvað ásamt systur
sinni Ragnhildi Jónu Eyvindsdótt-
ur að halda tískusýningu á Pravda
síðastliðinn laugardag kl 22. „Okk-
ur fannst þetta svo gott málefni og
sérstaklega kringum jólin þegar
margir eiga ekki fyrir mat þarna úti
og við ákváðum bara einfaldlega
að henda þessu í framkvæmd,"
segir Elísabet sem er augljóslega
með hjartað á réttum stað.
Það kostaði 500 krónur inn og
voru sýnd undirföt frá Knickerbox
og tískufatnaður frá versluninni
Kiss í Kringlunni. Sýningin var
stórglæsileg og stúlkurnar sem
sýndu undirfötin voru svo sannar-
lega ekki af verri endanum. Var
sýnd nýjasta tíska frá Kiss og jóla-
fötin þóttu sérlega glæsileg. Salur-
inn lét vel í sér heyra þegar stúlk-
urnar komu fram á undirfötum og
hafa ófáar krónurnar eflaust safn-
ast þá.
Fötin frá Kiss
Eru svo sannarlega ekki af verri endanum.
Svaka sjóv
Allur ágóði af sölu miða rann
óskiptur til Unicef og Bjarni töfra-
maður sprellaði sem kynnir á sýn-
ingunni. „Þetta var bara svakalega
sjóv, eins og maður segir," segir
Elísabet ánægð með kvöldið. Hún
segir að allir hafi skemmt sér mjög
vel og stemningin hafi verið frá-
bær.
„Við viljum bara koma á fram-
færi þökkum til þeirra sem vildu
styrkja þetta þarfa málefni. Sér-
staklega Knicker-
box, Kiss og
Pravda. Þau eru öll búin að
vera æðisleg við okkur og
gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til
að gera þetta sem glæsilegast."
Elísabet útilokar ekki önnur svip-
uð verkefni og er henni augljós-
lega margt fleira til lista lagt en að
sitja fyrir á failegum ljósmyndum.
brynjab@dv.is
SKRIFUÐU
NAFNIÐ MITT
TVISVAR VITLAUST