Framsóknarblaðið - 13.02.1947, Síða 2
X
FRA MSÓKNA RBLAÐIÐ
FRAMSÓKNARBLAÐIÐ
Útgefandi:
Framsóknarfélag Vestmannaeyja
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Sigurjón Sigurbjörnsson.
Vandamá!
úgerðarinnar
Mörg eru þau vandamál, sem
bíða bráðrar úrlausnar hjá hinni
nýju ríkisstjórn. Það þeirra, sem
mestu skiptir fyrir Vestmanna-
eyinga næstu mánuði er hvernig
úr rætist með að koma væntan-
legum vertíðarafla í peninga. Á
undanfornum árurn hefir allur
aflinn verið seldur samstundis í
skip eða frystihús. Nú munu
frystihúsin ekki geta tekið eins
mikið magn fyrst um sinn til
vinnzlu eins og í fyrra vegna þess ’
að pakka jrarf í smærri umbúðir
fyrir Ameríkumarkað. Útflutn-
ingur í ís hefir ekki verið und-
irbúinn. Þá er ekki um annað að
ræða en að salta fiskinn, en á því
eru meiri erfiðleikar en áður.
I fyrsta lagi eru saltbirgðir mjög
litlar, húsakostur flestra útgerð-
armanna þannig að söltun í stór-
um stíl er vart framkvæmanleg.
Að síðustu er svo það að mann-
ekla er mikil, sérstaklega þeirra,
er kunna til flatnings og söltun-
ar, þar sem þessi störf hafa lítið
tíðkast í seinni tíð. Er lítt glæsi-
legt að taka óvana menn eða
unglinga til þeirra starfa og
þurfa að borga rúmaj: 16 ,kr.
um tímann í næturvinnu.Er hætt
við að kostnaðurinn verði orð-
inn mikill, þegar til þess kæmi
að flytja fiskinn úr landi. En
það sem gerir þó slíka verkun
mest ískyggilega er það að engin
viss sala er fengin á saltfiski. Er
óefnilegt fyrir útgerðarmenn og
sjómenn að þurfa máske að eiga
mestan afla sinn í salti fram á
haust án þess að fá hann greidd-
an. Það virðist því óumflýjan-
legt að horfið verði að Jrví ráði
að senda fisk ísvarinn til Eng-
lands, þó ekki iaist fyrir hann
það, sem þarf til að útgerð beri
sig þá er þó betra að fá strax
það sem mögulegt er fyrir hann
og jafna hallann með uppbótum
heldur en geyma hanh í sálti
með ærnum aukakosnaði uppá
ennþá meiri óvissu. Ríkisstjórn-
in hefur nú viku eftir valdatöku
sína brugðið við og sent samn-
inganefnd til Bretlands. Von-
ÁKA
Áki Jakobsson þáverandi at-
vinnumálaráðherra hélt upp á
fæðingardag Ólafs Thors með
Jiví, að halda fyrirlestur í húsi
K. F. U. M. og K. þann 19. jan-
úar s. 1.
Deildi liann í erindi sínu bæði
á einstaka menn og flokka án
þess að leyfa andsvör eða leið-
réttingar á máli sínu. Þar sem
Aki hefur nú vikið sæti við hið
pólitíska „háborð“ myndi koma
hans hingað ekki hafa verið
gjörð að umtalsefni hér ef ein-
hver flokksbróðir hans, sem kali-
ar sig „smáútvegsmann" hefði
ekki farið að minna á Jietta með
greinarstúf í Eyjablaðinu. Þar
sem alkunugt er að kommúnist-
ar hér, iiafa lítið fengist við út-
gerð eða annan atvinnurekstur,
þá er ekki að undra, þo þarna sé
smáútvegsmaður á ferðinni, en
að liann sé svo smár, að hann
þori ekki að láta nafns síns get-
ið, þegar hann er að lofa herra
sinn og leiðtoga er næsta ótrú-
legt.
Skal nú vikið að nokkrum at-
riður í ræðu Áka og þá stuðst
við þær upplýsingar, sem ó-
nefndur smáútvegsmaður gefur í
grein sinni.
Fyrst skýrir hann (Ji. e. Áki)
fvrir fundarmönnum að sjávar-
útvegurinn sé nauðsynlegur aí-
vinnuvegur fyrir íslendinga.
Þetta munu nú flestir Vest-
mannaeyingar hafa vitað áður
en Áki kom. Þá ræðst Áki á Ev-
stein Jónsson fyrir ráðstafanir
hans í innflutnings og gjaldeyr-
ismálum fyrir sríðið.
Um Jrað segir greinarhöfund-
ur: „Þá var gjaldeyrir Jijóðarinn-
ar, þ. e. a. s. gjaldeyrir sá, er út-
vegurinn skapaði að lang mestu
jeyti, tekinn undir ákveðna ríkis-
stofnun, gjaldeyris- og innflutn
ingsnefnd, og síðan úthlutað af
henni. Gjaldeyrinum var ekki
úthlutað til sjómánna, sem
höfðu skapað hann, heldur til
heildsalanna, manna, sem ekkert
andi tekst henni innan tíðar að
greiða úr þessum málum. Það
eitt að íslendingar verði að hörfa
af Breska fiskmarkaðnum og
gefa keppiuautum sínum Jiar
rúm er ærið áhyggjuefni, og
varla réttlætanlegt upp á seinni
tímann að gjöra. Um það
hvernig þessum málum reiðir af
munu Vestmannaeyingar öðrum
fremur eiga afkomu sína á þessu
ári og næsta. Vona þeir að hin-
um nýja útegsmálaráðhérra, sem
þekkir aðstöðu þeirra flestum
fremur, takist að raða hér vel úr.
VÍTI
höfðu með sköpun útllutnings-
verðmætanna að gera, og ekkert
áttu á hættu þótt illa áraði fyrir
útveginn.“
Það er satt, að á árunum íyrir
stríðið þegar markaðshrun og
aflatregða sköpuðu einstæða erf-
iðleika, og hinn takmarkaði
gjaldeyrir leyfði ekki kaup bráð-
ustu nauðsynjavöru voru settar
hömlur á innflutningsverzlun-
ina þó var neytendasamtökunum
tryggður rýmri réttur með höfða
tölureglunni heldur en einstakl-
ingum (heildsölum). Hitt er
merkilegra, að eftir að Áki og
Brynjólfur eru búnir að vera í
stjórn í tvö ár eru ennþá í gildi
sömu form á afgreiðslu innflutn-
ings og gjaldeyrisleyfa að Jrví
undanskildu að höfðatöluregian
var felld niður. til stórra hags-
bóta fyrir lieildsalana. Eiga því
öll hin tilvitnuðu ummæli við
u mástandið, eins og Jrað hefir
verið í tíð Áka. Er það nú
viðurkennt af öllum, líka komm-
únistum, að aldrei hafi verið
slíkir möguleikar fyrir þessa
stétt manna til þess að safna auði
bæði löglega og ólöglega eins og
Jrau tvö ár, sem Áki var í stjórn.
Enda er það sannað að engin
stétt manna hefir fært út kví-
arnar neitt viðlíka og heildsala-
stéttin og hafa þeir nú orðið :
seli beggja megin hafsins. Enda
munu þeir sjálfir telja að kostur
Jreirra í ráðlierratíð Eysteins,
hafi verið hrein fanga fæða á
móti þeirn veizluföngum, sem
þeir hafa notið í skjóli Áka.
Hitt er svo einkennandi fyrir
málflutning Áka, að þegar hann
er í Vestmannaeyjum, reynir
hann að kenna Eysteini allt, sem
miður fór hjá hans stjórn. Þegar
hann svo er í Alþingi, Jrar sem
Eysteinn er viðstaddur til and-
svara, þá kennir hann Jóni
Árnasyni öll mistökin í nýsköp-
uninni. (samanbr. útvarpsræðu
hans við fjárl.umræður 1945)-
Þá hafði Áki, rætt um það
hvað Vestmannaeyingar væru
illa á vegi staddir með nýtingu
fiskaflans og hvað lítið væri hér
um frystihús. Satt er það, að þau
eru ekki fullnægjandi, en þó
hefði verið hér sæmileg aðstaða
miðað við bátafjölda í vetur, ef
þau hús, sem íyrir eru, væru
ekki hálf full af fiski frá síðustu
vertíð, sem þessi útvegsmálaráð-
Irerra hefir svikist um að selja
á Jrá miklu markaði, sem hann
segir alstaðar fáanlega í austur-
vegi og á það háa verð, sem þar
er boðið. Hitt er svo nokkur
kaldhæðni að tveim kvöklum
Framhald á 4. síðu. .
Félagsmál
Ferðafélag Vestmannaeyja hélt
aðalfund sinn í Samkomuhúsinu
7. þ. m. í félaginu eru nú um
150 meðl. og fjárhagur góður.
Stjórn félagsins var endurkosin,
en hana skipa:
Haraldur Guðnason form.
Jónas Lúðvíksson, gjaldkeri.
Þorsteinn Johnson féhirðir,
Vigfús Ólafsson og
Gísli Sigurðsson.
i ferðanefnd voru kosnir:
Karl Sigurhansson ,form.
Freymóður Þorsteinsson og
Friðrik Jesson.
I skemmtinefnd:
Vigfús Ólafsson formaður,
Ille Guðnason
Sigurjón Sigurbjörnsson
Friðþjófur Johnsen,
Ingólfur Guðjónsson.
Að loknum fundi var sam-
drykkja og síðan sýndar kvik-
myndir. Á næsta sumri er gjört
ráð fyrir mörgum ferðum bæði í
lofti og á landi. Ætti fólk, sem
aðstöðu hefir til ferðalaga að
ganga í félagið. Árgjaldið er
lágt en félagar fá árbók ferðafé-
lags íslands frítt.
Verkalýðsfélag Vestmannaeyja
hélt aðalfund s.l. sunnudag. Fyæ-
verandi formaður, Pétur Guð-
jónsson baðst undan endurkosn-
ingu og einnig Guðmundur Sig-
urðsson, Heiðardal. En þessir
menn báðir hafa verið í stjórn
félagsins frá byrjun.
í stjórnina voru kosnir Elías
Sigfússon formaður, Hannes
Hreinsson ritari, Jóh. H. Jó-
hannsson gjaldkeri, Guðmundur
Helgas. (frá Steinum) varaform.
og Elías B. Guðjónsson fjármála-
ritari.
Fundurinn samþykkti áskor-
un til Alþingis að samþykkja
framkomna tillögu um lokun á-
fengisbúðar hér yfir vetrarver-
tíð.
Netagerð Vestm.eyja minntist
10 ára afmælis sfns 21. janúar
s. 1. Á þessum tíu árum hefur
hún framleitt 80 þús. net og 7
milljón öngultauma. Jafnframt
afmælinu voru risgjöld verk-
smiðjuhúss, sem félagið hefur í
smíðum og mun fullgert á næsta
sumri. Grunnflötur Jress er 376
lermetrar, tvær hæðir með risi
og svo kjallari undir nokkrum
hluta hússins. Sama dag var aðal-
ípndur félagsins haldinn, og
stjórnin endurkosin, en hana
skipa: Eiríkur Ásbjörnsson, for-
maður, Sæmundur Jónsson fé-
hirðir, Helgi Benediktsson ritari
og meðstjórnendur Ársæll Sveins
son og Tómas Guðjónsson.