Mjölnir

Útgáva

Mjölnir - 11.09.1946, Síða 2

Mjölnir - 11.09.1946, Síða 2
2 MJÖLNIR T I MJÖLNIR í — VIKUBLAÐ — \ 2 Ctgefandi: 2 s Sósíalistafélag Sigluf jarðar s s Ritstjóri og ábyrgðarmaður: S s Benedilct Sigurðsson 2 s Símar 194 og 270 2 S Blaðið kemur út 2 s ylla miðvikudaga. ? Áskriftargjald kr. 15,00 árg. 2 s Afgreiðsla Suðurgötu 10. S Alþýðusambands- kosningarnar Þessa dagana fara fram í verkalýðsfélögunum víðsvegar um landið kosningar á fulltrú- um til þings Alþýðusambands Islands, sem halda á í Reykja- vík í byrjun nóvembermánaðar í haust. Innan verkalýðsfélaganna eru v'iða óviðurkvæmilegar deilur og má heita, að fjöldi félaga sé alveg skiptur í tvo fjandsaim^ legá arma. Annarsvegar sósíal- ista og aðra róttæka verkalýðs- sinna, sem vilja láta félögin vera óháð pólitískum flokkum og ein- beita afli þeirra að hagsmuna- málum stéttarinnar, hinsvegar Alþýðuflokksbroddarnir, sem þrá fyrri tíma, þegar þeir not- uðu verkalýðsfélögin í flokks- þágu sína, stundum gegn hags- munum verkalýðsins. Eins og menn muna. gekk misnotkun Alþýðuflokksins svo langt í Alþýðusambandinu, að um m^rgra ára skeið var þar ekkert lýðræði, heldur þvert á móti flokkseinræði Alþýðuflokksins þar sem enginn msðlimur verka- lýðsfélaganna hafði fullan at- kvæðisrétt nema hann væri einnig Alþýðuflokksmaður. — Þetta þrælaákvæði, sem var í 14. gr. Alþýðusambandslag- anna meira en heilan áratug, var orðið svo illræmt, að Alþýðu flokksmennirnir sáu ser ekki fært annað en að láta það niður falla, a. m. k. í bili. En það var ekki gerit með góðu, ekki fyrir hugarfarsbreytingu, heldur af hræðslu við verkalýðinn og það er full ástæða til að halda, að ef þeir fengju atkvæðamagn til að ná meirihluta á sambandsþingi, myndu þeir setja sömu eða svip- uð ákvæði, eða ef það yrði ekki þá taka þá samt upp sömu mis- beitinguna á valdi sínu í ein- hverri annarri mynd. Alþýðuflokksmennirnir sltilja vel hverra hagsmuna foringjar þeirra hafa gætt í Alþýðusam- bandinu, hver er í þakklætis- skuld við þá fyrir allar kaup- lækkanirnar. klofninginn í verka lýðsfélögunum, glundroðann og illdeilurnar, sem þeir hafa komið þar á stað. Enda hrópa þeir nú á atvinnurekendur og afturhald sér til stuðnings við kosningarnar. Á nokkrum stöð- um, ganga atvinnurekendur og afturhaldsöfl opinberlega til kosninga með Alþýðuflokkn- um, það er gert á Akureyri og það var gert 'í Ólafsfirði í fyrra- dag. En verkalýður Ólafsfjarð- ar hefur þegar aflað sér tölu- verðrar reynslu og stéttarþroska og fulltr. „lýðræðisflokkanna“ fengu bara 19 atkvæði en hinir róttæku verkamenn 65 atkvæði. Þessi atkvæðágreiðsla er ekki aðeins sómi fyrir verkamenn í Ólafsfirði, heldur vegsauki fyrir bæinn allan. Fyrir Alþýðusambandsþing- inu liggja mörg stórmál. Það þarf að festa og efla starfsemi félaganna, knýja fram réttan vísitölureikning og sumstaðar þarf kaupgjald að hækka. Öll þessi mál þarf þingið að taka til meðferðar og gera ráðstaf- anir til að þau leysist farsællega. Þá þarf þingið að hafa djörf- ung til að ákveða, að Alþýðu- sambandið hætti greiðslum á ca. 80 þúsund króna skuld, sem Alþýðuflokkurinn gerði því að greiða þegar aðskilnaður varð á Alþýðusambandinu og Alþýðu- flokknum, en síðar hefur sann- ast, að mest af þessu fé eða kannske allt fór til Alþýðu- blaðsins. Þá þarf þetta þing að gera víðtækar ráðstafanir til að bæta erindrekstur og fræðslu og út- breiðslustarfsemi, auk fjölda annarra aðkallandi mála. Verka lýðnum er nauðsyn að vera vel á verði. Ef Alþýðuflokkurinn og afturhaldsöflin ná meirihluta á þinginu er mikið starf gert að engu, og verkalýðshreyfingunni kippt aftur á bak um mörg ár. Þetta er augljóst mál og á að vera auðvelt fyrir alla verka- menn að velja á milli þeirrar víðsýnu og róttæku framfara- stefnu, sem Alþýðusambandið fylgir nú og stefnunni sem fylgt var þegar engir höfðu fullan atkvæðisrétt nema þeir væru einnig Alþýðuflok'ksmenn. Sú stefna er smánarblettur á Al- þýðusambandinu. Hver og einn, sem er meðlim- ur í verkalýðsfélagi, verður að gera sér grein fyrir hve nauð- synleg verkaiýðsfélögin eru, hve miklu góðu þau"hafa til leiðar komið fyrir alla stéttina, hver ábyrgð hv'ílir á hverjum og ein- um einstakling. Eftir rólega og íhugula yfirvegun um þetta ættu menn að ganga til þessara kosninga, þá munu menn ekki í vafa um að það er ekki sæm- andi annað en senda aðeins og eingöngu róttæka verkalýðs- sinna á þingið. TIL SÖLU Hús við Aðalgötu til sölu. I hús- inu er sölubúð og íbúð. Upplýs- ingar gefur BJÖRGVIN BJARNASON lögfræðingur Frönsk ilmvötn Dömuhanzkar ýmsir litir. Myndarammar o fl. o.fl Verzlunin Túngötu 1 Alúðar þakk/r til allra þeirra, sem auðsýndu okkur samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför móður okkar Svanborgar Rannveigar Renediktsdóttur BÖRN OG TENGDABÖRN IBÚÐ TIL SOLll Rishæð á húsinu Kirkjustíg 3 er til sölu ásamt hálfum kjallara og hálfri lóð hússins. Upplýsingar gefur VILHJÁLMUR guðmundsson Kirkjustíg 3 Sjúkrahúsið vantar starfsstúlkur nú þegar og 1. október TIIKVIMIMIIMG Meðan erfiðleikar eru á að fá varaliluti til v/ðgerðar á reið- hjólum, verða þeir, sem kcypt hafa reiðhjól frá okkur látnir sitja fyrir með aðgerðir. Reiðhjólaverkstæðið VALUR 150 héstafla Fairbanks-Morse Diesel bátavél get ég útvegað nú þegar til afgreiðslu með næsta sk/þi frá Reykjavík. Ennfremur 10 II. P. hátamótouf 20 II. P. og 30 II. P. landmótora. GUNNAR BlLDDAL Sími 206 TILKYNNING Þeir, sem skulda frá uppboði okkar 5. sept. s.h eru beðnir að snúa sér með greiðslu til Kristmars Ólafssonar, sem hefur inn- heimtu fyrir okkar hönd. Ari Jónsson Magnús Pálsson FRÁ BARNASKÚLANUM Börn, sem fædd eru 1936, 1937, 1938 og 1939 mæti í barnaskólanum 16. sept. kl. 2 e. h. SKÓLASTJÓRI Röskan og ábyggilegan S E N DIL vantar oss sem fyrst. KAUPFÉLAG SIGLFIRÐINGA íbróttamót (Framhald af 1. síðu) Guðm. kom á óvart með árangri sínum; hann þarf aðeins að æfa stílinn vel, þá er góðra af- reka af honum að vænta í fram- tíðinni. Þingeyingar hlutu 1365 stig. Siglfirðingar 1209 stig. Kringlukast: 1. Bragi Friðriksson S 38,47 m 2. Hjálmar Jónsson Þ 34,31 m 3. Hróar Björnsson Þ 34,05 m 4. Eldj. Magnússon S 32,97 m Bragi kastaði mjög vel og hefði að öllum líkindum náð 40 m kasti, hefði hann ekki verið þreyttur frá deginum áður. — Hjálmar hefur skilyrði til góðs árangurs 'í þessari grein, og ætti hann að snúa sér í að æfa hana. Hróar kastaði mjög vel, þegar tekið er til greina, að hann kas'taði án snúnings, þarf hann þegar að byrja æfingu á honum og þá getur hann búizt við 4—5 m. betri árangri. Eldjárn er snarpur, en þarf að æfa mun betur. Siglfirðingar 1181 stig. Þing- eyningar 1095 stig. 3000 m. hlaup: 1. Jón Jónsson Þ. 9 m45,7 sek 2. Sig. Björgv.s. Þ 9 — 48,0 — 3. Har. Pálsson S 10 — 57,0 — 4. Jóh. Möller S 11 — 0,50 — Hér hlutu Siglfirðingar úr- slitahöggið, til þessa hafði keppnin verið mjög spennandi og tvísýn, en hér sigruðu Þing- eyingar glæsilega. Búizt var við þátttöku Ásgríms Kristjáns- sonar, en hann gat ekki mætt og var það algjörlega Jóhanni að þakka, að Siglfirðingar gátu tekið þátt í hlaupinu. Jón hljóp vel og er augsýni- lega 'i góðri æfingu. Sigurður hefur þol, en slæman stíl, sér- staklega er handaburður hans lélegur og legan í hlaupinu skökk. Bæti hann stíl sinn get- ur hann komizt langt, því vilja og þrek vantar ekki. Haraldur ætti að vera mun betri, því hlaupalag hans er gott og þrek- ið mikið. Jóhann stóð sig fram- ar öllum vonum. Hlaupið fór fram á götunum og var of hart að hlaupa á þeim. Þingeyingar 1259 stig. Sigl- firðingar 796 stig. Þingeyingar unnu keppnina með 11340 stigum á móti 11063 stigum. Mótið fór í heild vel fram, og gekk mjög greiðlega. Þetta keppnisfyrirkomulag er mjög skemmtilegt, og er von- andi, að keppnin geti farið fram árlega í framtíðinni. Þingeyingarnir voru vel’ að sigrinum komnir, þeir voru í betri æfingu en Siglfirðingar. Framkoma keppenda og áhorfenda var mjög góð og hafði það sín miklu áhrif til að gera mótið ánægjulegt. Þing- eyingunum var á mánudag boðið upp í Siglufjarðarskarð og að skoða Hólsbúið. Héldu þeir heimleiðis með Esju á þriðju- dag. Siglfirðingar þakka þeim komuna og skemmtilega keppni. Að síðustu vonum við, að mót þetta vekji áhuga ungra manna fyrir þessum íþróttum, þannig að Siglfirðingar gætu vænzt sér sigurs í næstu viðureign við Þingeyingana. s ♦ í

x

Mjölnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.