Mjölnir - 06.08.1947, Blaðsíða 2
2
M J ö L N I R
<
HVAÐ SEGJA HIN SLÖÐIN
| MJÖLNIR
J _ VIKUBLAÐ — ..
k Útgefandi :
j Sósíalistafélag Sigluf jftrðar
Símar 194 og 210
Blaðið kemur út
alla miðvikudaga.
Áskriftargjald kr. 20,00 árg.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Helgi Guðlaugsson /
Afgreiðsla Suðurgötu 10. J
Siglufjaröarprentsmiöja h. f. í
Úreiðan í stjórn
bæjarins
Hér í blaðinu hafa að undan-
förnu birzt nokkrar greinar um
þá óreiðu og athafnaleysi, sem
nú ríkir í stjórn bæjarfélagsins.
Greinar þessar hafa að vonum
vakið talsverðar umræður í
bænum, sérstaklega þykir mönn
um ískyggilegt hið slæma fjár-
málaástand bæjarins og sú
óreiða og vanskil, sem skapast
hafa í tíð núverandi bæjar-
stjóra.
Jóhann G. -Möller reynir að
bera blak af bæjarstjóranum í
„Neista“ nýlega og þeim f jórum
bæjarfulltrúum, sem að honum
standa. Vörn Jóhanns er ákaf-
lega veik og er í rauninni aðeins
undirstrikun á því, sem hér
hefir verið sagt um þessi mál.
Hann vill telja bæjarstjóranum
og hinum óábyrga meirihluta
bæjarstjórnar það til afsökunar,
að þeir hafi þó framkvæmt ýms
nauðsynjaverk, sem áður hafi
verið búið að ákveða. Annað
hvort væri nú, að bæjarstjórnin
hefði ekki bókstaflega haldið að
sér höndum og hvergi sést, að
hún væri til. Fyrr gat það nú
orðið illt en ekkert væri aðhafst.
Um hitt þegir hann, af eðlileg-
um ástæðum, sem er þó eitt-
hvert alvarlegasta atriðið, að
bæjarstjórinn og hinn óábyrgi
meirihluti eru með dugleysi
sínu og óreiðu í málefnum bæj-
arins að skapa þá fjármála-
óreiðu og vanskil hjá bæjarfé-
laginu, sem hlýtur að hafa
mjög ískyggilegar afleiðingar,
ef ekki verður tekið mjög bráð-
lega í taumana.
Ráðning núverandi bæjar-
stjóra var knúin fram af Al-
þýðuflokknum í andstöðu við
sósíalista, með beinum stuðn-
ingi Framsóknar og óbeinum
stuðningi Sjálfstæðisflokksins.
Það er enginn málefnasamning-
ur í gildi milli þessara flokka til
að starfa eftir, öll stjórn þeirra
á bænum einkennist af tilviljun-
um og ábyrgðarleysi.
Það er þess vert, að bæjar-
búar fylgist vel með þessum
málum og beiti áhrifum sínum
til þess að ráðin sé bót á þessu
ófremdarástandi.
GREIN UM
síldarverðið og f 1. greinar bíða
næsta blaðs.
Foringjar Alþýðuflokksins
í gapastókknum
(Framliald af 1. síðu)
þó hann reyni að telja sjálfum
sér trú um að hann fari hér með
full rök, það verða áreiðanlega’
engir aðrir, sem halda því fram.
1 þessu sambandi er vert að
minnast þess, að fyrir verkfall
Þróttar, eða meðan á því stóð,
kom engin tillaga frá Alþýðu-
flokksmönnum um samúðarverk
fall. Eina tillagan, sem gæti tal-
izt eitthvað í þá átt var frá
Gísla Sigurðssyni rétt 'fyrir verk
fallið þess efnis, að Þróttur
gengi þegar að tilboði stjórnar
S.R., en neitaði ad skrifa undir
samninga fyrr en samið hefð
verið við hin félögin. Holl tillaga
eða hitt þó heldur. Viss leið til
þess að Þróttur hefði verið
dæmdur í háar fésektir. Þeir
hafa verið sólgnir í það hægri
menn Alþýðuflokksins nú í
seinni tíð að fá Þrótt dæmdan í
sektir.
Það efast víst enginn um það,
og sízt aðstandendur ,,Neista“,
að þó Þróttur hefði farið þá
leið að semja strax og hefja
síðan samúðarverkfall með hin-
um félögunum, að gangur máls-
ins hefði orðið alveg sá sami,
nema hvað aðstaða verkalýðs-
félaganna hefði verið heldur
veikari. Hægri menn Alþýðu-
flokksins hefðu jafnt fyrir því
rekið sína 5.-herdeildarstarfsemi
í félaginu, og Helgi Hannesson
hefði þá alveg eins og hann
gerði nú í sumar, flækst á milli
félaganna norðanlands í þeim er
indagerðum að reyna að sundra
samtökum verkfallsmanna. Ætli
samúð hans með norðlenzkum
verkamönnum hefði ekki orðið
eitthvað svipuð og ,,samúð“ þess
félags, sem hann er formaður '1,
Baldurs á Isafirði, gagnvart
Dagsbrúnarmönnum ? Og skrif-
in í ,,Neista“ hefðu orðið ósköp
svipuð, jafn aulaleg og mót-
sagnakennd. Þá hefði bara verið
sagt, að Þróttarforustan hefði
fórnað hagsmunum siglfirzkra
verkamanna með því að leiða
þá út í pólitískt samúðarverk-
fall, sem valdið hefði verka-
mönnum óhemju tekjumissi en
engum ávinningi. Hitt hefði
verið nær að lpggja út í verk-
fall til að knýja fram hagsbætur
fyrir félagsmenn og styrkja um
leið starfsbræður á öðrum stöð-
um o.s.frv.
Reynsla undanfarinna ára
sýnir, að Þróttur fór rétta leið i
'þessum málum. Áður hefir
Þróttur alltaf samið sérstaklega
og á undan. Þá hefir líka alltaf
farið svo, að hin smærri félög
hafa ekki náð líkt því eins góð-
um kjörum og Þróttur. Nú hefir
það tekizt í fyrsta sinn.
í umræddri ,,Neista“-grein
segir, að Þróttarforustan hafi
gengið ,,á gefin loforð um að
leggja samningsuppkast við
stjórn Síldarverksm. fyrir
Þróttarfund“. Það er eins og
geðbilaður maður eða blindfull-
ur hafi skrifað þetta. Hver ein-
asti Þróttarfélagi og raunar
aJllir bæjarbúar vita, að þetta
samningsuppkast var oftar en
einu sinni lagt fyrir fund 1
Þrótti og afgreitt samkvæmt
Þrótti og afgreitt samkvæmt
vilja meirihluta fundarmanna.
Það er óþarfi að tína til fleiri
ósannindi og mótsagnir úr
skrifum ,,Neista“ til að sýna
fram á óheilindi hægri manna
Alþýðuflokksins og rökþrot
þeirra í þessu máli. — Flestum
mun nú orðið ljóst og þeim
einnig; að svikastarfsemi þeirra
gegn Þrótti og verkalýðsfélög-
unum í heild í umræddri deilu
bar þann eina árangur, að
hindra fullkominn signr Þróttar.
Athæfi þessara manna allt í
þessum málum er svo níðings-
iegt og lubbalegt, að allar til-
raunir þeirra til að klóra yfir
skömm sína af því eru tilgangs-
lausar og gera það eitt að verk-
um, að opinbera enn betur en
orðið er vesalmennsku þeirra og
eymd, eins og umrædd grein ber
glöggt vitni. Þeir eiga nú um
ekkert annað að velja en að
skammast sín og reyna að bæta
ráð sitt í framtíðinni, eða týna
því litla trausti og áhrifum, sem
þeir enn kunna að hafa meðal
siglfirzkrar alþýðu.
Verð á síldarmjöli
innanlands
Eftir því sem blaðið hefur
frétt, mun stjórn SR nýlega
hafa ákveðið að selja síldar-
mjöl um 10 kr. lægra á sekk en
fæst fyrir það erlendis. Er það
að sumu leyti ágætt ef hægt er
að selja landsmönnum innl. af-
urðir á lægra verði en fæst fyrir
þær á erl. markaði. Hinsvegar
skýtur þetta nokkuð skökku við
verðlagningu á öðrum innl. af-
urðum eins og kjöti, smjöri o.fl.
Éru sumar landbúnaðarvörur
seldar með margföldu því verði,
sem fæst fyrir þær erlendis.
Föstudaginn 18. júlí lést hér
á sjúkrahúsinu Stefán Guð-
mundsson múrari, Eyrargötu 27
hér í bæ.
Stefán var starfsmaður mik-
ill; féll helzt aldrei verk úr hendi
enda vandist hann ungur við að
vinna. Var það sjómennskan,
sem hann fyrst lagði fyrir sig
þó ungur væri, eða rétt um
fermingu, en þörfin kallaði til að
veita hinum öldruðu foreldrum
hans stuðning, enda var fullur
vilji fyrir hendi til þess, og þó
oft drægi upp skuggaleg ský á
sjómannsárum hans, var ætíð
að finna hjá Stefáni hinn stóra
kost, sem var hin létta og
hressandi framkoma.
Þegar árin færðust yfir, fór
með hann eins og svo marga úr
hans byggarlagi, að hann leitaði
gæfunnar út fyrir sína heima-
sveit, og var þá Siglufjörður
valinn sem dvalarstaður. —
Er öllum hér kunnur hinn dag-
farsgóði og drenglundaði sam-
ferðamaður okkar, sem eftir all-
margra ára vanheilsu hefur nú
verið hrifinn hinni sterku hendi
dauðans.
Er hér kveðinn all þungur
harmur að ættingjum og vinum
Stefáns, en þó sérstaklega eftir-
lifandi konu hans og börnum,
því heimilið sitt lék hann við og
lifði fyrir.
Skagfirðingur
í 10. tbl. „Siglfirðings" 17.
f.m. er spurt:
„Hver er munurinn á Áka
Jakobssyni og Snorra Sturlu-
syni? Já, mörgum kann að finn-
ast kjánalega spurt, og það er
það vissulega. (leturbr. Mjölnis)
Þó verkfallið næði til Snorra
Sturlusonar, náði það ekki til
Áka Jakobssonar, sá er m. a.
munurinn.“
Vafalaust munu allir sam-
mála blaðriturum „Siglfirðings“
að spurning þeirra sé kjánaleg
og yfirleitt öll þeirra skrif. En
að þeir skuli benda á þetta að
fyrra bragði, sýnir þó, að þeim
er ekki alls varnað.
Kristján Sturlaugsson ritar
greinarstúf í síðasta „Neista“
og segir þar m.a. um ritsmíðar
blaðsins:
„Hinar skeleggu og rökföstu
greinar um verkalýðsmál, sem
TUNNUR '
Til sölu eru ca. 200 tunnur frá
síðastliðnu ári, ónotaðar.
TTJNNU VERKSMIÐ J A
SIGLUFJARÐAR
Sportbuxur f. dömur
Stígvélaleistar
Sportjakkar
Nærfatablúnda
Plastik-belti
Buxur — Peysur
Vesti
Peysur
o. fl. o. fl.
Verzl. Túngötu 1
Herpinætur
Til sölu er djúpnót og grunn-
nót, báðar í góðu standi
MÁR EINARSSON
Síldarþró springur
Nýlega sprakk veggur í síld-
arþró SRP og flæddi síldin út á
síldarplan Pólstjörnunnar. Er
nú búið að gera við skemmd-
irnar.
þeim svíður svo mjög undan
þeim Mjölnismönnum, eru ekki
mitt ritsmíði.“
Það veitir sannarlega ekki af
að benda lesendunum á, að rit-
smíðar Neista séu skeleggar og
rökfastar. Það myndi áreiðan-
lega annars fara fram hjá þeim.
I sama tbl. er alllöng grein á for-
síðu um verkalýðsmál og er að
vísu framtekið í henni, að hún
sé rökföst, en allir aðrir en
,,Neista“-menn munu álíta
greinina einhverja mestu end-
emis rakaleysu, sem í þv’i blaði
hefir birzt, og er þá mikið sagt.
Líklega væri ráð fyrir aðstand-
endur ,,Neista“ að reyna að
vekja enn meiri athygli á rök-
festu sinni í verkalýðsmálum,
t.d. með því að láta allar greinar
um það efni heita: „Skelegg og
rökföst grein um verkalýðsmál“
Nýjar vörur:
Telpnakápur á 2—6 ára
--- 8—10 ára
Drengjakápur á 8—12 ára
---- 12—16 ára
Brjóstalialdarar
Herravesti
Dömubelti (Plastik)
Gúmmíhanskar
o. fl. o. fl.
AÐALBUÐIN h. f.
VIL SELJA
Viðtæki
og
Pianóharmoníku
Afgr. vísar á
NÍJI-BIO
sýnir miðvikudag, fimmtudag
og föstudag kl. 9:
DULARFULLA HÓTELIÐ
Afar spennandi mynd.
Fimmtugsafmæli
Frú Pálína Færseth, Norður-
götu 12B, er 50 ára í dag.
Matsvein og nokkra háseta
vantar á b.v. ELLIÐA
umsóknir sendist
Togaranefnd Siglufjarðar