Mjölnir


Mjölnir - 03.12.1947, Blaðsíða 1

Mjölnir - 03.12.1947, Blaðsíða 1
 Kaupið og lesið ÞJdSVILiANN ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ Miðvikudaginn 3. des. 1947 45. tölublað. 10. árgangur. ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ÞEGAR ELLIÐI KOM Þegar Elliði kom lil landsins, Icom hann f'yrst lil Hafnarfjarðar. Klukkan 9 um kvöldið þann 15. okt. s.l. lagðist hið fagra og glæsilega skip upp að ^ryggju, voru þar þá fyrir þeir Þóroddur Guð- mundsson og Eyþór Halsson, sem báðir eru í út- gerðarstjórn Elliða, auk þess Aki Jakobsson, þing- maður Siglfirðinga og Gunnar Vagnsson hæjar- stjóri, til að taka á móti skipinu. Þá komu og adt- ingjar og vinir skipverja og ýmsir Siglfirðingar, sem staddir voru fyrir sunnan og fjöldi Hafnfirð- inga. Hin stóra bryggja var þvi þéttskipuð af fólki. Skipstjóri og aðrir skipverjar voru kátir og glaðir og íétu hið bezta af íerðalaginu heim. Næstu klukkutímana eftir að skipið lagðist við hryggju var skipið hókstaflega fullt af fólki. Allir vildu sjá skipið, skoða vistarverur skipverja, eldhúsið, sjá vélarrúmið og stýrishúsið og mega skipverjar vex*a óvenjulega þolinmóðir menn, ef þeir hafa ekki verið orðnir leiðir á öllum spurninguniun, sem fyrir þá voru lagðar, snmar þá heldur broslegar í eyrum sjómanna. 1 hinni stóru og vistlegu káetu skipstjórans voru saman komnir ýmsir ættingjar lians og vinir, ]>eir tveir útgerðarstj.meðlimir, sem mættir voru, Aki Jakobsson, Gunnar Vagnsson og auk þess komu þar nokkrir stéttabræður skipstjóra, til að sjá skipið og óska hinum unga skipstjóra til hamingju með skipið. Sátu menn þar við góðar. veitingar og spjölluðu saman. Kona skipstjórans, frú Hanna Andrésdóttii*, lxafði farið með manni sínum til Eng- lands til að sækja skipið og konx upp með því. Þrátt fyrir það, að hún var eittlivað sjóveik á leiðinni var hún nú hin kátasta og umhyggjusamasta um gestina. Móðir skipstjórans, frú Rannveig Vigfús- dóttir var þarna einnig stödd til að taka á móti syni sinum og tengdadóttur, spjallaði hún við gest- ina, virðuleg en þægileg í viðmóti og aðstoðaði af mikilli röggsemi og myndarskap við móttökuna á hinurn mörgu gestxmi. Þegar líða tók á kvöldið burfu gestir á brott og skipverjar fóru í land til að lxitta fólk sitt. Ekki tókst að fá lifi*arhræðslutæki sett í Elliða fyrir sunnan vegna járnsnxiðaverkfallsíns og fór Elliði með tækin hingað til Siglufjai'ðar og voru þau sett niður hér að svi miklu leyti, senx hægt var. Nú er Elliði búinn að fara einn túr, veður voru slænx svo afli varð rýr, en í þessum túr fékk skipið aftaka veður og allt um horð í’eyndist traust og gott, þó var skipið að veiðum einn til tvo sólar- hringa, þegar allir aðrir togarar voru Liadtir veið- um vegna veðui’ofsans. Þessi i’eynsla af fyrsta lúrnum er því góð þrátt fyrii', að afii varð litill. Nú er Elliði í öðrum túrnum, er bxiinn að vera á veiðum í 10 daga og liefur blaðið freguað, að hann sé þegar búinn að fá löluvert meira en hálffenni, en afli liefur verið tregur hjá togurununx undanfai’ið. i-4 Siglfirðingar eru yfirleítt nú allir sammála urn, að rétt hafi verið að kaupa togara hingað til Siglu- fjarðar og ánægðir og stoltir vfir hinu stóra og glæsilega skipi. En sú var tíðin að uppástunga um það átti ekki miklu fylgi að fagna. Fýrstir komu koxmnúnistar hér fram með tilögu unr, að bæi’inn keypti togara. Því var þá illa tekið af forustu- mönnum annarra flokka, en tillagan fékk mikið fylgi hjá sjómönnum og vei’kamönnum, og svo fóru leikar, að Alþýðuflokkurinn tók einnig á sína stefnuskrá, að keyptur yrði togaxá hingað; Sjálf- stæðisflokkurinn var þyngstur fyrir, þó fór svo, að liann varð einnig með máinu. Og þegar saxn- þykkt var, að bærinn sækti um einn til tvo togai-a, var það sanxþykkt með öllum atkvæðum í bæjar- stjórn. En ekki var björninn unninn, þó bæjar- stjórn samþykldi að sækja um einn nýsköpunax’- togarann, því Nýbyggingarráð synjaði beiðni Siglu- fj.kaupst. og ráðstafaði öllum togurunum til ann- ai'ra kaupenda. Virtist málið þá strandað, en þing- maður Siglfii'ðinga Áki Jakobsson, sem þá var atvinnumálax’áðherra tók rnálið upp í ríkisstjórn- inni og þó stuðningur Alþýðuflókksráðherranna vrði lieldur lítill fór þó svo, að Áka tókst með di'engilegum stuðningi Ólafs Thoi's fox'sætisráð- herra að knýja Nýbyggingarráð til að breyta fyrri ákvörðun og úthluta Siglufjarðarkaupstað einum togara. En svo var málið harðsótt, að í langan tíma mátti ekki á milli sjá, hver málalok yrðu. Og það eitt er víst, að hefðu Siglfirðingar ekki átt eins hygginn og hai’ðduglegan málsvara eins og Áki Jakobsson er hefði enginn togari verið kominn hingað enn. Eftir að leyfi var fengið fyrir togaranum, gerðist ýmislegt bx-oslegt hér á Siglufirði í bæjarstjórninni. Sumir bæjarfulltrúar voru andvígir því, að bærinn keypti togarann og vildu reyna að stofna um hann einhvei’skonar telagsskap, nxeð eða án þátttöku bæjarsjóðs. Elliði á höfnhmi í Hafnarfirði Hér er ekki tínxi til að í'ekja umr. unx þetta logarannál í bæjarstj., enda voru þær langar og misjafnl. u|)pbvggi- legai’, einnar tillögu slcal ]>ó getið, seixx í'ramsóknai'menn kornu fram með, en tillagan var á þá leið, að bæjai’- stjórn beitti sér fyrir stofnun hlutafélags til að kaupa togarann og reka hann, en bæjai'sjóður tæki að sér að ábyrgjast gagnvart hluthöfunuin, að hlutaféð tapaðist ekki, eða nxeð öðrum oi’ðum, að hluthafarnir ættu að í'á gróðann, ef gróði vrði á rekstrinum, en bæjai’sjóður að borga lapið, ef tap yrði. Endir málsins vai'ð svo sá, að bæjarsjóður keypti togarann og rekur hann fyrir eigin reikning. Munu flestir sammála unx nú, að' þetta hafi verið lxeppilegasta leiðin, og raunar sú eina senx fær var eins og sakir stóðu. Myndir þær, sem hér eru hirtar í blaðinu voru allar teknar í Hafnarfii’ði. Mjölnir vill enn á ný óska þess, að Elliði verði liappa- skip og Siglufjarðai'bæ og Sigfirðingum til aukinnar velgengni. Talið frá vinstri til i hægri: Gunnar Vagnsson bæjar- stjóri, Áki Jak- obsson, alþingis- maður, Vigfús Sig- urjónsson, skipstj. j á Elliða, Ey]>ór Halisson skipst j. Frú Hanna Andrésdóttir, Vigfús Sigurjónsson, skipstjóri og móðir lxans, frú Raimveig Vigfúsdóttir Myndin er tekin í skipstjórakáetunni á Eiliða, Vigfús Sigurjónsson skipstjóri í skipstj.káetunni á Eliiða

x

Mjölnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.