Mjölnir

Útgáva

Mjölnir - 04.09.1946, Síða 2

Mjölnir - 04.09.1946, Síða 2
2 M J Ö L N I R I* MJÖLNIR — VIKUBLAÐ — 1 Útgefnndi: ]; Sósíalistafélag Sigluf jarðai ;j cn > Ritstjóri og ábyrgöarmaður. ]; Benedikt Sigurðsson Simar 194 og 270 ;j Blaðið kemur út jj Z alla miðvikudaga. ^ \skriftargjald kr. 15.00 árg, ]j j Afgreiðsla Suðurgötu 10. !; Stórmál, sem Alþíngi verður að ieysa Eftir fáar vikur kemur Alþingi saman. Þess bíða nú, sem jafnan áður, mörg við- fangsefni, þar á meðal stórmál, sem það verður að leysa, hvað sem öðru viðvíkur. Þessi mái eru sjálfstæðismálið, eða öðru nafni herstöðvamálið, en hitt er að finna varanlega lausn á dýr- tíðarvandamálinu. Um hið fyrra hefir mikið verið ritað og rætt, bæði fyrir og eftir kosningarnar í sumar. Fyrir kosningarnar var þess farið á leit við frambjóðend- urna, að þeir gerðu grein fyrir afstöðu sinni til herstöðvamáls- ins. En því miður gaf minni- hluti þeirra jákvæð svör, fram- bjóðendur Sós’ialista og örfáir aðrir lýstu því skýlaust yfir, að þeir vildu engar erlendar her- stöðvar á íslenzkri grund og kröfðust þess, að Alþingi mót- mælti þeirri blygðunarlausu ósvífni bandarísks afturlialds og heimsvaldasinna að fara fram á að fá hér herstöðvar og láta her sinn sitja hér nú löngu eftir styrjaldarlok. En meirihluti frambjóðenda gaf loðin svör eða engin, og sumir þögðu alveg, er álítast verður samþykki við ágengni hins erlenda stórveldis. Hið sama hefir verið uppi á ten- ingnum eftir kosningarnar. — Bandar'ikjamenn hafa haft í frammi ýmsa tilburði, sem benda til þess, að þeir ætli að sitja hér í skjóli hnefaréttarins hvað sem hver segir, og höfuð- málgögn borgaraflokkanna hafa keppst hvert við annað um að kyssa á ógnandi krumlu land- ræningjanna. Mætti ætla, ef dæmt væri efitir hinu hundslega flaðri þeirra utan í Bandaríkin eftir kosningarnar, að Alþýðu- flokkurinn, Framsóknarflokkur inn og íhaldsflokkurinn saman- stæðu af eintómum landráða- mönnum. En svo er þó ekki, sem betur fer. Yfirgnæfandi meirihluti Islendinga er á móti hverskonar ívilnunum til handa útlendingum hér á landi. Og í haust verður Alþingi að taka af skarið um þetta mál, svo öllum heimi verði ljóst, að við ætlum ★ Eftirfarandi bréf /iefir blað- inu borizt. — Hr. ritstjóri! Eg leyfi mér hér með að senda þér þessar línur með þeirri ósk, að þú birtir þær 'í Mjölni nú hið fyrsta. Það hefur allmikið verið gert að því undanfarin ár að aka fólki á vörubifreiðum , og hefur það staðið á palli bifreiðarinnar, oft svo margt, sem komist hefur fyrir, án þess að nokkur grind eða annað viðhald fyrir fólkið hafi verið um pallinn. En þó okkur að verða sjálfsitæð þjóð, en ekki fyrirlitleg leiguþý út- lendinga. Um dýrtíðarmálin hefir mikið verið ritað og rætt. Afturhalds- postularnir vilja sem ætíð áður ráða niðurlögum dýrtíðarinnar með launaskerðingum hjá verka lýðnum. Verkalýðurinn og pólitísk samtök stéttvísasta hluta hans, Sósíalistaflokkurinn, hefir hinsvegar bent á þá leið, að heildsalar og braskarar verði látnir greiða af löglega og ólög- lega fengnum auð sínum þau framlög, sem þarf til að ráða svo fram úr verðlagsmálunum, að höfuðatvinnugreinir okkar geti borið sig. Jafnframt verði að koma innflutningsverzluninni á heilbrigðan grundvöll. Borg- araflokkarnir gerðu hróp að sósíalistum í kosningahríðinni í sumar fyrir málaleitun þeirra í þá átt að stjórnarflokkarnir gerðu með sér málefnasamning til grundvallar áframhaldandi stjórnarsamvinnu. Færðu þeir þau rök, að „slíkt gæti ekki samrýmst vestrænum lýðræðis- reglum.“ En nú spyr margur. Mundi ekki hitt sannara, að þeir hafi ekki viljað sýna kjósend- um sitt rétta andlit fyrir kosn- ingar? Stafaði ekki neitun þeirra af ótta við vilja almennings í lierstöðvamálinu ? Voru þeir ekki að forðast að taka opinber- lega afstöðu til þeirrar lausnar á verðlagsmálunum, sem Sósíal- istar hlytu að gera að skilyrði fyrir áframhaldandi samvinnu? Svar við þessum spurningum fæst á Alþingi í haust. Vitað er, að ýmsir af þingmönnum borg- araflokkanna fylgja málstað Is- lendinga 'i herstöðvamálinu, og skal ekki að óreyndu efast um, að það hljóti sæmilega af- greiðslu. Hitt mun tvísýnna, hvort ráðið 'verður fram úr verðlagsmálunum án þess til stórárekstra komi. Mun þá koma í ljós, hvont Sjálfstæðis- flokkurinn vill nýsköpun í verzl- unarmálum þjóðarinnar, hvort hann ber meira fyrir brjósti hag almennings eða hag braskar- anna, en á honum mun aðallega standa nú um lausn þessa máls. En Sósíalistaflokkurinn mun sem einn maður berjast á móti hverskonar árásum á Iífskjör alþýðunnar, og bjóða velkomna alla þá, sem vilja styðja hann í þeirri baráttu. hefur þetta verið mest áber- andi í sumar, og það um hinn margbugðótta veg til Siglu- fjarðarskarðs. Getur af þessu stafað hin mesta hætta, þó ekki hafi orðið slys enn sem komið er. Ætti að ráða bót á þessu gálauslega framferði áður en svo verður. Einnig má sjá, og það ekki ósjaldan, að tveir og jafnvel þrír eru inni í bílhúsi hjá bílstjóra, og lilýtur það að þrengja svo mikið að b'ilstjór- anum, að öryggi á stjórn bif- reiðarinnar verði minna, enda með öllu óleyfiegt, og mun óvíða viðgangast nema hér. Vil ég úit af framanskráðu beina þeirri spurningu til blaðs- ins, hvort eftirlit með þessu heyri undir bifreiðaeftirlitið, eða lögreglustjóra. Væri æski- legt bæði fyrir mig og aðra að fá svar við þessu. Bæjarbúi. Blaðinu er ekki kunnugt um, undir hvorn hinna nefndu aðila þetta heyrir, og þeim er senni- lega ókunnugt um það sjálfum, ef það er rétt sem bréfritari heldur fram. Er þeim, sem kynni að.geta upplýst þetta, hér með boðið rúm fyrir athuga- semd í næsta blaði. ★ Viðtal við ungan Siglfirðing í amerísliu blaði. Nýlega birtist í víðlesnu bandarísku blaði. „Tulsa Daily World“, viðtal við ungan Siglfirðing, Gústaf Héð- inn Jóhannsson, ásamt mynd af honum. Gústaf er að læra flugvallarstjórn í Spartan Scool of Aeronautics í Tulsa, Okla- homa. Hefur hann nú sent heim úrklippu úr blaðinu, og biður þess getið vegna þeirra, sem kynnu að lesa áðurnefnt. „við- tal“, að í blaðinu sé margt eftir sér haft, sem hann hafi aldrei sagt, og sé enda ósatt. — Hefir hann merkt við á úrklippunni allt það, sem viðkomandi blaða- maður hefir látið sér sæma að hafa eftir honum. Er það furðu margt. Er ,,viðtal“ þetta hið fróðlegasta dæmi um „sann- leiksást“ og ,,heiðarleika“ amer- 'ískra blaða. ★ Jarðarför Svanborgar Bene- diktsdóttur, sem andaðist hinn 24. f. m. fór fram í gær. Hófst hún með húskeðju frá heimili sonar hennar, Guðmundar Ein- arssonar, Suðurgötu 12. Fjöl- menni var við jarðarförina. ttw ♦ ★ Jarðarför Sigurhjartar Bergs- sonar, vélamanns, fer fram í dag. Hefst athöfnin í kirkjunni kl. 2 e. h. DRENGJAFOT Ensk ullardrengjaföt nýkomið Bíóbúðin TILKYIMIMIIMG Viðskiptaráð hefur ákveðið, að hámarksálagning á innlendan ol'iufatnað skuli vera 25%. Hámarksálagning á innfluttan olíufatnað er sem hér segir: I heildsölu............................. 11% I smásölu: a. Þegar keypt er af innl. heilds.birgðum 25% b. Þegar keypt er beint frá útlöndum.... 35% Með tilkynningu þessari er úr gildi felld tilkynning viðskipta- ráðs nr. 28 frá 21. júlí 1944. Reykjavík,29. júlí 1946 V er ðlagss t jór inn Almenna útgáfufélagid Nýtt útgáfufélag hefir verið stofnað og hefur það, að öllu for- fallalausu starfsömi sína nú í haust. ( Félagar fá a. m. k. 2 bækur á ári gegn 60 króna árgjaldi. Önnur þessara bóka verður íirvalsverk frægustu höfunda allra þjóða (ca. 3—400 bls.). Hin bókin verður alþýðlegt vísinda- rit, og verður það 8—10 bindi. Ætlunin er, að síðar verði gefið út vandað tímarit, er félagar fái ókeypis. Fyrsta bókin er „Land framtíðarinnar“ eftir Stefan Zweig. Árstillag greiðist við móttöku fyrri bókarinnar. Hér liefir, þrátt fyrir mikla bókaútgáfu, verið tilfinnanleg vöntun á vísindaritum lianda almenningi, og er það m. a. markmið útgáfu Jjessarar, að bæta úr þeirri vöntun. Sú nýhuida verður tekin upp, að iunan félagsns verður sér- stök deild fyrir börn og unglinga, og hefir árgjald peirra verið ákveðið lir. 35.00, er greiðist við móttöku 1. bókarinnar, en í þessum fl. verða tvær bækur eða fleiri á ári. Áherzla verður lögð á að hafa allar bækur útgáfunnar sem vandaðastar að öllum frágangi. Umboðsmaður félagsins í Siglufirði er Kristmar Ólaf sson ALMENNA ÚTGÁFUFÉLAGIÐ Ensk og póisk kol. Pantið í síma *105 Byggingarvörudeild Kaupfélags Siglfirðinga Húshæð til sölu Til kaups, ef viðunandi tilboð fæst, efri liæð hússins Vetrar- braut 17B ásamt þakhæð, sem má innrétta til íbúðar. Forstofu- inngangur er í neðri hæð; einnig þvottahúspláss. Ibúðin er 4 her- bergi og eldliús. Laus til íbúðar 14. maí næst komandi. Semja ber við imdirritaðan, sem gefur allar nánari upplýsingar ef óskað er. Kristján Sigtryggsson Húsnæði óskast. Tvo af kennurum bamaskólans vantar herbergi í vetur. Nán- ari upplýsingar í síma 43. « 1

x

Mjölnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.