Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Blaðsíða 10
44 FÖSTUDAGUR 2. JÚNl2006 Sport DV íslensku strákarnir í 18 ára landsliðinu urðu Norðurlandameistarar um síðustu helgi þegar þeir unnu Svía, 82-69, í úrslitaleiknum. Strákarnir urðu Norðurlandameistarar í annað sinn en þeir unnu líka þegar 1988-árgangurinn spilaði sem 16 ára lið fyrir tveim- ur árum síðan. ísland kom heim með þrenn verðlaun frá Svíþjóð. Sigrinum fagnaö Það var mikilstemning I fslenska liðinuoghérfagna strákarnir Norðurlanda- meistaratitiinum. Iceland Hafi einhverjir verið ósnortnir eftir glæsilegan 13 stíga sigur 18 ára karlaliðs íslands á Svíum gátu þeir ekki annað en hrifist af fagnaðar- látum íslenska liðsins sem sýndu og sönnuðu hversu mikil gleði og stemning er í þessum hóp. Leikgleði og liðsheild íslensku strákanna var Svíunum óyfirstíganleg og þegar okkar strákar fóru síðan að dansa saman í einum hnapp á miðju vallarins í leikslok var það að- eins staðfesting á því hversu mikið þeir höfðu lagt á sig og upp- skorið með að fá Norðurlandamótsgullið á ný um hálsinn. Norðurlandamótið fór nú fram í fjórða sinn með núverandi fyrir- komulagi, það er að 16 og 18 ára landsliðs kvenna og karla hittast í Stokkhólmi í Svíþjóð og útkljá hverj- ir eru bestir í körfubolta á Norður- löndum. Heimamenn í Svíþjóð eru mjög sterkir og hafa spilað alla úr- slitaleiki þessi fjögur ár en fjórum sinnum hafa þeir þurft að sætta sig við tap gegn íslandi. íslenski hópur- inn kom heim með þrenn verðlaun þriðja árið í röð og hefur tekið við af Finnum sem aðalsamkeppnisaðili Svía á Norðurlöndunum. Hörður maður mótsins Hörður Axel Vilhjálmsson var val- inn besti leikmaður mótsins og það var ótrúlegt að sjá til stráksins í úr- slitaleiknum þar sem hann varð fyrir mjög slæmum ökklameiðslum strax í fyrri hálfleik en harkaði af sér og fór aftur inn og kláraði leikinn. Þessi meiðsli voru það slæm að Hörður gæti verið frá í meira en mánuð eft- ir mótið. Hörður skoraði alls 22 stig í leiknum og var stigahæstur í íslenska liðinu. Sigurður Gunnar Þorsteinsson var einnig valinn í úrvalslið mótsins en hann fór mikinn í úrslitaleiknum þar sem þessi stóri og stæðilegi ís- firðingur lokaði íslenska teignum og endaði með 22 ffáköst, 6 varin skot og 13 stig. Benedikt að gera góða hluti Benedikt Guðmundsson er þar með búinn að gera tvö íslensk landslið að Norðurlandameismr- um á tveimur árum, en 1988-strák- arnir unnu einnig undir hans stjórn árið 2004. Líkt og þá setti Benedikt úrslitaleikinn ofar en lokaleikinn í riðlinum sem mátti tapast. Þetta Heiena var valin best Helena Sverrisdóttir var valin besti leikmaður 18 ára kvenna en hún skoraði 23,6 stig, tók 7,0 fráköst og gaf6,4 stoðsendingar að meðaltali i leik. eru einu tapleikir 1988-árgangsins í þessum tveimur keppnum en fyrir vikið hefur íslenska liðið mætt gríð- arlega sterkt í báða úrslitaleikina og unnið þá með samtals 44 stigum. 1988-árgangurinn hefur sem dæmi unnið alla fjóra leiki sína gegn Svíum í þessum tveimur Norðurlandamót- um og það þrátt fyrir að mæta þess- arri milljónaþjóð á þeirra heima- velli. Stærsta prófið framundan 1988-árgangurinn hefur þar með skilað íslandi tveimur Norðurlanda- meistaratidum ogkomið bæði 16 ára og 18 ára liðinu upp í A-deild. Fram- undan er stærsta prófið fyrir strák- ana en hðið fær nú í fyrsta að reyna sig meðal bestu liða Evrópu þegar 18 ára liðið tekur þátt í Evrópukeppn- inni í Grikklandi í sumar. íslendingar geta verið stoltir af ffamgöngu körfuboltalandsliða sinna á Norðurlandamótinu und- anfarin þrjú ár en á þeim tíma hafa íslensku liðin komið heim með níu verðlaun, þar af fjögur þeirra úr gulli. Það eru aðeins Svíar sem hafa unn- ið fleiri gull eða komið fleiri liðum í úrslitaleiki á þessum tíma og Finnar sem hafa löngum verið í farabroddi með Svíum hafa ekki eignast Norð- urlandameistara á þessum þremur árum. Helena valin best 18 ára stelpurnar töpuðu úrslita- leiknum fyrir Svíþjóð eftír að hafa unnið alla leiki sína í riðlakeppninni, 16 ára strákarnir töpuðu tveimur fyrstu leikjum sínum (spilaðir sama dag) en unnu síðan þrjá þá síðustu NORÐURLANDAMEISTAR- AR18ÁRA STRÁKA: Brynjar Þ. Björnsson, KR (17,6 stig í leik) Hafþór Björnsson, FSU Hjörtur Hrafn Einarsson, Njarðvík (1,6) (9,4) Hjörtur S. Ragnars, Þór Þorlákshöfn (0,0) Hörður Axel Vilhjálmsson, Fjölni (23,8) Hörður Helgi Hreiðarsson, FSu Páll H. Kristinsson, Keflavlk (6,6) (0,4) Rúnar Ingi Erlingsson, Njarðvík (1,2) SigurðurGunnar Þorsteinsson, KFl (9,4) Sindri Már Kárason, Fjölni (1,2) Þórir Guðmundsson, KFf (0,8) Þröstur Leó Jóhannsson, Keflavík (8,2) VERÐLAUN ÍSLANDS Á NM UNGLINGA 2003-2006 2003 1 silfur 2004 3 gull 2005 2 silfur, 1 brons 2006 1 gull, 1 silfur, 1 brons Samtafs: lOverðlaun 4 gull, 4 silfur, 2 brons NORÐURLANDAMEIST- ARATITLAR Á SÍÐUSTU ÞREMURÁRUM: Sviþjóð 8 (4 silfur) fsland 4 (3 silfur) Finnland 0 (4 silfur) Danmörk 0 (1 silfur) Noregur 0 FLEST LIÐ í ÚRSLITALEIKJ- UM NORÐURLANDAMÓTS UNGLINGA 2004-2006 12 Svíþjóð 8 sigrar - 4 töp 7 fsland 4 sigrar - 3 töp 4Finnland 0sigrar-4töp 1 Danmörk Osigrar-ltap og tryggðu sér bronsið. 16 ára stelp- urnar töpuðu hins vegar öllum sín- um leikjum og enduðu í neðsta sæt- inu. Helena Sverrisdóttir, fyrirliði 18 ára liðs kvenna, var valinn besti leik- maður mótsins og í úrvalsliðinu var einnig María Ben Erlingsdóttír. ooj@dv.is Fyrirliðinn með bikarinn BrynjarÞór Björnsson hefur tvisvar tekið við Norður- landameistarabikarnum á tveimur árum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.