Mjölnir - 04.09.1946, Side 3
4
MJÖLNIR
S
Sildverkunarvél reynd
á Norðurlandssíld
Yerða síldverkunarvélar teknar hér í notkun nœsta sumar?
Sænskur uppfinningamaður, hr. Paul Danielsson
hefur að undanförnu gert tilraunir með vél-
verkun síldar hér á Siglufirði. Hefur árangurinn
orðið með ágætum.
Að undanförnu hefir dvalið
hér á Siglufirði sænskur verk-
fræðingur og hugvitsmaður, hr.
Paul Danielsson. Fór hann
héðan áleiðis til Svíþjóðar s.l.
laugardag. Hér hefir hann verið
að reyna síldverkunarvél, er
hann hefir sjálfur fundið upp, á
íslenzkri síld. Var hún sýnd opin
berlega s.l. fimm'tudag á sölt-
unarstöð h. f. Njörður, en þar
hafa tilraunirnar farið fram.
Vél þessi er mjög einföld að
sjá, svo einföld, að við leikmenn-
irnir furðum okkm\ á því, að
einhver af öllum þeim speking-
um, er að síldverkun hafa unnið
skyldi ekki hafa fundið hana
upp fyrir löngu. — Vélin hausár
og slógdregur síldina. Er síldin
4 lögð á færiband, sem flytur
hana á fjöður, er grípur undir
tálknin og heldur henni í skorð-
um svo hana beri rétt að skurð-
arhjóli, sem haussker hana. Um
leið og hún flyzt frá hjólinu,
þrýsta þar til gerðir armar, sem
snúast um ás, á kviðinn, svo
slógið þrýstist fram og lendir á
milli tveggja „rifflaðra“ ása, er
snúast hvor á móti öðrum og
( draga það út úr síldinni, sem
fellur s'íðan út af bandinu. —
Þrjár stúlkur þarf til að leggja
síldina á bandið. Afköst vélar-
innar eru 220—240 síldir á mín-
útu. Takmarkast þau m. a. af
því, að ekki er hægt að að leggja
öllu hraðara á færibandið. —
Talið er, að um 360 stykki fari
í tunnuna af hausskorinni og
slógdreginni síld. Um vinnugæði
vélarinnar er það að segja, að
! hún skilar 97—98% fyrsta
flokks vinnu, sem er meira en
síldarstúlkur gera yfirleitt, t. d.
sker hún minna og jafnara af
s'íldinni.
Öryggisútbúnaður vélarinnar
er mjög fullkominn. Komi það
fyrir, sem þó er nær óhugsandi
að maður festi hendina á færi-
bandinu, sem flytur að skurðar-
hjólinu, rekst hún á slá, sem
r liggur þvert yfir bandið. Stö.ðv-
ast vélin þá samstundis. Vél
þessi þarf mjög litla hirðingu
og viðhald. Hún smyr sig sjálf,
að mestu leyti, og ræsting
hennar að lokinni notkun er í
því fólgin að sprauta á hana
köldu vatni. Skurðarhjólið þarf
aðeins að hvetja á nokkurra
vikna eða mánaða fresti. Bilanir
eru mjög sjaldgæfar, enda eru
vélar þessar framleiddar af
einu þekktasta og viðurkennd-
asta firma í Svíþjóð, Arenco-
verksmiðjunum. Slit á véla-
hlutum er mjög lítið, og þarf
því sjaldan að endurnýja þá. —
Vélar af svipaðri gerð, sem not-
aðar hafa verið í Svíþjóð 'i 10—
11 ár, ganga enn „eins og
klukkur," að sögn.
Daníelsson, höfundur þess-
arr vélar, hefir unnið að upp-
finningu sinni í mörg ár. Fyrstu
vélina smíðaði hann um 1930,
en hefur endurbætt hana marg-
víslega síðan. L'ika þær nú mjög
vel. T. d. voru 5 vélar fengnar
til Peterhead í Skotlandi árið
1939, og hafa reynzt ágætlega.
Hafa sex nýjar vélar verið
keyptar þangað til viðbótar
síðan stríðinu lauk. Árið 1939
kom Daníelsson hingað til lands
og reyndi þá á Sauðárkróki vél,
sem var nokkuð frábrugðin þess
ari. Reyndist ömögulegt að
vinna íslenzka síld með henni.
Hinsvegar hefir vél sú, er hér
um ræðir, reynst þannig, að með
smávægilegum breytingum
vinnur hún 'islenzku síldina, sem
er þykkari, harðari og ötærrí, en
sú skozka og sænska, betur en
síldarstúlkur gera almennt, að
áliti fróðustu manna um síld-
verkun hér.
Laugardaginn 31. ágúst s.l.
andaöíst að heimili sínu, Suður-
götu 47 hér í bæ, Guðmundur
Kristinsson. Var hann fæddur
að Tjörnum 'í Sléttuhlíð 28. sept.
1866. Ólst hahn þar upp hjá
foreldrum sínum. — Snemma
á æfi beindist hugur hans að
sjó, enda stutt til sjávar, og var
sjósókn stunduð af föður hans
til jafns við landbúnaðinn.
Árið 1898, 20. október, giftist
hann eftirlifandi konu sinni,
Elínu Einarsdóttur, og hóf bú-
skap að Tjörnum". Eignuðust
þau 8 börn, en misstu þrjú á
tmga aldri. Var bújörðin lítil,
en setin af þremur bræðrunum,
svo annað þurfti að sækja til
framfærslu heimilisins en af-
urðir búsins, kom sér þá vel
fyrir hann að hafa í æsku tamið
sér fleiri en eina atvinnugrein,
og var þá til sjávar að sækja.
Var hann eftirsóttur í skiprúm,
og þótti það rúm vel skipað þar
sem Guðmundur var, enda var
hann mesti dugnaðar- og gleði-
maður, munu því allir er honum
kynntust, minnast bans með
hlýju í huga.
Árið 1925 fluttust þau hjónin
hingað til Sigluf j. og fór þá Guð-
mundur að stunda vinnu í landi,
Daníelsson hefir einnig
fundið upp vél, sem kverkar og
slógdregur síld.- — Hefir hún
reynst ágætlega í Svíþjóð, og er
nú verið að reyna hana á
skozkri síld. Gerir hann ráð
fyrir að koma e. t. v. með hana
hingað til reynslu næsta sumar.
Einnig hefir hann á prjónunum
vél til að hagræða síldinni fyrir
kverkunar og hausskurðarvél-
arnar, svo ekki þurfi nema eina
stúlku við hverja, en me_ð nú-
verandi fyrirkomulagi þarf
þrjár, eins og áður er getið.
Eigandi vélar þeirrar, er hér
var reynd, er sænsku samvinnu-
félögin, og er hún reynd hér að
frumkvæði þeirra. — Fulltrúi
þeirra, Harry Jansson aðstoð-
aði Dan'ielsson við tilraunirnar.
Verð vélanna er 10—12 þús.
kr. sænskar. Munu allmargir
íslenzkir saltendur þegar hugsa
gott til glóðarinnar að afla sér
þessara stórvirku tækja fyrir
næstu síldarvertíð. Er vonandi,
að úr því verði, því ekki sæmir,
að síldverkunaraðferðir hér, í
einu mesta síldveiðilandi heims-
ins, séu áratugi á eftir t'ímanum.
Ættu þeir þá um leið að grípa
tækifærið til að breyta stöðv-
unum til nútímafyrirkomulags,
en þrifnaði, hirðingu á úrgangi,
vinnuskilyrðum og allri um-
gengni á þeim mun vera í meira
lagi ábótavanit, samanborið við
það, sem bezt gerist annars-
staðar.
ýmist sem landmaður við fiski-
báta eða annað sem hendi var
næst, því þar var ekki verið að
hika, ef einhver atvinna var í
bcði. Hirti hann ætíð meira um
að vera efnahagslega sjálfstæð-
ur fyrir sitt heimili en hitt, livað
átti að vinna, enda mátti hann
öruggur færa björg í bú þess-
vegna, að heima var viðhöfð
hagsýni og mesti dugnaður hjá
hinni ágætu konu hans, enda
verður ekki uppeldi barnahóps
innt af hendi með jafn miklum
myndarskap eins og þar var,
nema með samhentu átaki
beggja. Jafnframt því, sem þau
ólu upp sín börn, tóku þau barn
til fósturs af Gísla, bróður Guð-
mundar, Karl, og ólu hann upp
sem sitt barn væri.
Nokkur síðustu árin var Guð-
mundur með öllu óvinnufær
vegna vanheilsu, og var þó
unnið meðan mátti, en á þessum
árum naut hann hinnar beztu
umhyggju barna sinna og konu,
og alltaf var lundin létt, og það
fram á síðustu stundu. Nú hafa
vegirnir skilið, en minningin um
hann Guðmund frá Tjörnum
mun lengi lifa meðal kunningja
og vina.
Skagfirðingur.
AFLAFRETTIR
Framhald af 1. síðu
Hrafnkell goði, Vestm.... 3674
Hrímnir, Stykkishólmi.... 1035
Hrönn, Sandgerði ......... 2267
Hrönn, Siglufirði ........ 3140
Huginn I, Isafirði ...... 5063
Huginn II, Isafirði ...... 4692
Huginn III, Isafirði .... 3731
Hugrún, Bolv.............. 3639
Hvítá, Borgarnes ......... 1118
Ingólfur Arnarson, Rvík 941
Ingólfur, G.K. (ex Thurid) 6396
Ingólfur, G.K............. 3266
Isbjörn, Isafirði......... 6442
Jón Finnsson II, Garði 1948
Jón Þorláksson, Rvík .... 2540
Jökull, Vestm............. 3970
Keflvíkingur, Keflavík .... 8925
Keilir, Akran............. 6355
Kristjana, Ólafsfirði.... 4021
Kristján, Akureyri ....... 6405
Liv, Akureyri............. 1778
Magnús, Neskaupst....... 4984
Málmey, Rvík ............. 4388
Már, Rvík ............... 3020
Minne, Árskógss........... 4634
Mummi, Garði ............. 3096
Nanna, Reykjavík......... 8635
Narfi, Hrísey............ 11225
Njáll, Ólafsfirði......... 9093
Njörður, Akureyri ........ 2066
Ól. Magn., Keflavík ...... 2025
Olivette, Stykkish...... 1844
Ottó, Akureyri ........... 2970
Ragnar, Siglufirði....... 7510
Reykjaröst, Keflavík ..... 5786
Reynir, Vestm............. 2195
Richard, Isafirði ........ 5650
Rifsnes, Rvík............. 8800
Siglunes, Siglufirði ..... 8971
Síldin, Hafnarfirði ...... 6274
Sjöfn, Akran.............. 2342
Sjöfn, Vestm.............. 2209
Skaftfellingur, Vestm.... 3888
Skálafell, Rvík .......... 3473
Skíðblaðnir, Þingeyri .... 5713
Skíði, Rvík .............. 4411
Skógafoss, Vestm........ 4291
Sleipnir, Neskaupst..... 6003
Snorri, Siglufirði ....... 2095
Snæfell, Akureyri ....... 10665
Sæfugl, Reyðarfirði ..... 2418
Stefnir, Hafn.............. 918
Stella, Neskaupst......... 3117
Súlan, Akureyri........... 5665
Sævaldur, Ólafsfirði.... 2245
Svanur, Rvík ............. 1427
Svanur, Akranesi ......... 4546
Sæbjörn, Isafirði ........ 3840
Sædís, Akureyri........... 5999
Sæfinnur, Akureyri ....... 6997
Sæhrímnir, Þingeyri..... 5724
Sæmundur, Sauðárkr...... 5804
Særún, Siglufirði ........ 3155
Sævar, Neskaupst........ 3946
Trausti, Gerðum .......... 3148
Valbjörn, Isafirði ....... 2998
Valur, Akran.............. 2293
Valur, Dalvík............. 1632
Viktoria, Reykjavík...... 543
Vísir, Keflavík .......... 5020
Vébjörn, ísafirði ........ 6247
Vonin II, Vestm........... 3610
Vöggur, Njarðvík ......... 2743
Þorsteinn, Rvík........... 4295
Mótorbátar (2 um nót):
Andvari — Sæfari......... 1296
Ásbjörg — Auðbjörg .... 3669
Björn Jör. — Leifur Eir. 4060
Freyja — Svanur......... 2136
Fylkir — Grettir ......... 3150
Gullveig — Hilmir ........ 3657
Gyllir — Sægeir .......... 1482
Helgi Háv. — Pálmar .... 2147
Hilmir — Kristján Jónss. 3368
Hilmir — Villi ........... 2686
Jón Finnss. — Víðir..... 3042
Milly — Þorm. rammi .... 2153
Róbert Dan — Stuðlafoss 2041
í
Guðmundur Kristinsson
Frá Tjörnum
Alþýðuflokkurinn og afstaða
lians til Sigluf jarðar
(Framhald af 1. síðu)
Þessi grein dæmir sig sjálf,
og það eru ekki miklar líkur til,
að hún nái tilgangi höfundar-
ins, sem er sá að blekkja verka-
menn til að tryggja Alþýðu-
flokknum öll völd á næsta Al-
þýðusambandsþingi.
Það er raunar ekkert óvenju-
legt, að foringjar Alþýðuflokks-
ins sendi Sósíalistum og róttæk-
um verkalýðssinnum tóninn, en
sjaldan munu þeir hafa gengið
lengra út í öfgar og ósannindi
en í þessari ritsmíð, því svo er
skotið yfir markið, að eitt aðal-
árásarefnið eru Dagsbrúnar-
samningarnir s'íðustu, en eins og
verkamönnum er kunnugt eru
það hagstæðustu samningar, er
nok'kurt verkamannafélag á
landinu hefur náð. Og greinar-
höfundur heimskar sig á því, að
birta greinar úr samningnum,
sem haim telur sönnun fyrir hve
verkamönnum, sé samningurinn
óhagstæður, og velur þá
ákvæði, sem verkalýðsfélögin
hafa í mörg ár barist fyrir, eins
og t. d. forgangsré'tt félags-
manna til vinnu.
En vond samvizka og hræðsla
við afleiðingar gjörða sinna
gerir menn stundum heimsku-
lega. Alþýðuflokksforingjarnir
óttast, að verkamenn langi ekki
til að fá aftur flokkseinræði
þeirra í verkalýðsfélögunum. —
Þeir óttast, að verkamenn muni
hvernig lýðræði þeirra var í
reyndinni, tímana þegar engir
menn í verkalýðsfélögunum
höfðu fullan atkvæðisrétt nema
þeir væru flokksbundnir Al-
þýðuflokksmenn. Þeir óttast
líka, að sambandsþing verka-
lýðsfélaganna í haust muni ekki
samþykkja að verkalýðsfélögin
verði látin halda áfram að
borga skuldir Alþýðublaðsins í
Svíþjóð, eftir að búið er að
sanna, að fé þetta fór til Al-
þýðublaðsins en ekki verkalýðs-
félaganna, eins og þeir þó full-
yrtu, þegar f járskipti fóru fram
milli flokksins og Alþýðusam-
bandsins, eða réttara sagt, þeir
vita, að þeir geta ekki látið
verkalýðsfélögin borga fyrir sig
þessar fjárfúlgur, nema þeir
hafi flokkslegan meirihluta á
þingi Alþýðusambandsins í
haust. '
Siglfirzkur flugmaður
(Framhald af 1. síðu)
— Býztu við, að fá undir eins
atvinnu hér?
— Það er óráðið enn. En auð-
vitað geri ég mér vonir um
það.
Árni er kornungur maður, ný-
orðinn 19 ára. Hann er sonur
Ólínu Jónsdóttur og Friðjóns
Vigfússonar, Norðurgötu 11.
Einn annar Siglfirðingur mun
nú vera á flugskóla og enn
annar að læra flugvallarstjórn.
Vonandi verður þess ekki langt
að bíða, að Siglfirðingar geti
notfært sér kunnáttu þeirra. —
T. d. er talið, að hægt mundi að
halda uppi flugferðum héðan,
ef flugvélaskýli kæmist upp.
Færeysk sldp:
Fame .................. 2719
Lt. Vedrines .......... 3556
Suderoy ............... 2375
Svinoy......i......... 2969
Von ................... 3122