Tuðran - 01.01.2007, Qupperneq 14

Tuðran - 01.01.2007, Qupperneq 14
Æfingaferð 2.og 3.flokks kvenna í fótbolta til Englands Sunnudaginn l.apríl lagði 28 manna hópur upp frá Selfossi um hádegisbil og var stefnan sett á England, eftir að þangað kom tók við tveggja og hálfs tíma ferðalag í rútu og um klukkan 22.00 komum við til til “Champneys” sem er heilsubúgarður í uþb. 118 mílna fjarlægð firá London. Staðurinn er staðset- tur úti í sveit, og þar er aðstaða hin allra besta til íþróttaiðkunar, in- nandyra eru sundlaug, sauna, nuddstofur, 1 í kam sræktarsal ur, snyrtistofur, leikfimisa- lur, leikjaherbergi og veitingasalir þar sem bornir eru fram hinir heilsusamlegustu réttir. Utandyra eru fótboltavöllur og tennis- völlur auk hjólaleigu. Móttökurnar voru höfðinglegar, fyrir framan hótelið biðu ungir sveinar sem báru inn farangur þreyttra ferðalanga. Mánudagurinn hófst með sundæfingu, Lena Guðmundsdóttir fyrirliði ásamt fyrirliða Nottingham Forrest og dómara leiksins morgunmat og fótboltaæfingu, eftir há- degið var önnur æfing en seinni partinn var stefnan sett á Villa Park í Birming- ham þar sem við fylgdumst með leik Aston Villa og Everton, frábær upplifun fyrir alla og ekki síst þá sem aldrei hafa farið á leik í Englandi. Þriðjudagurinn fór í æfingar og seinni partinn áttu stelpurnar leik við Tam- worh sem þær unnu 5-3. A miðviku- deginum fengu þær gestaþjálfara og um kvöldið spiluðum við félagsvist. Fimmtudagurinn rann upp og enn var æft af kappi en seinni partinn áttu stelpurnar leik við Nottingham Forest, hörku spennandi leikur sem fór 0-3, um kvöldið var video, og þá árituðu þær einnig treyju sem verður hengd upp í Champneys á meðal frægra liðar sem hafa komið þangað til æfinga. Föstu- deginum var eytt í Bullring versluna- rmiðstöðinni í Birmingham. Laugardagurinn 7. apríl var tekinn snemma og var heimferðin verkefni dagsins, vorum við komin á Selfoss um kaffileytið, allir þreyttir en ánægðir eftir frábæra ferð. Það var ánægjulegt að fá að taka þátt í þessari ferð og fylgjast með þessum frábæru stelpum okkar í leik og starfi. Fararstjórar Þjálfarar:Craig Dean þjálfari 2.fl. og Guðmundur Sigmarsson þjálfari 3.fl. Fararstjórar Silvía Dröfn Eðvaldsdóttir og Erla Þorsteinsdóttir 10 stúlkur í 2.fl. og 14 stúlkur í 3.fl. mm [f* BONUS býður beturl www.bonus.is

x

Tuðran

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tuðran
https://timarit.is/publication/740

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.