Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2006, Page 16
76 FIMMTUDAGUR23. MARS2006
Sport DV
Framarinn Sigfús Páll Sigfússon er kannski bara nýorðinn tvltugur en hann
er engu að síður leikstjómandi toppliðs DHL-deildar karla í handbolta og
hefur vakið mikla athygli fyrir frábæra frammistöðu í vetur.
Hann er hvorki hávaxinn né reynslumikill og er sjaldnast
meðal markahæstu manna Fram en mikilvægi hans fyrir liðið
fer ekki fram hjá neinum sem sér Framara spila. „Þó að menn
skori eitthvað meira en ég og líti kannski betur út þá veit ég
best sjálfur þegar ég á góðan leik og það er nóg fyrir mig,“ seg-
ir Sigfús Páll Sigfússon, sem stjórnar sóknarleik Framliðsins
sem hefur unnið 16 af 21 deildarleik sínum í vetur og er með
eins stigs forskot í efsta sætinu þegar fimm umferðir eru eftir.
„Það eru enn tíu stig eftir í pottin-
um og við eigum lúmskt erfiða leiki
eftir. Við ætlum að einbeita okkur að
leikjum sem við eigum eftir en ekki
því sem er í gangi í fjölmiðlum. Við
höldum að Haukar kiári sitt og þá
verðum við að klára okkar," segir Sig-
fús en næstu tveir leikir Framliðsins
eru gegn tveimur af þremur neðstu
iiðunum, Þór og Selfoss.
f góðu skapiþegargengur
svona vel
Sigfus er ánægður með Sverri
Bjömsson sem kom til liðsins fyrir
tímabilið. „Það er mjög gott að hafa
fengið Sverri því hann duglegur að
hvetja menn og svo er bara góð sam-
staða í hópnum. Menn em líka alltaf
í góðu skapi þegar gengur svona vel,“
segir Sigfus Páll sem er ekkert búinn
að missa einbeitingu þrátt fyrir tvo
góða sigra á Stjömunni og KA í síð-
ustu leikjum.. Sigfús skoraði fimm
mörk í báðum leikjum og spilaði
mjög vel.
Væri frábært að hafa Jón
Björgvin
Sigfús Páll lék með Framliðinu
framan af vetri í fyrra en meiddist
síðan illa á öxl og Jón Björgvin Pét-
ursson var settur á miðjuna með
góðum árangri. Hlutskipti þeirra
breyttust í vetur, nú meiddist Jón
Björgvin og Sigfús hefur blómstrað á
miðjunni í hans stað. „Ég var í sam-
keppni við Jón Björgvin en svo
meiddist hann. Ég bjóst ekki við því
fyrirfram að fá að vera í byrjunarlið-
inu því Jón Björgvin var búinn að
spila svo vel árið á undan. Það væri
frábært að hafa hann í okkar liði í
dag,“ segir Sigfús Páll.
Breiddin er ekki mikil í hópn-
um
„Breiddin er ekki mikil í hópnum
eins og stendur en það kemur alltaf
maður í manns stað og þegar Sergei
var veikur gegn KA þá stóðum við
okkur frábærlega," segir Sigfús en
Fram vann KA með tíu marka mun
þrátt fyrir að Íeika án Úkraínu-
mannsins. Það er dæmi mn hvernig
Framliðið hefur eflst við hverja raun í
vetur. „Við erum í toppformi og þeg-
ar kernur inn á lokamínútur leikj-
anna þá erum við oftast sterkari. Við
erum búnir að vinna mjög marga
leiki á síðustu metrunum," segir Sig-
fús sem gerir sér grein fyrir sinni
stöðu í liðinu. „Ég ber ábyrgð á sókn-
arleiknum og Sverrir stjómar vamar-
leiknum. Guðmundur hefur falið
mér það hlutverk að stjóma sókninni
okkar og í þeim leikjum sem við
höfum tapað í vetur þá hef ég bara
verið lélegur," segir Sigfús sem tekur
tapleikina greinilega á sig.
Ekki nægilega góður horna-
maður
„Ég var aðeins settur í homið en
ég er bara ekki nægilega góður
homamaður og er miklu betri í því að
spila upp félagana. Þegar ég var yngri
þá gat ég aldrei skotið en eftir að
menn fóm að bakka á mig þá varð ég
að kunna að skjóta. Ég verð að þakka
vini mínum, Einari Jónssyni, sem
tekur mig mikið í skotæfingar og hef-
ur hjálpað mér mikið," segir Sigfús
sem býr yfir skemmtilegum und-
2. flokkurinn
að heltast úr
lestinni
Sigfús er enn í 2.
flokki en spilar lítið
með sínum flokki vegna
annríkis með meistara-
llokknum. „Deildin hér
heima er orðin svo ung að
það em meira að segja 4.
flokks strákar að fá að spila.
2. flokkurinn er líka bara
að heltast úr lestinni og
menn em eiginlega að
fara í meistaraflokk eftir
3. flokk," segir Sigfús
sem er einn af fjöl-
mörgum 2. flokks-
strákum sem em í lyk-
ilhlutverkum hjá
smúm
flokkum.
Heldur mest
upp á Balic
og Lövgren
„Ivano
Balic hjá Króa-
tíu og Stefan
Lövgren í Svíþjóð
em uppáhaldsleik-
mennimir mínir.
Balic er frábær ein-
staklingur og gerir
hlutina oft upp á sitt
einsdæmi og það er
gott að geta gert það.
Lövgren er miklu meiri
spiiari og vinnur rosa-
lega vel fyrir liðið," segir
Sigfús Páll sem ætlar sér
að taka það besta frá hvor-
um og það væri ekki slæm
blanda. „Ég verð að styrkja
mig meira og verð líklega hér
heima í tvö til þrjú ár í viðbót en
síðan heillar mig að komast í
danska eða þýska boltann." ooj@dv.is
Á FULLRI FERÐ MEÐ FRAMLIÐINU SIGFÚSPÁLL SIGFÚSSON ER ÓHRÆDDURAÐSÆKJA ÁSÉRSTÆRRIOGSTERKARIMENN.
„Guðmundur hefur falið mér það hlutverk að stjórna sókninni okkar
og í þeim leikjum sem við höfum tapað í veturþá hefég bara verið lélegur.