Mjölnir

Útgáva

Mjölnir - 11.09.1946, Síða 1

Mjölnir - 11.09.1946, Síða 1
SÓSÍ ALISTAR! Áríðandi mál verða á dagskrá á fundinum annað kvöld. Fjölmennið! Mætið stundvíslega! VI Síldveiðarnar i sumar hafa brugðist Sjómenn bera skarðan hluf frá borði Nú er síldveiðunum lokið að þessu sinni. Eftir eru nokkur skip, sem ennþá stunda rek- netaveiðar. Hjá þeim er afli frekar tregur og langt sóttur, 50 til 70 mílur frá Siglufirði. Síldveiðin í sumar hefur brugð- ist að miklu leyiti. Fjöldi skipa fiskuðu ekki fyrir hinni mjög svo lágu tryggingu til sjómann- anna. Hlutir sjómanna eru mjög rýrir; langt fyrir neðan það, sem landverkamenn hafa haft hér í sumar. Á þeim skipum, er ekki fiskuðu fyrir tryggingu var fastakaupið innan við 1200 kr. á mánuði. Þar af verða sjómenn að greiða fæði, allt upp 'í 600 kr. á mánuði. Þessir menn hafa því ekki haft nema rúmar 1000 kr. yfir síldveiðitímabilið. Margur sjómaðurinn gekk algjörlega slyppur frá borði, því útsvar og aðrir skattar voru teknir af þessu kaupi. Á þeim skipum, sem betur fiskuðu er hluturinn viítanlega hærri, en það eru til- tölulega fá skip, sem fiskuðu það vel, að um sæmilegan hlut til sjómanna sé að ræða. Þannig gengur það til. — Þeir menn, sem mest leggja á sig erfiði og hættur bera minnst úr býtum, eru verst tryggðir f járhagslega séð. Þetta er þjóðar svívirða, sem verður að hverfa. Sjómað- urinn, hvort sem hann stundar síldveiðar, þorskveiðar eða siglir á flutningaskipum .verður að bera það mikið úr býtum, að efnalegir hagsmunir hans og aðstandenda séu tryggir, hvernig sem allt fer. Við Islend- ingar verðum að læra að skilja þann einfalda sannleika, að án þess að hafa góð og stór skip, búin beztu og fullkomnustu tækj um, og án þess að hafa ötula og hrausta sjómannastétt, getum við Islendingarekkihaldiðáfram að lifa sem sjálfstæð þjóð. Það er því stórt atriði til trygg- ingar sjálfstæði okkar íslend- inga, að nægjanlega margir menn fáist til að stunda sjó- mennsku, en þv'í aðeins er hægt að krefjast þess af sjómönnun- um, að þeir haldi áfram störfum sínum á sjónum, að þeim sé ekki aðeins tryggð jafngóð skil- yrði og landverkafólki, heldur það mikið betri, þar sem þeir leggja meir á sig með löngum vinnutíma og meiri hættum. — Hvernig þessum málum yrði bezt skipað er mál út af fyrir sig, sem verður að takast til alvarlegrar yfirvegunar þegar, slífet þolir enga bið. Maður gæti látið sér detta í hug opinberar tryggingar, sem gætu gripið inn í þegar illa gengur. Auk þess væri ekki ólíklegt, að hægt væri að fá útgerðarmenn til þess að hækka núverandi tryggingu. — Hvað sem annars verður gjört, og hvaða leiðir, sem farnar verða, verður það eitt að ráða, að sjómannastéttinni verði séð fyrir sómasamlegum launum, sem öðrum þegnum þjóðfélags- ins. Annað munu sjómenn ekki láta bjóða sér upp á. Iþróttamót milli Þingeyinga, og Siglfirðinga fór fram hér á Siglufirði dagana 7. og 8. sept.. Keppninni var hagað þannig, að tveir menn voru va'dir til keppni í hverri grein, frá hvoru héraði. Stig veru reiknuð út eftir finnsku stigátöflunni. Keppnin hófst kl. 5 é. h. á laugardag með 100 m. hl. IJrslit urðu þau, að 1. varð Bragi Friðriksson S. á • 12,2 sek. 2. Stefán. Friðbjarnarson S. á 12,3 sek. 3. Hróar Björnsson Þ. á 12,4 s. 4. Bjarni Sigurjónsson Þ. 12,5 s. Aðstæður voru lélegar, völlur- inn linur og ekki nógu langur, svo hlaupa varð út á grasbala utan vallarins. Hlaupið var skemmtilegt. Sérstaka athygli vakti Stefán með árangri sínum, en þetta er hans fyrsta keppni. Siglfirðingar hlutu 1092 stig fyrir hlaupið, en Þingeyingar 1016 stig. Heildarsöltunin Þriðjudaginn 10. sept var heildarsöltunin á öllu landinu 151.047 tunnur. Skiptist hún sem hér segir á söltunarstaðina: Akureyri og nágr. .. 2526 tn. Dalvik .............. 4752 — Hofsós............... 1592 — Hólmav'ik ........... 5306 — Hrísey .............. 3794 — Húsavík ............. 3230 — Ingólfsfjörður ...... 2365 — Ólafsfjörður ......... 761 — Reykjarfjörður ...... 3154 — Sauðárkrókur ........ 7352 — Siglufjörður ...... 109631 — Skagaströnd .......... 979 — Grenivík ............ 540 — Drangsnes ........... 4635 — Raufarhöfn ........... 430 — Or manntalsskýrsl- unni 1945. Mannfjöldinn á öllu landinu var í árslok 1945 samtals 130,316. Af þeim fjölda bjó i Reykjav'ik 46,578 manns, en í sveitum og þorpum með minna en 300 íbúa voru 41985 íbúar. Hástökk: 1. Hafl. Guðmundsson S 1,59 m 2. Hjálmar Torfason Þ. 1,59 m 3. Óli P. Kristjánsson Þ 1,54 m 4. Bragi Friðriksson S 1,49 m Aðstæður mjög slæmar. Svo laus jarðvegur, að uppstökkin brugðust keppendum með öllu. Hafliði og Hjálmar háðu skemmtilega keppni um 1. sætið. Hafliði hefur mikla hæfileika fyrir þessa grein, sem hann þarf að notfæra sér. Óli Páll er stílgóður stökkvari, sem áreið- anlega getur betur við betri að- stæður. Siglfirðingar 1005 stig. Þingeyingar 1055 stig. Kúluvarp: 1. Bragi Friðriksson S 13,70 m 2. Hjálmar Torfason Þ 13,39 m 3. Óli Páll Kristjáns. Þ 12,41 m 4. Alfreð Jónsson S 12,09 m Hér náðist ágætur árangur. ORÐSENDING til meðlima Æskulýðs- fylkingarinnar á Siglufirði Nú á næstunni mun Æsku- lýðsfylkingin fél. ungra sósíal- ista hefja starfsemi sína að nýju. Til starfsins þarf alltaf nokkurt fé og því eru það til- mæli stjórnar félagsins, að fé- lagarnir greiði árgjöld sin hið fyrsta. Fyrst um sinn mun maður frá Fylkingunni verða til viðtals á skrifstofu Sósíalistafél. Suður- götu 10 á mánudaga, miðviku- daga og föstudaga kl. 5—7 e.h. Mun hann taka á rhóti árgjöld- um, afhenda skírteini og gefa upplýsingar um fyrirhugaða vetrarstarfsemi. Félagar! Komið á skrifstof- una og greiðið árgjöldin og rabbið um framtíðina. Öll heil til starfa fyrir hugsjón verfea- lýðsins — sósíalismann! Með félagskveðju. Bragi náði sér á strik og náði ágætum köstum og má mikils af honum vænta með góðri æf- ingu. Hjálmar setti ágætt þingeyskt met og gefur miklar vonir. Óli Páll er stílgóður en virðist vera hæfari sem stökkv- ari. Aifreð náði hér sínum bezta árangri, þó æfingarleysi væri bersýnilegt. Hann er sterk- ur og snarpur, en þarf að bæta stílinn. Siglfirðingar 1414 stig. Þingeyingar 1413 stig. Langstökk: 1. Öli Páll Kristjáns. Þ 6,11 m 2. Ingvi Br. Jakobs. S 5,82 m 3. Bragi Friðriksson S 5,77 m 4. Bjarni Sigurjónss. Þ 5,67 m Óli Páll vann keppnina örugg- lega. Búizt var við betri árangri hjá Ingva og Braga, en meiðsli á fæti háði Ingva mjög, en Bragi mun hafa verið orðinn þreyttur, eftir að hafa keppt í öllum greinum. Bjarni er mjög léttur og efnilegur.- Þingeyingar 1065 stig. Siglfirðingar 1021 stig. Á sunnudaginn var keppt fyrst í 4X100 m hlaup á Norður Sjóm Æ. F. S. fþróttakeppni Siglfirðinga og Pingeyinga Þingeyingar sigruðu með 11340 stigum. Siglfirðingar hlutu 11063 stig 41. tölublað. 9. árgangur Miðvikudagmn 11. sept. 1946 götunni. Siglfirðingar hlupu það á 48,3 sek. en Þingeyingar á 49,8 sek. Erfitt er að hlaupa á harðri götunni, en þó má telja árangur góðan. Sveit Siglfirð- inga skipuðu þessir menn: Bragi Friðriksson, Haraldur Pálsson, Vilhjálmur Sigurðsson og Stefán Friðbjarnarson. Sveit Þingeyinga var þannig skipuð: Óli Páll Kristjánsson, Jón Jóns- son, Bjarni Sigurjónsson og Hróar Björnsson. Siglfirðingar hlutu 2304 stig en Þingeyingar 1996 stig. Spjótkast: 1. Hjálmar Torfason Þ 51,21 m 2. Ingvi B. Jakobsson S 47,23 m 3. Jónas Ásgeirsson S 45,32 m 4. Vilhj. Pálsson Þ 43,10 m Hjálmar bar af hvað stíl og getu viðvék. Ef hann yki hraða sinn 'i atrennunni og hefði snarp ara útkast væru 60 n*. ekki f jar- lægt takmark fyrir hann. Ingvi er mjög efnilegur. Hefur góðan hraða 'i atrennu og snerpu, en gera verður þá kröfu, að hann æfi vel og viturlega og hagnýti þannig sína góðu hæfileika. — Jónas ér mjög lipur, hefur mjög falleglt útkast. Vilhjálmur er enn ungur, en ber ótvíræðan vott um mikla hæfileika. Þingeyingar hlutu 1076 atig en Siglfirðingar 1041 stig. Þrístökk: 1. Óli Páll Kristjáns. Þ 13,78 m 2. Guðm. Árnason S 13,05 m 3. Hjálmar Torfason Þ 12,71 m 4. Tómas Jóhannss. S 12,24 m Óli Páll bar af hvað stíl snerti og setti ágætt drengjamet. — Þykir mér líklegt, að hann nái 14,00 m. áður en langt inn l'íður. (Framhald á 2. síðu) Kvikmyndasýningar og fyrirlestrar frá Noregi Frú Guðrún Brunborg mun sýna hér kvikmyndir (tal- myndir) frá Norður-Noregi á næstunni. Eru myndir þessar teknar eftir stríð og mun frúin flytja skýringar við þær á ís- lenzku. Ágóðanum verður varið til stofnunar styrktarsjóðs fyrir íslenzka og norska stúdenta við háskólann í Oslo til minningar um Olav Brunborg, son frúar- innar, sem varð nazismanum að bráð á hernámsárunum.

x

Mjölnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.