Mjölnir

Issue

Mjölnir - 12.06.1946, Page 1

Mjölnir - 12.06.1946, Page 1
26. tölublað. 9. árgangur. Miðvikudaginn 12. júní 1946 Kaupið og lesið NOÐVILJANN Mikil fylgisaukning Sósíalistaflokksins er bezta tryggingin fyrir áframhaldandi , stjórnarsamstarfi og nýbyggingu | atvinnuveganna. Kosningarnar i Frakklandi Kommúnistaflokkurinn stóreykur fylgi sitt í nýafstöðnum kosningum í Frakklandi urðu atkvæðatölur °g þingsæti þriggja stærstu flokkanna, sem hér segir: Kommúnistar ............. 5.200.000 atkv. 153 þingsæti. Sósíaldemókratar ........ 4.180.000 — 127 — Kaþólskir 5.590.000 — 161 — Radikalir ............... 2.300.000 —«• 46 — Hægrimenn .....'......... 2.500.000 — 70 — Þetta er talinn mikill kosningasigur fyrir kommúnista í Frakk- landi, einkum er tékið er tillit til þess fádæma áróðurs, sem allir hinir flokkarnir beindu gegn kommúnistaflokknum í kosningabar- áttunni. Hinsvegar biðu jafnaðarmenn mikinn ósigur í þessuin kosingum, en kaþólski flokkurinn vann mikinn sigur. Hið nýkjörna þing á ‘að semja nýja stjórnarskrá* og Ijúka því innan sjö mánaða. Það má ekki líða éfyrirleitnum og eigin- gjörnum einstaklingum að leika sér að lífsafkomu fjöldans. j . ri,.. * / t ------------ Eins og kunnugt er, var það Sósíalistaflokkurinn, sem fyrsþ- ur kom fram með og beitti sér fyrir myndun núverandi ríkis- stjórnar til framkvæmda þeirra verkefna, sem samkomu- lag náðist um á milli þeirra þriggja flokka, sem að ríkis- stjórninni standa. Hinn 11. sept. 1944 fóru fram útvarpsumræð- ur um dýrtíðarfrumvarp utan- þingstjórnarinnar. Þá flutti Einar Olgeirsson ræðu, sem út- varpshlustendur munu lengi minnast. í þeirri ræðu og nokkr um greinum, sem birtust í Þjóð- viljanum um svipað leyti var lagður grundvöllurinn að stefnu þeirrar ríkisstjórnar, sem sett- ist að völdum 21. okt. 1944 og farið liefur með völdin síðan. Um þessa ræðu Einars sagði Alþýðublaðið að hún ætti skilið „að geymast með þjóðinni til minningar um hvorttveggja í senn: Hlægilegasta skýjaglóp- inn og tungumjúkasta hræsnar- ann, sem sæti hefur átt í sölum alþingis.“ Þannig voru fýrstu undirtektir Alþýðuflokksins undir þetta mesta framfaramál þjóðarinnar og þegar til at- kvæðagreiðslu kom í miðstjórn flokksins um þátttöku hans í nýsköpunarstjórninni var hún loks samþykkt eftir mikið þóf með 11 atkvæðum af 25 — 10 greiddu atkvæði» á móti en 4 sátu hjá. Og allan tímann, sem ríkisstjórnin hefur setið við völd hafa mörg af blöðum Alþýðuflokksins verið í meira og minna opinberri andstöðu við stjórnina og nýsköpunar- framkvæmdir hennar. Alþýðuflokkurinn gengur klofinn til þessara kosninga og reynir stjórnarandstaðan í flokknum að tryggja það eftir mætti, að áhrifa hennar geti gætt sem mest að kosningunum afstöðnum. Þannig er Hannibal Valdimarsson, einhver ákveðn- asti stjórnanrandstæðingur sem við stjórnmál fæst, settur í kjördæmi Barða Guðmunds- sonar, sem er ákveðinn stjórnar sinni, en Barði aftur sendur austur á Seyðisfjörð í vonlaust kjördæmi. Og til þess að tryggja það, að Barði fái ekki einu sinni uppbótarsæti er svo Jónas Guðmimdsson pýrmída- spámaður settur fram utan- flokka í kjördæmið til höfuðs honum. Stefán Jóhann, sem sakir óvinsælda og skemmdar- verka gat hvergi vænst þess að ná kosningu til þings er svo settur efstur á raðaðan lands- lista flokksins til þess að tryggja honum þingsæti sem stjórnarandstæðingi, jafnvel þótt hann fengi ekkert atkvæði í kjördæminu, sem hann er boð- inn fram í. Aukinn styrkur Alþýðuflokksins í þessum kosn- ingum mundi því þýða aukna hættu á því, að flokkurinn reyni að rjúfa stjórnarsamstarfið. Sjálfstæðisflokkurinn stóð heldur ekki óskiptur- að stjórn- arandstöðunni og hafa 5 þing- menn þess flokks verið í stjórnarandstöðu frá byrjun. Hefur stjórnarandstaðan haft sig mjög í frammi fyrir þéssar kosningar og hótað að kljúfa flokkinn og stofna til sérfram- boða ef áhrif hennar yrðu ekki tryggð með því að setja ákveðna stjórnarandstæðinga í örugg sæti við framboð flokks- ins. Þannig hefur Björn Ólafs- son, aðalfulltrúi ákveðnustu stjórnarandstæðinga verið sett- ur í örugg sæti í Reykjavík, auk þess sem stjórnarandstæð- ingar eru í framboði fyrir flokk inn í mörgum kjördæmum. En gráasta leikinn leikur þá Sjálf- stæðisflokkurinn í Suður-Þing- eyjarsýslu, þar sem hann býður fram atkvæðalítinn, meinleysis ungling, Leif Auðunsson frá Dalseli í stað hins aldna og vin- sæla forustumanns flokksins, sem þar hefur verið í kjöri að undanförnu, Júlíusar Havstein sýslumanns. Virðist þetta vera gert eingöngu í þeim tilgangi að reyna að tryggja Jónasi frá Hriflu áfram þingsæti í Suður- Þingeyjarsýslu. Sósíalistaflokkurinn er eini flokkurinn, sem er heill og óskiptur fylgjandi ríkisstjórn- inni og nýsköpunarframkvæmd- um hennar og gengur einhuga til þessara kosninga. Það er því öruggasta tryggingin fyrir því, að stjórnarsamstailfið haldist og að haldið verði áfram þeim nýsköpunarframkvæmdum, sem þegar eru hafnar eða ákveðið hefur verið að hefja, að Sósíal- istaflokkurinn komi sem allra sterkastur út úr þessum kosn- ingum. Siglfirzkir kjósendur ættu að athuga það, að þau atkvæði, sem Áki Jakobsson fær ekki, þau koma raunverulega á lands- lista þeirra flokka, sem reyna að tryggja stjórnarandstæðing- um uppbótarsæti, hvort sem þeir heita Stefán Jóhann, Hannibal eða Björn Ólafsson, og þeim atkvæðum, sem Fram- sóknarflokkurinn fær hér er al- gerlega kastað á glæ. Siglfirð- ingum er það lífsnauðsyn að tryggja nýsköpunarframkvæmd ir ríkisstjórnarinnar og það geta þeir aðeins með því að kjósa Áka Jakobsson. Nýir siðir með nýjum hermm Til Kaupfélags Siglfirðinga kom nú fyrir skömmu, nokkrar byrgðir af amerísku súkkulaði og ávöxtum. Ekki var þessu deilt niður á félagsmenn, eins og siður hefur verið undanfarin ár, þegar sjaldséðar vörur komu til fé- lagsins, heldur voru þessar vör- ur seldar hverjum, sem hafa vildi og eins mikið hverjum eins og hann vildi. Vörurnar seldust allar upp á fáeinum tím- um, enda keyptu sumir fyrir mörg hundruð krónur. Fjöldi félagsmanna vissi ekkert um, að vörur þessar hefðu komið, fyrr en þær voru uppseldar. Eins og eðlilegt er hafa þessar óvenjulegu aðfarir vakið gremju margra kaupfé-* lagsmanna og væri vonandi, að kaupfélagsstjórnin léti svona lagað ekki koma fyrir aftur. Þá er þess og að vænta, að afgreiðsla í matvörubúð félags- ins verði bætt stórlega frá því sem nú er, annars hlýtur fé- lagið að tapa miklum viðskipt- um. Sildarsöltunin. Eins og frá hefur verið skýrt hér í blaðinu, er þegar búið að selja alla þá síld, sem vænta'má, að söltuð verði á komandi vertíð Síldin, sem seld er til Svíþjóð- ar er seld fyrir 75 krónur (sænskar) tunnan, en í fyrra var verðið 58 krónur. Hér er því um rúml. 25 kr. (ísl.) mun að ræða. Ekki mun Síldarútvegs- nefnd vera búin að ákveða fersksíldarverðið í sumar, en talið er víst, að það verði all- miklu hærra en í fyrra sumar, én þá var það kr. 32,00 fyrir uppsaltaða tunnu. Um það verður ekki deilt, að sjávarútvegurinn er sá atvinnu- vegur þjóðarinnar, sem öll af- koma hennar byggist á. Á s.l. ári námu t. d. sjávarafurðir 91 % af heildarútflutningi landsins. Með stefnu núverandi ríkisstjórnar er mikilvægi sjáv- arútvegsins í fyrsta sinn viður- kennt í verki. Ber hin stórkost- lega nýsköpun á sviði sjávar- útvegsmálanna þessu ljósan vott. En það er ekki nóg að marg- íalda fiskiskipaflotann og byggja nýja verksmiðju þótt vitanlega séu það undirstöðuat- riðin. Það þarf einnig að gera allt, sem hægt er til þess, að sjómennirnir, sem á skipunum vinna beri sem mest úr býtum, að afli þeirra gefi þeim sem beztar tekjur. Það' verður að búa svo í haginn, að sjómenn- irnir geti borið meira úr býtum heldur en þeir, sem stunda þægi legri og hættuminni vinnu. Sé ekki séð fyrir þessu, þá fást ekki menn til að leggja fyrir sig sjómennsku og þá er vitan- lega voðinn vís, þrátt fyrir alla nýsköpun. Þessi staðreynd var ljós nú- verandi stjórn, og það«fyrst og fremst núv. atvinnumálaráð- herra. Það voru því gerðar ráð- stafanir til þess, skömmu eftir að stjórnin tók við, að hækka fiskverðið og hækka þar með kaup fiskimannanna. Var þá verðið hækkað á ísvörðum fiski um 15%. Nú um síðustu áramót var svo haldið enn lengra á' sömu braut og fiskurinn hækkaður’ um ca. 11%. Náði þessi hækk- un einnig til þess fisks, sem lagður var í hraðfrystihús. En þar sem ekki höfðu ennþá verið gerið samningar um sölu hrað- frysta fisksins, þótt hinsvegar mætti gera sér góðar vonir um sölu hans, voru að tilhlutan at- vinnumálaráðherra samþykkt lög um að ríkið ábyrgðist hrað- frystihúsunum verðhækkun sem næmi hækkuninni á blaut- fiskinum. Hraðfrystihúsin tóku yfirleitt vel þessum ráðstöfunum og voru þau rekin í vetur nær und- antekningarlaust. Nú hefur það sýnt sig, að vonirnar um sölu hraðfrysta fisksins hafa rætzt. Kemur ekki til neinna greiðslna úr ríkissjóði og húsin, sem rek- in voru skila góðum hagnaði. En því miður var þetta ekki undantekningarlaust. Til voru menn, sem annaðhvort af f jand- skap við stefnu ríkisstjórnar- innar eða stjórnlausri skamm- sýni, nema hvorttveggja hafi verið, létu fyrirtæki sitt standa óhreyft. Við Siglfirðingar þekkj um þetta. Eitt; hraðfrystihúsið tók ekki á móti fiski og skarst alveg úr leik. Sitja nú eigendur þess upp með hvorttveggja, tap- aðan hagnað af rekstri hússins og skömmina af að hafa brugð- ist í atvinnubaráttu þjóðarinnar Þetta dæmi sýnir hverjar veil (Framhald á 3. síðu)

x

Mjölnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.