Mjölnir

Issue

Mjölnir - 11.09.1946, Page 3

Mjölnir - 11.09.1946, Page 3
MJÖLNIR 3 f > f / M E X í K Ó land blómlegrar, lýðrœðislegrar þróunar Hvað vitum við eiginlega um Mex'ikó? Flestir okkar gera sér rómantískar hugmyndir um þetta land. Það stendur okkur fyrir hugskotsjónum sem land, þar sem marghleypurnar gjamma, byltingar verða í hverri viku og allt er með leynd- ardómsfullum og annarlegum blæ. Þessar húgmyndir byggjast á algjörum ókunnugleika um hið raunverulega ástand. Menn gleyma því, að byltingarnar voru afleiðing margra ára póli- tískrar og félagslegrar kúgun- ar, sem endi var bundinn á 1910 þegar hernaðareinræði Porfirio Diaz var brotið á bak aftur eftir að það hafði varað í 30 ár. Eftir 1910 hófst byltingatímabil, þar sem barilfc var fyrir frelsi bænd- anna og verkamannanna af klafa stórjarðeigenda og hernaðar- klíkunnar, sem arðrændi þá á hinn miskunarlausasta hátt. Þetta var blóðugt t'imabil, sem stóð í 10 ár, vegna stöðugrar tilrauna aflturhaldsins til að hrifsa völdin á nýjan leik. En að lokum var það brotið á bak aftur í eitt skipti fyrir öll. Þátt- ur Indíánanna í þessari frelsis- baráttu reið baggamuninn og afleiðingin af sigrinum varð eft- irtektaverð umsköpun í öllu þjóðlífi Mexíkó. Þessi róttæka umsköpun endurspeglast í stjórnarskránni, sem samin var 1917 í bænum Queratore. I Mexíkó á sér nú stað hörð þjóðfélagsleg þróun, sem er að breytast úr úreltu og frumlegu þjóðfélagi í þjóðfélag með stór- fellda lýðræðislegra þróunar- möguleika. Það er Adi Stachlovici, mexí- kanskur blaðamaður, sem á str'iðsárunum hefur vérið starfs maður í mexíkanska innanríkis- ráðuneytinu og aðallega haft með að gera baráttuna gegn nazistaáróðri og njósnum, er gefur þessar upplýsingar. Stach lovici hefur áður komið til Norð urlanda og kann mjög vel við sig. Vonar hann að geta unnið að nánari samskiptum og kynn- ingu milli Mexíkó og Norður- landa. Mexíkó hefur verið and- nazitískt síðan 1933. Afstaða Mexíkó ;til nazis- mans hefur verið ákveðin síðan 1933. segir hann. Lýðræðisandi þjóðarinnar hefur verið f jarlæg- ur og andstæður öllu, sem skylt var nazisma. Þegar eftir árásina á Pearl Harbour samþykkti þing ið að taka þátt í stríðinu gegn möndulveldunum og sem afleið- ing af þessari stríðsyfirlýsingu hófst baráttan gegn óvinunum innanlands, nazstunum, og á allan hátt veitti Mexíkó banda- mönnum stuðning. Framleiðslan var umskipulögð til hernaðar- þarfa. Bandamönnum voru látn ar 'i té miklar birgðir af járni, silfri, kvikasilfri og öðrum málm um, sem þeim voru nauðsynleg- Eftirfarandi grein birtist 24. ág. s.I. I norska þlaðinu Friheten og er viðtal tíðindamanns hlaðs- ins við mcxikanskan blaðamann, sem var á ferð mn Norðurlönd. Gefur viðtal þetta nokkra hug- mynd um aðaldrættina í þjóð- lífi Mexíkómanna. ir, svo og matvælum. Auk þess sendi Mexíkó Bandaríkjunum, eftir samningi við þau, 200 þús. verkamenn. Unnu þeir mikil- vægt starf að lagningu vega til herliðs- og hergagnaflutninga. Miguel Aleman, liinn nýi forseti. — Hvernig er háttað pólitísku ásitandi í Mexíkó nú? — Hinn 7. júlí s. 1. fóru fram forsetakosningar og þingkosn- ingar og bar dr. jur. Miguel Aleman, mjög glæsilegur menta maður, sigur af hólmi með mikl- um meirihluta. Hann er 'i sam- einingarflokknum, sem heitir Pardido Revolucionario Inst- itucional (P. R. I.), sem hefur innan sinna vébanda öll fram- sæknustu öfl þjóðarinnar. Lífsferill Alemans hefur verið mjög eftirtektarverður. Hann er sonur hershöfðingja, sem féll í frelsisstriðinu gegn herskörum afturhaldsins. Hann lagði stund lög, og varð málafærslumaður 25 ára gamall. Síðar varð hann hæstaréttardómari og þingmað- ur og tók öflugan þátt í bar- áttunni gegn spillingunni í opin- beru l'ífi. 1936 varð hann land- stjóri í ríkinu Veracruz og þar ‘kom hann á margháttuðum um- bótum á kjörum verkamanna og bænda og m. a. átti mikinn þátt í að endurbæta fræðslu og skóla kerfi. Stefnuskrá hans sem forseta felst í eftirfarandi atriðum: Endurbætur á kjörum landbún- aðarverkamanna, djúptæk upp- bygging iðnaðar í landinu, aukn- ing framleiðslunnar og á sviði utanríkismálanna að koma á sem vinsamlegustu sambandi við allar lýðræðisþjóðir. Ölæsinu skal útrýmt. — Það hafa alltaf verið 'í Mexí kó menn, sem hvorki eru læsir né skrifandi? — Já, stór hundraðshluti þjóð arinnar er ólæs, þrátt fyrir það, að á síðari árum hafa verið byggðir margir skólar. Til þess að vinna bug á ólæsinu, samdi þáverandi forseti, Manúel Avila Camacho, í samráði við- þingið lög, sem skylda þá, sem læsir eru og skrifandi til að kenna hinum ólæsu. Sérhver læs borg- ari verður að geta sýnt það, að hann hafi a. m. k. kennt einum manni að lesa. Árangurinn af þessum lögum hefur verið stór- felldur. Til þess að sýna þetta, skal ég tilfæra eitt dæmi. Á fupdi, þar sem saman voru komnir mörg þúsund bændur, sem nýlega höfðu lært að lesa, stóð einn þeirra, 65 ára að aldri, upp og sagði: Það er undarleg tilfinning, eftir að hafa lifað svona mörg ár eins og blindingi, að sjá nú allt í einu dagsbrún rísa. Mér finnst eins og ég sé ný- fæddur. Baráttan um olíuna — Af hvaða ástæðum voru olíulindirnar gerðarj upptækar, sem vakti svo mikla athygli er- lendis á árunum fyrir styrjöld- ina? — I f jölda ára höfðu amerísk, ensk og hollenzk auðfélög nýtt olíulindirnar í Mexíkó til hins ýtrasta á grundvelli sérleyfa, er þeim höfðu verið veitt. I samn- ingunum við þessi lönd var ákvæði um endurbætur á launa- kjörum og vinnuskilýrðum verkamannanna. En hin erlendu ríki sýndu enga viðleitni til að standa við þetta ákvæði. I odda skarst í byrjun árs 1938, þegar verkalýðsfélögin undir forystu Vicente Lombardo Toledano tóku upp beinar samningaum- leitanir við olíufélögin, til að reyna að fá þau til að standa við, skuldbindingar sínar. Þáverandi forseti, Lazaro Cardenas lét málið til sín taka og setti olíu- félögunum úrslitakosti. Vakti hann athygli þeirra á grein í stjórnarskrá Mexíkó, sem kveð- ur á um, að engin auðæfi í jörðu megi vera í eign útlendinga. — Þegar félögin ekki vildu láta undan og uppfylla þessar kröfur var lýst yfir, að ríkið tæki olíu- lindirnar eignarnámi og að olíu- félögin skyldu fá grei'tt það fé, sem þau höfðu lagt í olíuvinnslu- stöðvarnar. Þessi einarða framkoma Mexíkóstjórnar vakti stórkost- lega athygli og sýndi erlendum ríkjum það, að mexíkanska þjóðin væri engir þrælar, sem hægt væri að traðka á. Ol'iufélögin svöruðu aðgerð- um stjórnarinnar með því að lýsa yfir banni á mexíkanskri olíu, en smám saman komst þetta í eðlilegar skorður, og var það ekki hvað sízt að þakka sanngjarnri afstöðu Roosevelts forseta. Eftir eignarnámið voru olíu- lindirnar settar undir stjórn nefndar, sem skipuð var fulltrú- um stjórnarinnar og verka- manna og eru þær það ennþá. Ágóðinn rennur ekki lengur til útlendinga, heldur fellur mex'í- könsku þjóðinni í skaut. Afleið- ingin er bætt efnahagsafkoma og hún hefur leitt af sér blómg- un menningarlífsins. Litauðug þjóðleg menning. — Hin mexíkanska menning byggir á miklum sögulegum erf ðum ? — Fornmenning Mexíkós á rætur sínar meðal Maja og Az- 1 teka, þjóðfloklka, sem höfðu skapað hjá sér menningu á mjög háu stigi, þegar Spánverjar komu og brutu landið undir sig. Eftir komu Spánverjanna ruddi hin kaþólska spánska menning sér til rúms. Nútíðarmenning Mexlikó er runnin af þessum tveim sögulegu rótum og hefur smám saman fengið á sig sterk- an þjóðlegan blæ. Sem dæmi má nefna málaralist Diego Riveras, sem leitar viðfangsefna í lífi Indíánanna, en er þó jafnframt í anda nútíma listskynjunar. — Meðal beztu verka hans1 eru veggmyndirnar í stjórnarhöll-. höllinni 'í Cceravaca, þar sem saga Mexíkó er tjáð á glæsi- legan, listrænan hátt. — Að hverju vinnur Rivera nú? — Hann heldur áfram að lifa sig inn í kjör og hugmynda- heim Indíánanna, 'til þess að geta lýst því í sígildum formum. Annar heimskunnur listamaður, Orsoco, leggur sig ennþá meir fram um listræn form, en sækir viðfangsefni s'in einnig í hið sama litríka umhverfi. — Og bókmenntirnar? — Þær eru minna kunnar á alþjóðavettvangi en málaralist- in og hljómlistin. Hjá rithöf- undunum kemur fram sama við- leitni til að gefa verkum sínum hinn sérkennilega þjóðlega blæ. Þetta orsakar að vísu, að verk þeirra eru ekki eins aðgqngileg til þýðinga á erlend mál, en ^ * r» ■ zJ&œitii-r: PÓLSK BYLTING Útgefandi: PÁLMI H. JÓNSSON Akureyri. Fyrir stuttu síðan er komin á bókamarkaðinn bók, sem heitir Pólsk bylting, eftir sænsk- pólska skáldkonu, Marika Stiernstedt, þýdd af Gunnari Benediktssyni. Bók þessi, sem er tæpar 190 blaðsíður lýsir ástandinu 'i Póllandi nokkru eftir að Rauði herinn og pólskar hersveitir, æfðar í Rússlandi, og pólskir frelsisvinir höfðu frelsað Pólland undan hinni hræðilegu martröð þýzkra nazista. Bókin lýsir í stuttu en mjög skýru máli ástandinu í landinu; þeim stór- felldu breytingum, sem verið er að framkvæma. Til dæmis skipt- ingu stórjarða aðalsins á milli bændanna, þjóðnýtingu stór- iðnaðarins, uppbyggingu Var- sjárborgar, sem mun vera verst útleikin allra þeirra borga, sem Þjóðverjar hertóku. Þá eru 'í bókinni mjög góðar lýsingar á þeim stórfelldú umbrotum á öllum sviðum þjóðlífsins, sem nú eiga sér stað 'í þessu margum- deilda landi. Þarna eru stuttar lýsingar af mörgum forystu- mönnum hins nýja Póllands. — Við lestur þessarar bókar kemst lesandinn ekki hjá því að fyllast hatri og fyrirlitningu á þeim myrkravöldum, sem hafa átt mestan þátt í því, að þessi gáf- aða og sérkennilega þjóð skuli hafa hlotið slík grimmdarörlög og hlutskipti hennar varð, ekki um tugi ára, heldur aldir. Les- innanlands hafa t. d. rithöfund- ar eins og Ruben Romero og Lopez Fuentes, svo að tvö nöfn séu nefnd, vakið mikla athygli. Hvað hljómlistina snertir, verð- ur henni bezt lýst með því að segja, aðvhún sé litauðug hljóm- list, þrungin l'ifsgléði. Þung- lyndisleg lög eru.varla til. Tón- list og nautaöt eru þjóðarástríð- ur. Allar stéttir þjóðfélagsins sækja hljómleika. Ég vildi gjarnan segja meira frá hinni blómgandi menningu í Mexíkó, en ég vona, að það líði ekki á löngu áður en Norður- landabúar fá að kynnast henni af eigin reynd. Svo'er nefnilega mál með vexti, að við höfum fyrirætlanir um listsýningar og fl. á Norðurlöndum og æskjum þess eindregið, að svipaðar sýn- ingar til kynningar menningu Norðurlanda verði haldnar 'i Mexíkó. 1 Mexíkó verður vart við mikinn áhuga fyrir Norður- löndum, högum þeirra og menn- ingu og ég þori að fullyrða, að við vitum meira um ykkur en þið okkur. Eftir að hafa gefið okkur þessa smásneið, sem ég fyrir hönd lands míns hlaut að taka til mín með nokkrum kinroða, kvaddi Adi Stachloviei mig. —* Sjálfur er hann glæsilegur full- trúi hins fflamsækna Mex'ikó, þessa unga lands með hinar miklu vonir og traust á fram- 'tíðinni. Það var lærdómsríkt að hitta hann. andinn hefur það þó á tilfinn- ingunni, að þrátt fyrir allar ógnir og skelfingar styrjald- anng, þrátt fyrir kúgun rúss- neskra keisara og aðalsmanna og þrátt fyrir kúgun innlends afturhalds á árunum milli hinna tveggja styrjalda, mun nú vera í fyrsta skipti ’i sögu Póllands að verða stórkostleg umbreyt- ing, sem sé hrein bylting. Alþýðan í borg og sveit, menntamenn ásamit fjölda ann- arra einstaklinga úr öllum stéttum, hafa undir forustu glæsilegra foringja hafizt handa um að byggja upp nýtt Pólland; fyrir fólkið sem byggir það. Kristmann Guðmundsson, er skrifar eftirmála við .bókina, segir: ,,En því þótti mér bókin merk, að ég þekkti höfund henn- ar að sannsögli og því, að hún ljær aldrei nema réttu máli fylgi sitt.“ Ég tel, að allir, sem hafa áhuga á því, sem: nú er að gerast 'i Póllandi, ættu að lesa bókina. Mætti þá svo fara, að eitthvað af því moldviðri og þeim óhróðri sem þyrlað hefur verið upp í sambandi við Pólland og önnur lönd í Austur-Evrópu, sem að mörgu leyti eru á líku þróunar- skeiði pólitískt og Pólland, skýrðust fyrir athugulum les- anda, að minnsta kosti þeim, sem ekki eru fyrirfram haldnir af and-sósíalistiskum sltoðunum og fordómum. Leiðréttine: I kauptaxta Þróttar, sem gildir fyrir septembermánuð hefur misprentast einn liður kauptaxtans. Er það eftirvinna í skipavinnu, á að vera 14,21 í stað 14,71. Þetta eru menn góð- fúslega beðnir að athuga. Þróttur.

x

Mjölnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.