Mjölnir - 12.06.1946, Blaðsíða 2
MJÖLNIR
? MJÖLNIR
— VIKUBLAÐ —
Útgefandi:
Sósíalistafclag Sigluf jarðar
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Ásgrímur Albertsson
v
Síinar 194 og 270
Blaðið kemur út
alla miðvikudaga.
Áskriftargjald kr. 15.00 árg.
Afgreiðsla Suðurgötu 10.
Þjóðin krefst ský
lauss svars um
herstöðvamálið
í þeim alþingiskosningum, er
nú fara i hönd er eitt stórmál,
sem andstöðuflokkar Sósíalista-
flokksifts gera allt, sem þeir
megna til að afflytj^ og rugla
dómgreind alls almennings.
Þetta mál er hið svonefnda
herstöðvarmál, Saga^Jjess máls
er nú orðin alþjóð kunnug, svo
ekki er ástæða til að segja þá
sögu hér. Hitt er öllum almenn-
ingi ekki eins ljóst, hvílíkan
skollaleik andstöðufl. Sósíalista-
flokksins leyfa sér að leika i
þessu viðkvæma stórmáli
frammi fyrir alþjóð í trausti
þess, að almenningur sjái ekki í
gegn um blekkingahjúp blaða-
snápa þessara flokka. No'kkrar
staðreyndir í málinu er rétt að
benda á. I fyrsta lagi: Bandaríki
Norður-Ameríku hafa óskað
eftir að fá á leigu land undir
herstöðvar á Reykjanesskagan-
um, í Kópavogi og Hvalfirði
ásamt hæfilegu landrými fyrir
nauðsynlega afgreiðslu skipa.
Þá hafa sömu aðiljar farið fram
á að fá að flytja inn alla vöru
til setuliðsins tollfrjálsar. I öðru
lagi. Ríkisstjórn Islands hefur
svarað þessari beiðni neitandi.
Þrátt fyrir þessa neitun ríkis-
stjórnar Islands og þrátt fyrir
það, þó stjórn Bandaríkjanna
hefði gefið loforð um að hverfa
af landi burt með allan herafla
sinn að afstaðinni nýlokinni
styrjöld situr hér enn allfjöl-
mennt bandarískt herlið í fullri
óþökk núverandi ríkisstjórnar,
eftir því sem bezt verður vitað
og því síður eftir ósk þjóðar-
innar, heldur i fullri óþökk
þeirra. I þriðja lagði. Aðeins
einn stjórnmálaflokkur á Is-
landi, Sósíalistaflokkurinn, hef-
ur krafist þess, að Bandaríki
Norður-Ameríku hverfi nú
þegar burt af íslandi með allan
herafla sinn eins og lofað var
áður en hið ameríska herlið kom
hingað til lands. I f jórða lagi. I
öllum andstöðuflokkum Sósíal-
istaflokksins eru til ráða-
menn, sem beita áhrifum sínum
óátalið af stjórnum flokka
sinna í þágu hins ameríska mál-
staðar. Einn þessara manna
Jónas frá Hriflu hefur gengið
það lengst. að gefa út stórt blað,
þar sem allir þeir, sem ékki
vilja kasta sér í faðm hinna
ameríska dollara-auðvalds, eru
stimplaðir sem landráðamenn
og föðurlandssvikarar. Ekki hef
ur Framsóknarflokkurinn viljað
losa sig við Hriflu-bóndann,
þrátt fyrir þessa landráðastarf-
semi, heldur þvert á móti te'kið
undir hinn ameríska landráða-
/
tón. Ekki er saga Sjálfstæðis-
flokksins mikið glæsilegri í
þessu máli. Annað aðalblað
flokksins, Vísir, er ná'kvæmlega
á sömu línunni og Jónas frá
Hriflu, og nú virðist sem
Morgunblaðið sé af fullri al-
vöru farið að reka erindi þess-
ara Ameríku-agenta.
Þá er afstaða Alþýðuflokks-
ins ekki sérlega glæsileg í mál-
inu. Dag eftir dag hefur aðal-
blað flokksins hamrað á því, að
nauðsyn beri til þess, að Islend-
ingar treysti sem mest samböi\d
sín við hin vestrænu lýðræðis-
ríki og beinlínis mæli með kröf-
um Bandaríkjanna um leigu
herstöðvanna á íslandi. Öll blöð
þessara flokka hafa steinþagað
um hina miklu mótmælaöldu,
sem risið hefur á móti kröfum
Bandaríkjanna. Með Alþýðu-
samband Islands í broddi fylk-
ingar hefur svo að segja hvert
einasta verkalýðsfélag í land-
inu látið frá sér fara ákveðin
mótmæli á móti leigu landsrétt-
inda til erlendra ríkja hvaðan
sem slík krafa kynni að koma.
Verkalýðsfélögin hafa,, krafist
þess, að Bandaríkjastjórn
hverfi nú þegar burt af landinu
með allan herafla sinn. Hvenær
og hvar hefur Alþýðublaðið
flutt þessar áskoranir? Aldrei!
Þegar stúdentafélögin efndu til
mótmælafundar um herstöðvar-
málið steinþögðu Alþýðublaðið
og Morgunblaðið. Þingmenn
allra þriggja flokkanna að und-
anteknum 5 neituðu að svara
ákveðnum fyrirspurnum um
málið frá stúdentafélögunum.
Menn hljóta að spyrja og það
í fullri alvöru. Hver er afstaða
Sjálfstæðisflokksins, Alþýðu-
flokksins og Framsóknarflokks
ins í herstöðvarmálinu ? Vilja
þeir leigja Bandaríkjum Norður
Ameríku herstöðvar á Islandi
og þar með afhenda sjálfstæði
íslands í hendur einu stærsta
herveldi veraldar um ófyrirsjá-
anlegan tíma. Eða vilja þeir
opinberlega krefjast þess, að
Bandaríkin hverfi nú þegar burt
af Islandi með allan herafla
sinn. Vilja frambjóðendur þess-
ara flokka í umboði flokka
sinna lýsa því afdráttarlaust
yfir, að þeir muni aldrei vera
með því að selja á leigu neinn
hluta af íslenzku landi til neins
stórveldis. Hvaðan og hvenær,
sem slíkar kröfur kunna að koma
Hér dugaengarvífillengjur. Hér
er um stærsta og helgasta mál
Islendinga að ræða. Réttinn til
þess að fá að ráða sínu eigin
landi án afskrifta og ágengni
erlendra stórþjóða. Sósíalista-
flokkurinn hefur einn tekið
hreina og ákveðna afstöðu.
Sósíalistaflokkurinn allur lýsi^
því yfir í eitt skipti fyrir öll,
að fulltrúar hans á Alþingi og
annarsstaðar þar, sem þessi mál
kunna að verða á dagskrá mun
aldrei gefa samþykki sitt til
þess að neinu erlendu ríki, stóru
eða smáu, verði seld á leigu eða
afhent á neinn hátt hlutar af
Islandi undir herbækistöðvar og
flokkurinn telur það sína helg-
ustu skyldu að standa sem einn
maður um sjálfstæðismálið.
Flokkurinri setur metnað sinn í
að efla það og styrkja á allan
hátt. I samræmi við þessa af-
stöðu síða krefst Sósíalista-
flokkurinn þess af öðrum flokk-
um, að þeir taki hreina afstöðu
í þessu máli, og komi fram sem
Islendingar en ekki sem tals-
menn erlends stórveldis. Jafn-
framt skorar Sósíalistaflokkur-
inn á alla Islendinga, hvar í
flokki sem þeir standa að fylkja
sér um málstað Islands í þessu
máli og knýja fram ákveðin
svör af frambjóðendum flok'k-
anna nú fyrir kosningarnar. Sá
frambjóðandi, sem ekki hefur
þor né dug til að taka ákveðna
afstöðu á móti landaafsali af
íslendinga hálfu í hendur er-
lendu ríki er ekki þess verður
að verða kosinn á Alþingi Is-
inga. Kjósendurnir verða í þessu
máli að kveða upp sinn dóm. Sá
dómur má ekki og mun heldur
ekki verða nema á einn veg.
Enginn frambjóðandi, hvar í
flokki sem hann stendur má
verða kosinn á Alþingi íslend-
inga, sem ekki vill eða getur
gefið ákveðna yfirlýsingu um,
að hann muni beita sér af al-
efli á móti öllum kröfum um
landaafsal af hendi IsIenÖinga.
Þetta er sú eina rétta afstaða,
sem íslendingar geta tekið nú
við þessar kosningar. Að taka
aðra afstöðu er að svíkja föður-
land sitt; svíkja sjálfa sig og
afkomendur sína um ófyrirsjá-
anlegan tíma.
Blað helldsalalistans
í baráttu við
nýsköpunina
Vísir er hræddur um slæma
útreið heildsalalistans í Rvík
ef fólkið man fjandskap heild-
salaklíkunnar við nýsköpun at-
vinnulífsins og bætt kjör fólks-
ins. Þess vegna er Vísir nú að
reyna að klóra yfir allt, sem
hann hefur áður sagt, og óskar
að flest af því væri ósagt.
Þegar Sósíalistaflokkurinn
hóf að hvetja þjóðina til ný-
sköpunar atvinnulífsins, sagði
Vísir, að þessar tillögur um
kaup á nýjum atvinnutækjum
væru „glæpur, launráð og svik-
ráð við þjóðina." Minna mátti
ékki gagn gera. Björn Ólafsson,
maðurinn, sem Vísir vill nú
koma inn á þing og í ráðherra-
stól nýrrar afturhaldsstjórnar,
krafðist þess þá um haustið
1944, að með lögum væri lækk-
að kaup allra starfsmanna ríkis-
ins, að með lögum væri fyrir-
Frá kosningaskrifstoíu Sósíalistafl.
UTANKJÖRSTAÐA-ATKV.GREIÐSLAN
er. nú hafin hjá bæjarfógeta. Þeir kjós-
endur, sem fara úr bænum og verða f jar-
verandi um kosningarnar og þeir kjós-
endur úr öðrum kjördæmum, sem hér eru
staddir og ekki verða komnir heim fyrir
kjördag ættu að kjósa sem allra fyrst.
Kosningaskrifstofan tekur að sér að koma
atkvæðunum til skila.
SÓSÍALISTAR !
Komið á kosningaskrifstofuna og gefið
upplýsingar um þá kjósendur flokksins,
sem þið vitið að eru f jarverandi og verða
það fram yfir kjördag.
SÖFNUNIN
í kosningasjóð flokksins er í fullum
gangi. Flokksmenn, sem fengið hafa söfn-
unarlista ættu að skila af þeim sem fyrst
á skrifstofunni og þeir sem ekki hafa enn
fengið lista ættu að koma og taka þá. Gjöf-
um í kosningasjóð er veitt máttaka í kosn-
ingaskrifstofunni.
Kosningaskrifstofan er í Suðurgötu 10.
Opin f rá kl. 10-12,1-3,30,4-7 og 8,30 til 10
alla daga. Sími 22.
NÍKOMIÐ:
Gluggatjaldastengur úr málmi með rennibraut, h jólum og
öðru tillieyrand!, og sér stöng fyrir kappa, höfum við nú fengið.
Hefur þetta ekki sést síðan fyrir stríð og enginn þvi getað notið
þeirra þæginda, sem þetta veitir, öll stríðsárin. Notið því tækifærið.
EINCO
skipuð lækkun á launum verka-
manna og að kjör bænda væru
rýrð með lagaboði að sama
skapi. Þetta var stefna heild-
salanna. Þetta var fagnaðarboð-
skapur Vísis til þjóðarinnar.
Samtímis spáðu svo þessir for-
vitru, gætnu og raunsæju fjár-
málspekingar heildsalastéttar-
innar, þessir hyggnu verzlunar-
menn, þessir sérfræðingar þjóð-
arinnar í verðlagsmálum, um
næstu áramót, eða 1. janúar
1945 eða í síðasta lagi, er stríð-
ið hætti, myndi allt verðlag í
heiminum falla, og það væru
því glapræði fyrir þjóðina að
gera nokkuð annað en að leggja
til hatrömmustu stéttarstyrj-
aldar og stöðva alla framleiðslu
í landinu til þess að brjóta
verkalýðsstéttina á bak aftur
„í eitt skipti fyrir öll,“ eins og
Vísir komst að orði.
Þjóðin vísaði allri fjármála-
speki Vísis á bug. Hún ra'k úr-
ræðalausa, bölsýna vandræða-
stjórn hans frá völdum og hóf
þá voldugu nýsköpun atvinnu-
veganna, sem á tveim árum hef
ur gerbreytt atvinnulífi Islend-
inga. Þjóðin hefur á þessum
tíma Séð, að spekingar Vísis
voru þekkingarlausir prangar-
ar, sem aldrei hafa séð neitt
annað úrræði í neinu máli en
það að níðast á alþýðunni. Laun
in hafa verið hækkuð, kjör
alþýðunnar hafa verið bætt,
allar afurðir íslendinga hafa
verið seldar, en hrun og öng-
þveiti Vísis hefur ekki komið.
Heildsalaafturhaldið hefur
tapað í fyrsta leik. Nú skákar
það fram landsbankavaldinu til
þess að reyna að tefja nýsköp-
unina. Það er skiljanlegt, að
Vísi svíði, ef afturhaldið skyldi
einnig tapa í þeirri lotu.
En einum sigri getur aftur-
haldið hrósað. Það hefur lagt
undir sig lista Sjálfstæðisflokks
ins í Reykjavík. Draugurinn,
sem kveðinn var niður haustið
1944, glottir þar nú afturgeng-
inn.
En eins og íslenzka alþýðan
bar giftu til að hrista af sér
vandræðastjórn Björns Ólafs-
sonar, ætti hún við kosning-
arnar 30. júní að geta kveðið
niður afturhaldsdrauginn í
fimmta sæti heildsalalistans í
Reykjavík.
Auglýsií i
„MJÖLNir
I