Mjölnir


Mjölnir - 14.02.1945, Side 1

Mjölnir - 14.02.1945, Side 1
Bátasmiðir Hef fyrirliggjandi bátarær stærð % og %. Ástvaldur Kristjánsson Hólaveg 11. Miðvikudaginn 14. febr. 1945 6. tölubl. 8. árgangur Siglfirzk verkalýðssamtök 25 ára Verkamannafélagið Þróttur minnist afmælisins með Þorrablóti og f jölbreyttri skemmtiskrá í Bíó 17. þ. m. — Þorraþræl — EFTIR Gunnar Jöhannsson FORMANN ÞRÓTTAR ✓ Veturinn 1919 starfaði hér í Siglufirði málfundafélag. Á fundum þess hafði verið rætt um að stofna verkamannafélag. Kosin var nefnd til að semja lög fyrir væntanlegt félag. For- maður nefndarinnar var Axel Friðbjarnarson. Þá voru þegar komin verkalýðsfélög í flest- um kaupstöðum landsins og stærstu kauptúnunum. Alþýðu- samband Islands hafði þá verið stofnað fyrir nokkru síðan og þar með komið töluverður skrið ur á um stofnun verkalýðsfé- laga. 29. marz 1919 var boðað til stofnfundar í leikfimishúsi barnaskólans. Á þeim fundi var félagið stofnað með 60 meðlim- um. I stjórn voru kosnir: Maron Sölvason formaður, Flóvent Jóhannsson varaformaður og Hannes Jónasson ritari. Þennan vetur féll hið mikla snjóflóð fyrir handan fjörðinn, sem mörgum Siglfirðingum er enn minnisstætt, vegna hinna hræðilegu atburða, sem þá urðu, þegar fjöldi fólks fórst og í einni svipan sópaðist burt hin stóra síldarverksmiðja, Evang- ersverksmiðjan, ásamt öllum byggingum, sem þar voru í nánd. Eitt af fyrstu verkum félags- ins var að taka að sér björg- un á braki úr húsum verk- smiðjunnar, sem lá í hrönnum víðsvegar á fjörunum. Tók fé- lagið þetta að sér fyrir þriðj- ung þess, sem bjargaðist. Var hlutur félagsins kr. 1090t.38 og var þessi upphæð lögð sem heild í sjóð félagsins og voru það fyrstu peningarnir, sem fé- laginu áskotnuðust. Verkamenn, sem við þetta unnu fengu 1 krónu í kaup á tímann. Á fundi, sem félagið hélt 29. maí var ákveðið að stilla upp sérstökum lista til bæjarstjórn- arkosninga, sem fram áttu að. fara þá um vorið. Efstir á list- anum voru: Síra Bjarni Þor- steinsson, Friðbjörn Níelsson — báðir utanfélags — Hannes Jónasson, Kjartan Jónsson og Maron Sölvason. Þrír efstu menn listans náðu kosningu. Um haustið sama ár var rætt um pöntun á vörum fyrir fé- lagsmenn. Úr framkvæmdum varð þó ekki annað en það, að samið var við Sigurð Kristjáns- son kaupmann um, að hann út- vegaði félagsmönnum vörur með lægra verði en útsöluverði og notfærðu sér þetta allmargir félagsmenn. 7. nóvember var svo kosin nefnd til að undirbúa vöruút- vegun í allstórum stíl. í nefnd- ina voru kosnir: Hannes Jónas- son, Flóvent Jóhannsson og Kjartan Jónsson. Kosningar til alþingis fóru fram um haustið og studdi þá félagið að kosningu Stefáns Stefánssonar frá Fagraskógi. Fyrsta kauptaxtanefnd fé- lagsins var kosin þá um haustið og voru í henni: Einar Her- mannsson, Flóvent Jóhannsson, Guðmundur Bílddal, Hannes Jónasson og Christian Möller. 6. desember sama ár var sam- þykktur og gefinn út fyrsti kauptaxtinn. Dagvinna var 1 króna klst., skipavinna 1,25 kr., eftirvinna kr. 1.50 og sunnu- dagavinna 2.00 kr. Ekki mun kauptaxtinn hafa verið viður- kenndur af öllum atvinnurek- endum kaupstaðarins og tals- verður misbrestur á því, að eftir honum væri farið. 7. júní 1920 var enn á ný kosið í bæjarstjóm. Listi verka- manna fékk þá 2 kosna, þau Hannes Jónasson og Guðrúnu Björnsdóttur. Er hún eina kon- an, sem setið hefur í bæjar- stjórn Siglufjarðarkaupstaðar. Á aðalfundi félagsins, sem haldinn var í janúar 1920 og var fyrsti aðalfundur þess eftir stofnfund, voru eftirtaldir menn kosnir í stjórn: Formað- ur Flóvent Jóhannsson og aðrir í stjórninni: Einar Hermanns- son, Chr. Möller, Hannes Jónas- son, Dúi Stefánsson og Jón Kristjánsson. Sjóður félagsins var þá um 1300 krónur og var hann lánaður til vörupöntunar og aldrei endurgreiddur til fé- lagsins. Þennan sama vetur var fyrsta ársskemmtun félagsins og var það þorrablót. Flóvent Jóhannsson, sem búinn var að vera á Hólum í Hjaltadal sem kennari og bússtjóri, barðist mjög fyrir því, að þorrablót yrði haldið. Vildi hann taka upp sið Hólamanna, en þar hafði um mörg ár verið siður að halda þorrablót og þóttu slíkar skemmtanir hinar ákjósanleg- ustu. 1921 voru eftirtaldir menn kosnir í stjórn: Flóvent Jó- hannsson, Pétur Björnsson og Páll Jónsson. Um áramótin 1921 var stofn- að blaðið „Vöggur“. Fyrsti rit- stjóri þess var Hannes Jónas- son. Næsti formaður félagsins eftir Flóvent var Benóný Bene- diktsson. Mun hann hafa verið kosinn 1923. í janúar 1924 var kosinn for- maður Gunnlaugur Sigurðsson. Á þeim aðalfundi var gerð ein allsherjar hreinsun. Nokkrir menn, sem ekki höfðu staðið í skilum við félagið í mörg ár, voru strikaðir út og einhverjir munu hafa verið reknir af öðr- um ástæðum. Félagið var fá- mennt og fátækt, en áhugi mik- ill meðal félagsmanna um áð rífa það upp á við og gera það að baráttutæki verkalýðsins á Siglufirði. Gunnlaugur Sigurðsson var formaður félagsins í 4 ár. I hans - stjórnartíð tók félagið miklum framförum og reyndist Gunnlaugur hinn nýtasti for- maður. Félagið gekk í Alþýðusam- band Islands 1923. Var það samþykkt með 17 atkv. gegn 15 eftir mjög heitar umræðuFr Um haustið 1924 kaus félagið þrjá fulltrúa á Alþýðusambandsþing, þá Ólaf Marteinsson, Stefán Jóhann Stefánsson og Guðgeir Jónsson. Ólafur Marteinsson mun hafa verið aðalhvatamað- ur þess, að félagið gengi í Al- þýðusambandið. Sama ár var kosinn í bæjar- stjórn af lista Verkamannafé- lagsins Guðmundur Skarphéð- insson. Sat hann sem fulltrúi verkamanna í bæjarstjóm Siglu fjarðar þar til hann féll frá 1932. Verkamannafélag Siglufjarð- ar var stofnandi að Verkalýðs- sambandi Norðurlands. Á stofn þing þess sendi félagið 3 full- trúa þá Hermann Einarsson, Pétur Bjömsson og Kjartan Jónsson. Um haustið keypti fé- lagið lóð þá, sem Alþýðuhúsið stendur nú á. Næsti formaður eftir Gunn- laug Sigurðsson var Vilhjálm- ur Hjartarson, þá Kristján Sig- urðsson, þar næst Guðmundur Skarphéðinsson og síðar Gunn- ar Jóhannsson, sem kosinn var 1933. Meðal þeirra, sem sæti áttu í stjóm Verkamannafélags Siglufjarðar, auk þeirra, sem áður hafa verið nefndir, voru: Ottó Jörgensen, sem jafnframt var bæjarfulltrúi verkamanna í fjöldamörg ár.Þóroddur Guð- mundsson, Gunnlaugur Hjálm- arsson, Sveinn Guðmundsson, Óskar Garibaldarson, Páll Ás- grímsson, Guðmundur Sigurðs- son, Sigurður Gunnlaugsson, Kristján Hallgrímsson, Jónas Jónasson, Ásgrímur Albertsson, Gísli Sigurðsson, Guðlaugur Sig urðsson, Guðjón Þórarinsson, Gunnlaugur Einarsson, Guð- mundur Davíðsson, Sveinn Þor- steinsson og Vilhjálmur Hjartar son. Eftir að leiðir skildu milli hægri og vinstri manna innan Alþýðuflokksins og Alþýðusam- bandsins, sem þá var að mestu eitt og hið sama, skarst all al- varlega í odda innan félagsins. Valt þar á ýmsu fyrst framan af, en að lokum náðu vinstri menn algjörðum meirihluta í félaginu. Deilurnar héldu áfram þar til hægri menn klufu sig út úr félaginu árið 1934 og stofnuðu verkamannafélagið Þrótt. Fljótlega sáu verkamenn, að það var óheillavænlegt fyrir sigursæla baráttu verkalýðsins, að standa sundraðir í tveim and- stæðum fylkingum. I báðum fé- lögunum var unnið ötullega að því, að sameina félögin í eítt allsherjar verkamannafélag. Um sameiningu verkamanna- félaganna var mikið rætt og ritað. Hnigu öll rök að því, að sjálfsagt væri að sameina fé- lögin sem allra fyrst. Eftir mikið þóf og miklar umræður og bréfaskriftir milii félaganna, samþykkti verkamannafélagið Þróttur á fundi í félaginu, sem (Framhald á 3. síðu). »♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦>♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ Lögregluþjónsstaða í Siglufirði L£US XIL UMSÓKNAB - “ frá 1. apríl n. k. — Laun eftir launastiga bæjar- stjórnar. ^ Umsóknir skulu afhentar á bæjarfógetaskrif- stofuna í Siglufirði fyrir 10. marz n. k. með sem nákvæmustum upplýsingum um umsækjanda. Bæjarfógetinn í Sigluf jarðarkaupstað 10. febr 1945 Guðm. Hannesson. Húseignir til sölu Húseignirnar Norðurgata 5 og Norðurgata 5B, Siglufirði, eru til sölu, ef viðunandi tilboð fæst. Efri hæð hússins er laus til íbúðar, ef samið er strax. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboðum sé skilað til mín 10. marz n. k. pr. pr. Verzlunarfélag Sigluf jarðar h. f. ^ ÁSGEIR JÓNASSON ►♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ Fáum SPARKSLEÐA meðfyrstuferð frá Reykjavík. GEISLINN H. F. - Vetrarbraut 5

x

Mjölnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.