Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2006, Page 9
SÚ ATHÖFN ÞEGAR DRENGUR MISSIR SVEINDÓMINN OG VERÐUR AÐ MANNI
ER OFTAST HJAkATLEG OG FREMUR MISHEPPNUÐ. ENGU AÐ SfÐUR GETUR
f ÞAÐ VERIÐ KVÖL OG PÍNA FYRIR PANN SEM EKKIHEFUR GENGIÐ íGEGNUM
ÞETTA AÐ ÞURFA AÐ LIFA VIÐ AÐ VERA HREINN SVEINN. VISST HEGÐANA-
MYNSTUR ASÉROFTA TfeUM STAÐ HJA ÞEIM SEM ERU HREINIR SVEINAR
FRAM EFTIR ALDRI. SIRKUS BENDIR HÉR LESENDUM A NOKKRAR VÍSBENDINGAR
ÞESS AD ÞEIRRA NANUSTU ERU HREINIR SVEINAR.
Hann er alltaf með óhóflega mikið af
rakspíra. Yfirleitt tegundir á borð viðTommy
Hilfiger og Diesel.
Hann er alltaf með gel [ hárinu til þess að
styggja ekki kellingarnar með þurra lúkkinu.
Hann er alltaf með tyggjó.
Hann er alltaf að „neimdroppa" frægt fólk. „Ég og
Sveppi vorum saman á Hverfis um daginn. Þá
hringdi hann I Þorvald Davíð og sagðist vera með
hlutverk handa honum í Kalla á þakinu. Svo hlógum
við eins og vitleysingar, félagarnir."
Hann fer einn með vinkonum sínum
á kaffihús því hann ætlar að gefa einni
þeirra blómið sitt. Reyndar getur verið
að ástæðan að hann er með stelpuhóp
á kaffihúsi sé sú að hann er hommi en
þá hefur hann líklegast ekki heldur
sofið hjá konu.
Þegar hann neyðist til þess að segja sögur af eigin
kynlífi þá gerir hann það. En það vill svo einkenni-
lega til að allar stelpurnar sem hann hefur sofið hjá
eru utan aflandi.
Þegar hann kemurfrá útlöndum hefur hann alltaf
allavega þrjár góðar sögur að segja. Stelpurnar sem
hann var með voru að vi'su útlenskar, oftar en ekki
þvskareðasænskar.
Alltaf þegartalað er um uppáferðir
laumar hann sér í næsta herbergi til þess að fá ekki skipunina „segðu
okkur eina góða ríðingasögu".
Þegar félagsfræðinemar koma inn í bekkinn með kynlífskönnun spyr
hann: „Má maður skila auðu?"
Þegar hann verður heppinn á balli er sem hann ætli að éta stúlkuna,
oftar en ekki lendir hann uppi í sófa með höndina I klofinu á þeirri
„heppnu".
Hann labbar oft heim af böllum og sést þá sparka í ruslatunnur og
Ijósastaura á leiðinni. Allt sökum þess að veiðar brugðust.
mummsÉi
Ef hann hefur sést nálægt stelpu og er svo
inntur eftir því hvað hefur gerst um kvöldið
svarar hann með Robert De Niro-hreim: „That's
for me to know and you to find out". Þarna er
hann að umorða að ekkert hafi gerst í raun og
veru.
úmmm
Hann leitar á vinnustað þar sem margar stelpur vinna í von
um að hlutirnir breytist.Til dæmis kvikmyndahús, KFC og
stundum gerast hreinir sveinar glasabörn á skemmtistöðum.
Hann er alltaf á rúntinum að tala um kellingar. Þar sem
hann rennir niður Laugaveginn lætur hann setningar fjúka á
borð við: „Djöfull verður sumarið geðveikt" og „sumarið er
tíminn".
Þegar hann er spurður hvað hann hefur sof-
ið hjá mörgum konum segir hann annaðhvort
„óteljandi" eða „veistu, ég hef bara ekki tölu á
þeim". Það er erfitt að telja það sem ekkert er.
Hann er ennþá með HlV-smokkinn á sér sem hann fékk í
níunda bekk. Smokkabréfið er orðið krumpað og ógeðslegt
eftir langa veru i vösunum. Hann heldur þó enn í vonina um
að nota útrunna smokkinn áður en langt um líður.
Hann segir reglulega að hann vilji ekki ríða
hverju sem er.
I