Mjölnir

Eksemplar

Mjölnir - 04.09.1946, Side 4

Mjölnir - 04.09.1946, Side 4
Miðvikudaginn 4. sept. 1‘46 40. tölublað. 9. árgangur. Öllum þeim, sem heiðruðu mig og glöddu með heimsóknum, skeytum og gjöfum á áttræðis- i « afmæli mínu og gjörðu mér daginn ógleyman- legan, færi ég mínar innilegustu hjartans þakkir. Ég þakka sérstaklega skipstjórafélaginu á Siglu- firði fyrir stórhöfðinglega peningagjöf og sæmd. Ég bið guð að blessa ykkur öll. JÓN JÓHANNESSON, skipstjóri U p p b O ð Verður lialdið við húsið Snorragötu 3 (Antonsbragga) fimmtu- daginn 5/9 ’46 kl. 4 e. li. I»ar verða seldir ýmsir liúsmunir, svo sem borð stólar, skápar eld/iúsáliöld. Einnig smíðaáhöld, fiskilínur og margt fleira. Upp- boðsskihnálar birtir á staðnum — Gjaldfrestur til 1. janúar. MAGNtFS pálsson ARI JÓNSSON Viskastykki Eklliúshandklæði Gúmmídúkar' í barnarúm G/ímmíbuxur barna Skriðbuxur Herrapeysur Vasaklútar, hvítir Nærbuxur, stuttar, Drengjabuxur Bamakot Náttermar Náttkjólar Silkisokkar Slæður Hárnet Vinnuvettlingar Tauhanzkar f. dömur Kjólanaglar ný teg. Hvítar bangsabuxur Verzlynin Túngötu 1 Sígarettur Reyktóbak Neftóbak Vindlar Eldspýtur Valuí Teborð, mjog falleg Rafsuðu þvottapottay Jólatréseríur Gúmmíboltar Vasalugtir og battery Valur NÝJAR VÖRUR Bómullarsokkar Hosur Herranærföt Voxdúkur Handklæði Ferðatöskur, 3 stærðir o. fl. o. fl. \ Aðalbúðin h. f. HREINGERNING Iiona óskast til að gera lireina lækningastofu Upplýsiiigar gefur Þórarinn Guðnason læknir. SIGLUFJARÐARBÍÚ sýnir myndina BORGIN Mjög tilkomumikil mynd. Pantaðir aðgöngumiðar, sem ekki er búið að taka 10 mín- útum fyrir kl. 9 verða seldir öðrum. NYJA BÍÚ Mcðviltudaginn kl. 9: Skyttur dauðadalsins Ævintýn herra Janiks Eftir CAREL KAPEK þér að finna upp einhverja aðferð til að kló- festa hann. Jæja, góða ferð, Hrúska.“ Síðan sneri hann sér að herra Janik. ,,Ég veit eigin- lega ekki hvernig ég á að þakka yður,“ sagði hann. „Það yoruð þér, sem funduð líkið aí stelpunni hans Jindrich Basta, er ekki svo?“ Herra Janik roðnaði. „Það var bara slembi- lukka,“ flýtti hann sér að segja. „Satt að segja — ég ætlaði ekki — ég var ekki------“ „Þér eruð gæddur eðlisávísun, herra Janik,“ sagði sá þrekvaxni i viðurkenningartón. „0g það er sjaldgæfur hæfileiki. Þér ættuð að ganga í lögregluna, herra Janik.“ „Ég er hræddur um, að mér sé ómögulegt,“ anzaði herra Janik. „Ég — sjáið þér til — ég á fyrirtæki, — sem gengur vel — gróið fyrirtæki, sem-------“ „Gerið það, sem yður finnst hyggilegast,“ andvarpaði sá þrekni, „en það er slæmt engu að siður. Það eru ekki allir eins andskoti lagnir og þér! Eg vona, að við eigum eftir að hittast, herra Janik. Um það bil mánuði síðar borðaði herra Janik kvoldverð með einum viðskiptavini sínum frá Leipzig. Auðvitað fer slíkur kvöldverður tveggja verzlunarmanna ætíð frám á sinn sérstaka hátt, og ekki rasað að neinu. Kon'iakið, sem herra Janik og vinur hans ncyttu með matnum var alveg einstaklega got't, og endirinn varð sá, að herra Janik harðncitaði að ganga heim. Hann gaf þjóninum riierki og heimtaði leigubifreð. Þegar hann kom út úr hótelinu sá hann leigu- bifreið framan við tröppurnar, fór inn í hana skellti hurðinni aftur og steingleymdi í ham- ingjuástandi sínu að segja bifreiðastjóranum hvar hann ætti heima. Samt sem áður lagði, bifreiðin af stað, og herrá Janik, sem hafði hreiðrað þægilega um sig í einu horninu, stein- sofnaði. Hann hafði enga hugmýnd um hve lengi ökuferðin stóð yfir, en vaknaði þegar bif- reiðin nam staðar og bílstjórinn sagðh „Þá er- um við nú kómnir á ákvörðunarstaðinn, herra minn. Þér eigið að fara upp. Herra Janik velti því lengi fyrir sér, hvjar hann gæti verið staddur. en með þv'í að honum var hér um bil sama á hverju gekk, vegna koníaksins, sem hann hafði látið í sig, rambaði hann upp einhverjar tröppur og opnaði hurð. í herberginu fyrir innan voru um það bil 'tuttugu menn, sem horfðu með ákafasvip á dyrnar, þegar hann kom inn. Allt í einu varð kynleg þögn, einn mannanna stóð upp, gekk á móti herra Janik og spurði hryssings- lega: „Hvað viljið þér! Hver eruð þér?“ Herra Janik horfði undrandi í kringum sig; hann kannaðist við fimm eða sex af þeim, sem viðstaddir voru — það voru alþekktir menn, sem álitið var að §kiptu sér af pólitík, þó þeir kæmu ekki fram opinberlega sem stjórnmálamenn, en herra Janik skipti sér aldrei af stjórnmálum. „Drottinn minn dýri,“ sagði hann alúðlega, „hugsa sér, að maður skuli- rekast á herra Koubek og herra Heller hérna! Sæll, Ferry! Nú væri,£vei mér gott að fá einn lítinní" „Hvernig komst þessi náungi hingað“, urraði einn úr hópnum. Tveir menn ýttu herra Janik fram 'i ganginn. „Hvernig komstu hingað?“ spurði annar þeirra hörkulega. „Hver bauð þér ?“ Það rann af herra Janik við þennan skort á alúð'. „Hvar er ég,“ hrópaði hann móðgaður. „Hvern djöfulinn hafið þið farið með mig?“ Annar mannanna hljóp niður tröppurnar og steytti sig framan í bifreiðastjórann. „Bölvaður asninn þinn,“ hrópaði hann. „Hvar tókstu þenna náunga?“ t „Nú, framan við hótelið,“ svaraði bílstjórinn afsakandi. „Mér var sagt, að ég ætti að vera framan við hótelið klukkan tíu í kvöld, taka þar mann og aka með hann hingað. Þessi herra- maður fór inn í bílinn minn klukkan tíu, án þess að segja eitt- einasta orð, svo ég fór með hann „Guð minn góður,“ æpti sá, sem niðri var. „Þér hafið komið okkur 'I laglega klípu.“ Herra Janik settist auðmjúklega á rtöppurnar „Aha,“ sagði hann í velþóknunartón, „lej'ni- fundur — ha! Nú verðið þið að kyrkja mig og grafa líkið. Nú skulum við fá okkur glas af vatni.“ ^ „Sjáið þér nú til,“ sagði annar af fylgisvein- um hans. „Yður skjátlaðist. Það var enginn Kou- bek eða Heller þarna inni; skiljið þér það? Yður skjátlaðist algerlega. Nú látum við aka yður aftur til Prag. Ég bið yður að afsaka mistökin.“ „Verið þér ekkert að minnast á það,“ svaraði herra Janik alúðlega. „Ég. veit, að bifreiðar- stjórinn á að skjóta mig á leiðinni til baka og grafa mig einhversstaðar í kjarri. Sama er mér. Eg var sá bölvaður artrli að gleyma að segja hvar ég á heima, og þarna sér maður hvað af því hlýzt!‘\ „ÞÚ ert drukkinn, er það ekki?“ spurði hinn eins og fargi hefði létt af honum. „Að sumu leyti er það rétt hjá yður,“ svaraði herra Janik samþykkjandi. „Sjáið þér nú til, ég borðaði í kvöld með Meyer nokkrum frá Dres- den. Ég heiti Janik, sel pappír og tréni í heild- sölu,“ kynnti hann sig sitjandi á tröppunum. „Þú ættir að fara að sofa úr þér,“ ráðlagði ókunni maðurinn honum. „Og þegar-jaú ert búinn að sofa úr þer, þá mannstu ekki einu sinni, að við — hm — að við gerðum þér þetta ónæði.“ „Allt 'i lagi“ sagði herra Janik fyrirmannlega. „Þér farið og sofið úr yður líka. Hvar fæ ég rúm?“ „Heima hjá þér,“ svaraði sá ókunni „Bílstjór- inn ekur þér heim. Lofaðu mér að hjálpa þér að komast inn í bílinn.“ „Eg kemst það hjálparlaust,“ sagði herra Ja^iik siðlátlega. „Eg er ekki eins slompaður og þér. Farið þið nú og sofið úr yður. Bílstjóri, akið mér til Bubenec." Bifreiðin rann af stað. Kænskuglampi ljómaði úr augum herra Janiks; hann var að setja á sig staðinn, sem farið var frá. - Morguninn eftir símaði hann til lögreglustöðv- arinnar og sagði frá ævintýri s'inu kvöldið áður. „Herra Janik,“ sagði rödd á lögreglustöðinni eftir augnabliksþögn. „Við höfum mikinn áhuga á þessu. Gætuð þér komið hingað undir eins?“ Þegar herra Janik kom á stöðina biðu hans þar f jórir menn, með stóra þrekvaxna náungann í broddi fylkingar. Herra Janik varð að segja þeim einu sinni enn hvað gerzt hafði og hverja hann hafði séð. Númer bifreiðarinnar var NXX 7Ö5,“ bætti sá þrekvaxni við. „Einkabifreið.“ Af þessum sex mönnum, sem herra Janik þekkti, kannast ég ekki við þrjá. Eg yfirge| ykkur nú herrar mínir. Herra Janik, komið með mér.“ Herra Janik, sem lét lítið yfir sér, sat inni í skrifstofu þrekvaxna herramannsins, sem skálmaði fram og aftur um gólfið. „Herra Janik,“ sagði hann loks, „það eina, sem ég get sagt um þetta mál, að svo stöddu er þetta Nefnið það ekki við nokkurn mann. Það eru ríkisleyndarmál saman við þetta skiljið þér?“ Herra Janik kinkaði kolli þegjandi. „Guð minn

x

Mjölnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.